Morgunblaðið - 28.11.2016, Page 21

Morgunblaðið - 28.11.2016, Page 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2016 ✝ Konráð Guð-mundsson fæddist í Landlyst í Vestmannaeyjum 30. desember 1938. Hann lést á heimili sínu, Lundi 86, Kópavogi, 14. nóvember 2016. Foreldrar hans voru Guðmundur Hróbjartsson, f. 8. ágúst 1903, d. 20. ágúst 1975, og Sigrún Þórhild- ur Guðnadóttir, f. 16. janúar 1912, d. 20. desember 1993. Systkini Konráðs eru Guð- rún Jónína, f. 1932, d. 1989, Halldóra, f. 1934, d. 2009, Hel- ena Björg, f. 1936, Sesselja, f. 1940, d. 1987, Guðmundur Lár- us, f. 1942, d. 2016, Guðni Þór- arinn, f. 1948, d. 2000. Konráð kvæntist 20. desem- ber 1963 eftirlifandi eiginkonu sinni, Elínu Guðbjörgu Leós- dóttur, f. 17. október 1942. Foreldrar Elínar voru Krist- björg Kristjánsdóttir, f. 8. apr- íl 1921, d. 24. nóvember 1999, og Leó Ingvarsson, f. 22. sept- ember 1913, d. 29. nóvember 2005. Börn Elínar og Konráðs eru: 1) Kristbjörg, f. 4. júní 1960, maki Lúðvík H. Gröndal, f. 18. ágúst 1955. Dóttir þeirra Ingveldur, f. 1998. Fyrir átti Kristbjörg tví- burana Konný Björgu og Eydísi Ósk, f. 1993, faðir þeirra er Jónas Helgason. 2) Brynjar, f. 26. mars 1962. Hans börn eru Björn Leó, f. 1985, móðir Anna Þóra Björnsdóttir, Björgvin, f. 1989, móðir Helen Björgvinsdóttir og Ida Stær- mose, f. 1997, móðir Malene Stærmose. Konráð ólst upp í Landlyst í Vestmannaeyjum. Hann lauk námi frá Iðnskólanum í Vest- mannaeyjum sem húsasmiður og vann við þá iðn alla sína tíð. Lengst af vann hann sem verk- stjóri á Smíðaverkstæði Kópa- vogsbæjar. Samhliða smíðinni stundaði hann sjómennsku meðan hann bjó í Vest- mannaeyjum. Vorið 1971 fluttu þau hjónin frá Eyjum og sett- ust að í Kópavogi og bjó Kon- ráð þar allt til dauðadags. Útför hans fór fram í kyrr- þey 24. nóvember 2016. Nú þegar Konni tengdapabbi er fallinn frá langar mig til að þakka honum fyrir allt sem hann var mér þau tuttugu ár sem liðin eru frá því er ég kom fyrst inn í fjölskyldu hans. Hann var alltaf jákvæður og með eindæmum bóngóður mað- ur. Þolinmæði hans gagnvart mínum tíu þumalputta höndum var óþrjótandi þegar ég var að reyna að aðstoða hann við hin ýmsu verk bæði heima í Víði- grundinni og ekki síst í sum- arbústaðnum á Laugarvatni. Hann var bókstaflega alltaf tilbúinn til hjálpar, ekkert við- vik var of stórt og aldrei heyrði ég hann mögla yfir nokkurri bón. Ég lærði líka fljótt að Konni var ekkert að hangsa með hlutina. Hann sagði kannski við mig … „já, já, Lúlli minn, við kíkjum á þetta fljót- lega“ og svo var hann auðvitað mættur snemma næsta dag tilbúinn með allt sem þurfti til verksins. Svona var Konni. Annað sem Konni kenndi okkur er æðruleysi og að þakka fyrir það sem lífið gefur okkur því ekkert er sjálfgefið fyrir mann- inn hér á jörðinni. Hann var lífsglaður maður og kunni að njóta lífsins, hann var ungur í anda og á eftirfarandi vísa vel við hann. Létt er að stíga lífsins spor, ljúf er gleðin sanna, þegar eilíft æsku vor, er í hugum manna. (Ragnar S. Gröndal.) Konni var þannig margbrot- inn og traustur maður, fjöl- skyldan var honum alltaf efst í huga, vinnusamur með afbrigð- um, tónelskur maður sem unni flestum tegundum tónlistar, mikill matgæðingur var hann einnig og svo mætti lengi telja upp af mannkostum hans. En kannski enn þá mikilvæg- ara finnst mér að þakka honum fyrir að vera allra besti afi sem hægt var að hugsa sér fyrir stelpurnar okkar. Stuðningur hans og hjálpsemi við þær verð- ur seint fullþakkaður. Mig langar til að enda þessi minningarorð á sálmi eftir Sig- urbjörn Einarsson, fyrrverandi biskup, sem var um árabil ná- granni Konna hér við Fossvogs- dalinn. Eins láttu ljósið þitt lýsa í hjarta mitt, skína í sál og sinni, sjálfur vaktu þar inni. Lát húmið milt og hljótt hlúa að mér í nótt og mig að nýju minna á mildi arma þinna. Ég fel minn allan hag einum þér nótt og dag, ljósið af ljósi þínu lifi í hjarta mínu. (Sigurbjörn Einarsson.) Blessuð sé minning Konráðs Guðmundssonar Lúðvík H. Gröndal. Mig langar til að setja niður nokkrar línur til að minnast að leiðarlokum einstaks manns, fyrrverandi tengdaföður míns og vinar. Konráð Guðmundsson, eða Konni í Landlyst, var búinn mannkostum og manngæsku í þeim mæli að maður getur ein- ungis verið þakklátur að hafa fengið að njóta kynna af hon- um. Konni var fæddur og uppal- inn í Vestmannaeyjum og þó hann flytti í Kópavog rétt fyrir gos var hann alla tíð stoltur af uppruna sínum. Kannski er að hluta til upprunanum frá Vest- mannaeyjum að þakka leiftr- andi kímni hans og jákvætt lífs- viðhorf. Ég kynntist Konna fyrst 1976 þegar við Kiddý byrjuðum að stinga saman nefjum, þá var bílakostur hjá strák nýorðnum 18 ára ekki merkilegur en Konni kunni ráð við því, hann lánaði krökkunum bara Bronco- inn sinn. Broncoinn var reyndar ekki orðinn ársgamall og hafði kostað mikla vinnu að eignast hann. Þarna sá maður strax þá umhyggju og fórnfýsi sem ein- kenndi hann alla tíð og löngu eftir að sambúð okkar Kiddýjar lauk mörgum árum seinna var hann alltaf boðinn og búinn til að rétta fram hjálparhönd. Konni var dverghagur og lék öll smíði í höndum hans. Má í raun segja að það eina sem hann hafi ekki staðið sig vel í hafi verið að rukka gjald fyrir vinnu sína. Það er ekki hægt að tala um Konna án þess að nefna eftirlif- andi lífsförunaut hans, Ellu (El- ínu Leósdóttir). Þau voru ákaf- lega samrýnd og samheldin alla tíð og yfirleitt var alltaf talað um Konna og Ellu. Þau áttu alla tíð fallegt heimili og byggðu sér sælureit á Laug- arvatni þar sem þau áttu ótald- ar gleði- og ánægjustundir. Þau Konni og Ella eignuðust tvö börn, Kiddý (Kristbjörg Konráðsdóttir) og Binna (Brynjar Konráðsson) og eru barnabörnin sex talsins. Með tilkomu barnabarnanna bættust við gimsteinar sem skipuðu ávallt ákaflega stóran sess í lífi þeirra hjóna og hafa þau alltaf verið barnabörnunum stoð og stytta og miklir vinir. Dætrum okkar Kiddýjar, Konnýju Björgu og Eydísi Ósk, hafa Konni og Ella alltaf reynst einstaklega vel og ekki einungis verið þeim afi og amma heldur líka vinir og félagar. Helgi sonur minn úr seinni sambúð hefur aldrei kallað Konna og Ellu annað en afa og ömmu og hlakkaði alltaf mikið til að hitta Konna sem var óþreytandi í að hafa ofan af fyr- ir honum og gleðja. Það er stórt skarð fyrir skildi þegar Konna nýtur ekki lengur við og viljum við votta Ellu, Kiddý, Lúlla, Binna og barna- börnunum samúð okkar. Við óskum þér góðrar ferðar og vitum að það verður vel tek- ið á móti góðum dreng. Hverfur margt huganum förlast sýn þó er bjart þegar ég minnist þín. Allt er geymt allt er á vísum stað engu gleymt, ekkert er fullþakkað. (Oddný Kristjánsdóttir í Ferj- unesi) Jónas A. Helgason. Þegar ég var lítill strákur leit ég alltaf alveg ótrúlega mikið upp til afa míns, sem alla tíð var kallaður Konni. Seinna þeg- ar ég fullorðnaðist átti það ekk- ert eftir að breytast. Sem ung- lingur vann ég á sumrin á verkstæðinu hjá afa og þar kenndi hann mér að vinna. Þar var ótrúlegt að fylgjast með hvað afi gat unnið hratt og vel. Öðrum eins dugnaðarforki hef ég ekki kynnst á ævinni og ég held að hjartasjúkdómurinn sem hrjáði hann hefði tekið aðra menn mikið fyrr. Afi mátti ekki vita af neinu ókláruðu verki neins staðar, þá var hann rokinn af stað og búinn að af- greiða málið áður en maður gat snúið sér í hálfhring. Afi talaði alltaf um að maður þyrfti bara að kunna rétta lagið á hlutunum, að maður ætti að láta verkfærin vinna fyrir sig. Þá væri allt miklu auðveldara. Í þessu finnst mér vera falin djúp viska sem hægt er að yfirfæra á allt sem maður gerir. Ég hugsa mikið um „rétta lagið“ enn þann dag í dag og finnst það vera nokkurs konar lífsmottó. Konni afi var mikill húmor- isti og góður sögumaður frá náttúrunnar hendi. Maður gat hlegið sig máttlausan þegar hann komst í gírinn eða sopið hveljur þegar hann sagði háska- sögur af sjónum og við amma ræddum það oft að hann hefði mögulega getað orðið hinn besti leikari. Ánægjustundirnar í sumarbústað ömmu og afa á Laugarvatni voru ófáar. Um leið og maður kemur inn fyrir girðinguna þar er eins og allar heimsins áhyggjur hverfi. Á mínum yngri árum eyddi ég miklum tíma í sveitinni með ömmu og afa og það er einstakt hvað þau voru góð við okkur barnabörnin. Þegar ég hugsa til baka verður öll vinnan sem afi og amma lögðu í bústaðinn svo táknræn fyrir það að það mik- ilvægasta í lífinu er það að hlúa að því sem manni þykir vænt um. Afi var alltaf til í eitthvert glens og það var svo frábært að sjá glitta í strákslegan prakk- arann sem hann bjó yfir. Maður gat alltaf séð hann fyrir sér sem ungan mann og hann kenndi mér að maður ætti ekki að taka sjálfan sig of alvarlega. Afi Konni hélt í einstaka skap- gerð sína alveg fram í það síð- asta og jafnvel þótt hann væri orðinn mjög veikur og slappur horfði hann kíminn á mann og við þurftum ekki að segja neitt. Ég sá það svo skýrt hvað það veitti honum mikla ánægju að hafa fólkið sitt hjá sér. Það var það eina sem hann þurfti. Afi hafði sín gildi á hreinu og það fór aldrei á milli mála hvað það var sem hann setti í fyrsta sæt- ið. Það var fjölskyldan. Elsku Konni afi. Nú kveð ég þig og þakka fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig á meðan þú lifðir. Þú varst ekki bara fyr- irmynd í lífi og starfi heldur einnig traustur vinur og góður félagi. Nú hugga ég mig við það að þú lifir áfram í minningum mínum og þeirra sem fengu að kynnast þér á meðan þú lifðir. Ég sé þig ljóslifandi fyrir mér á Laugarvatni að láta renna í heita pottinn, nýbúinn að olíu- bera pallinn, sáttur við dags- verk, lífið og tilveruna. Björn Leó Brynjarsson. Elsku afi. Þegar ég hugsa til þín fyllist hjarta mitt af hlýju, skilyrðislausri ást, gleði og ynd- islegum minningum. Á sama tíma hellist yfir mig svo óbæri- leg og þung sorg að ég veit ekki hvernig henni mun mögulega létta. Síðan þú fórst er líkt og heimurinn hafi fengið á sig gráa slikju og stórt skarð hefur myndast í hjartanu. Það er ekki skrítið að ein- hver eins og þú skilji eftir sig stórt skarð. Ég á svo margar yndislegar minningar um þig og við vorum svo náin að þú varst mér líkt og pabbi. Þú kenndir mér ótal margt. Hjá þér lærði ég að lesa, reikna, hjóla og að keyra bíl. Sama hversu langan tíma þetta tók misstirðu aldrei þolinmæðina og við hættum ekki fyrr en ég hafði lært. Þú kenndir mér líka ýmislegt um lífið, hjálpsemi og kærleik. Alltaf varstu tilbúinn að gera allt fyrir alla. Ég man þegar þú keyrðir mig og Konný alltaf í skólann og varst þá mættur að minnsta kosti 15 mínútum of snemma og hitaðir bílinn svo að okkur liði vel þegar við kæmum út. Þetta lýsir þér svo vel og hversu mikið þú elskaðir okkur. Ég man eftir öllum ferðalög- unum saman og hvað þér fannst gaman að fræða okkur um land- ið og sýna okkur allt. Veiði- stöngin var alltaf með í för og stoppuðum við á ófáum bryggj- unum til að dorga. Bestu minn- ingarnar sem ég á eru með þér og ömmu á ferðalögum og í bú- staðnum sem þú og amma smíð- uðuð. Bústaðurinn er uppá- haldsstaðurinn minn. Allt er svo friðsælt og yndislegt þar og eru minningar og dvöl þar endalaus uppspretta hlýju og gleði. Þú þreyttist aldrei á að eyða tíma með okkur og hafðir alltaf áhuga á öllu sem var í gangi í lífi okkar. Það sem einkenndi þig ævinlega var mikil gleði og manni leið alltaf svo vel í návist þinni, hvort sem við vorum að kveikja upp í arninum eða elda kakó saman. Þú varst líka alla tíð mikill dýravinur og máttir ekkert aumt sjá. Ég man þegar við bjuggum til heilu réttina fyrir fuglana úti í garði og kett- ir hverfisins fengu iðulega rjóma þegar þeir mættu á pall- inn hjá þér og ömmu. Ég á svo margar góðar minn- ingar að þær munu ylja mér alla ævi. Ég hef aldrei kynnst neinum jafn hjartahlýjum og yndislegum. Það að hafa haft þig í lífi mínu hefur gert mig að betri manneskju og þú átt mjög stóran hlut í mér. Flestir sem þekkja þig eru sammála því að þú varst engill á jörðu sem áttir þér engan líkan. Ég hef ekki nógu sterk orð til að lýsa því hversu mikið ég elska þig og hversu mikilvægur þú ert mér. Ég veit að þú vakir yfir mér og fylgist áfram með öllu. Ég mun geyma þig í hjarta mínu og sakna þín og elska þar til við hittumst aftur. Góða nótt, elsku afi minn. Takk fyrir allt. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Eydís Ósk. Hann Konráð Guðmundsson, eða Konni eins og hann var allt- af kallaður, er látinn. Konni var einstakur dáðadrengur og hvers manns hugljúfi. Hann var ein- staklega greiðvikinn, barngóð- ur, ávallt með ráð undir rifi hverju, alltaf kátur og óspar á að segja skemmtisögur. Hann var hagleiksmaður mikill og ber sumarbústaður þeirra hjóna þess augljós merki. Það verður erfitt fyrir Ellu að sjá á eftir honum Konna sínum en ég veit að barnabörnin þeirra og allt þeirra góða fólk á eftir að hugsa vel um hana. Hafðu þökk fyrir allt og allt, elsku Konni, þeir sem á móti þér taka núna eru heppnir að fá þig í hópinn. En hamingjan geymir þeim gullkransinn sinn, sem gengur með brosið til síðustu stundar, fær síðan kvöldroða á koddann sinn inn, kveður þar heiminn í sólskini og blundar. (Þorsteinn Erlingsson) Lea, Óli og börn. Konráð Guðmundsson, fyrr- verandi tengdafaðir minn, hefur kvatt þennan heim og verður hans sárt saknað. Konna kynnt- ist ég aðeins 17 ára gömul. Ég var ósköp feimin og kvíðin þeg- ar ég hitti þau hjónin fyrst eins og flestar tengdadætur. Það kom þó fljótt í ljós að það væri óþarfi. Þau hjónin tóku mér opnum örmum og á einhverjum tímapunkti tók Konni mig afsíð- is og sagði mér að sama hvað myndi gerast þá yrði hann allt- af vinur minn. Þetta loforð stóð hann svo sannarlega við. Hann reyndist mér og mínum ávallt hinn besti vinur. Um þennan ljúfa mann á ég margar minn- ingar en skýrust er samt stund- in þegar hann vissi að ég væri ófrísk og að hann ætti von á sínu fyrsta barnabarni. Þá sett- ist hann við píanóið og spilaði og söng en þetta var í eina skiptið sem ég sá hann spila á píanó. Á þessu augnabliki var gleðin mikil. Þó að leiðir okkar Brynjars skildi stóðu Ella og Konni sína vakt sem amma og afi og stend ég í mikilli þakkarskuld við þau. Konni var hjálpsamur við alla sem hann þekkti eins og ég og mín fjölskylda áttum eftir að kynnast á meðan honum entist þrek. Sælureitur þeirra hjóna á Laugarvatni er einstakur. Þar skín umhyggja þeirra Konna og Ellu af öllu og handbragð þeirra fer ekki framhjá neinum. Undanfarin 36 ár hef ég, fjöl- skylda mín og vinir notið þess að skreppa austur og hvíla okk- ur og skemmta og fyrir það er ég þakklát. Ég vil enda þessa grein á orðum Gylfa, eiginmanns míns, en Konni var honum ómetan- legur alla tíð. Sunnudaginn 13. nóvember sl. sat Gylfi í svefn- herbergi þeirra hjóna og héld- ust þeir í hendur. Allt umhverf- ið var svo fallegt og hreint, Ellu og Kiddý og stelpunum til fyr- irmyndar. Á þessum tímapunkti var ljóst að Konni ætti ekki langt eftir en hann fékk að kveðja á sínu heimili umvafinn sínu fólki. Þá sagði Gylfi: „Konni minn, nú uppskerð þú eins og þú sáðir“ og Konni kreisti þá hönd mannsins míns. Þó að við hefðum öll viljað hafa hann lengur hjá okkur þá var kallið komið. Takk fyrir allt. Þín vinkona, Anna Þóra Björnsdóttir. Konráð Guðmundsson Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, FRIÐGEIR BJÖRGVINSSON, Orrahólum 7, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli föstudaginn 18. nóvember. Útförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju miðvikudaginn 30. nóvember klukkan 13. . Sigríður Árnadóttir, Helgi Friðgeirsson, Margrét S. Bárðardóttir, Erlingur Friðgeirsson, Guðrún Eiríksdóttir, Ástríður Friðgeirsdóttir, Pétur L. Friðgeirsson, Árni M. Friðgeirsson, Björk Mýrdal, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarn. Faðir okkar, sambýlismaður, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, ÁRMANN SIGURÐSSON, Reykjavíkurvegi 52, Hafnarfirði, sem lést 21. nóvember síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 29. nóvember næskomandi klukkan 13. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á MS félag Íslands, 568-8620. Fyrir hönd aðstandenda, . Kristján, Sigurbjörg og Ægir Ármannsbörn, Sigríður Hrólfsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.