Morgunblaðið - 28.11.2016, Qupperneq 33
DÆGRADVÖL 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2016
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þeir eru margir sem bíða í ofvæni eft-
ir að þú segir skoðun þína á ákveðnu máli.
Leyfðu einhverjum að njóta þess með þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Farðu varlega í öllum samskiptum við
aðra og mundu að ekkert er sem sýnist.
Gefðu þér því tíma til þess að kanna innihald-
ið áður en þú gerir endanlega upp hug þinn.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Mikilvægar samræður eiga sér
stað. Betra er að verja tíma sínum fyrir þá
sem það kunna að meta. Skoðaðu dæmið af
fullri af skynsemi.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er mikilvægt að gæta jafnvæg-
isins á milli starfsmetnaðar og innri vellíð-
unar. Allir geta gert mistök, líka þú.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Dagurinn hentar vel til skemmt-
anahalda, daðurs og samvista með börnum.
Reyndu að umbera eigin duttlunga og sér-
visku annarra.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er engin ástæða til annars en
brosa framan í lífið þessa dagana. Gerðu þér
far um að halda hlutunum í jafnvægi þegar til
lengri tíma er litið.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ekki láta sjálfsvorkunnina ná tökum á
þér. Ef þú kemst ekki út úr aðstæðum sem
eru hundleiðilegar gerðu þá eitthvað skrýtið
til að hressa upp á liðið.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þegar allt kemur til alls er það
vináttan sem skiptir mestu máli. Til allrar
hamingju kanntu vel við að grúska í einrúmi
þessa dagana.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú gætir orðið fyrir óvæntum
fjárútlátum og ættir að ræða það við fjöl-
skylduna. En það er ekki um annað að ræða
en taka ákvörðun fyrr en seinna.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú mætir sterk/ur til leiks. Sókn
þín eftir innri friði er vissulega aðdáunarverð,
en hvar kemur merkjavaran inn í myndina?
Það verður áskorun að samþætta andlega
iðkun og áhuga á verslun.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þegar hamingja þín rokkar jafn
mikið og gengið, er hún líklega tengd ein-
hverju utanaðkomandi. Kláraðu rifrildið og
gleymdu því svo.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er nauðsynlegt að eyða tíma með
ungviðinu og um leið að finna barnið í sjálfum
sér. Reyndu að koma persónu, sem skiptir
þig máli, í skilning um að hún sé þér mik-
ilvæg.
Um næstliðna helgi villtist rjúpna-skytta á fjöllum austur á landi.
Hundruð björgunarsveitarmanna
voru ræst út og eftir leit í tæpa tvo
sólarhringa fannst maðurinn. Meðan
á aðgerðum stóð beið þjóðin fregna
og eðlilega stóðu myndatökumenn
sjónvarps við Landspítalann í Foss-
vogi þegar þyrla frá Landhelgis-
gæslunni kom suður með skyttuna og
náðu myndum af tilfinninga-
þrungnum endurfundum ástvina. Við
myndbirtingar af slíku hefur mað-
urinn sjálfur gert athugasemdir svo
og forsvarsmenn sjúkrahússins.
x x x
Alltaf má ræða efnistök í einstakafréttum eða hvort umfjöllun hafi
verið ónærgætin, svo sem í framan-
greindu máli. En úr því lyktir þess
urðu góðar var maðurinn sem bjarg-
aðist dagstund eina almenningseign,
hvort sem honum líkar betur eða
verr. Enginn verður neyddur til þess
að segja frá og það sjónarmið ber að
virða. Fleiri vilja þó tala og það er
mat Víkverja að heilbrigðisstarfsfólk,
sálgætendur og fleiri slíkir séu miklu
viðkvæmari fyrir umfjöllun en skjól-
stæðingar.
x x x
Í síðustu viku var í ÞjóðminjasafniÍslands opnuð sýning sem ber yfir-
skriftina Ísland í heiminum, heim-
urinn í Íslandi. Þar er brugðið ljósi á
líf og örlög fólks frá fjarlægum slóð-
um, sem komið hefur hingað norður í
svalann til búsetu og starfa – og svo
þeirra landa okkar sem róið hafa á ný
mið í fjarskanum. Þetta er áhugaverð
sýning, nema hvað allskonar útlist-
anir um kynþáttahyggju, útlendinga-
fordóma og fleiri félagsleg sjónarmið
eru fulláberandi og nálgast að bera
sýningarefnið sjálft ofurliði.
x x x
Um sýningu þessa vill Víkverjisegja að honum hefði dugað að
sjá myndir af fólkinu í sínum nýju að-
stæðum án þess að miklar útskýr-
ingar eða skilaboð fylgdu. Ein mynd
segir meira en þúsund orð. Í dag er
hins vegar til siðs að lauma allskonar
skilaboðum í sjónvarpsþætti,
kennsluefni, fréttir og víðar í þágu
réttindabaráttu í víðustu merkingu.
Slíkur skoðanahernaður er vond og
voðaleg þróun. víkverji@mbl.is
Víkverji
Náðugur og miskunnsamur er Drott-
inn, þolinmóður og mjög gæskuríkur.
(Sálmarnir 103:8)
Enn fjölgar afbrigðum við vísunaum Matthías Mathiesen sem
hér birtist í gær. Atli V. Harðarson,
kennari við Háskóla Íslands, skrifar
mér að í hans huga sé vísan um
skattinn og Matta Matt geymd
svona:
Ofan gefur skatt á skatt
skattalögin þéttast.
Alltaf fitnar Matti Matt,
meðan aðrir léttast.
Atli segist ekki vita eftir hvern
vísan sé – og held ég þeirri spurn-
ingu vakandi. Myndmálið skýrist
með því að rifja upp stöku Stefáns
Ólafssonar:
Ofan drífur snjó á snjó,
snjóar hylja flóató,
tóa krafsar móa mjó,
mjóan hefur skó á kló.
Bólu-Hjálmar herti á klónni:
Nógan gefur snjó á snjó,
snjóum vefur flóató,
tóa grefur móa mjó,
mjóan hefur skó á kló.
Kristján Runólfsson yrkir á
Boðnarmiði, en vísur af þessu tagi
eru algengar meðal hagyrðinga:
Ég vil reyna að yrkja óð,
er það létt og gaman,
ennþá leynist í mér glóð,
orðin detta saman.
Sigurlín Hermannsdóttir bætti
við:
Ég reyni oft að yrkja smá
en ekkert gengur.
Það er alveg af og frá
ég yrki lengur.
Og Ásta Sverrisdóttir:
Morgnum reddar mjöðurinn góði.
Mikið finnst mér gaman
að njóta orða í litlu ljóði.
Laglega raðað saman!
Þetta rifjar upp fyrir mér vísur
sem ég orti í MA ritstjóri Gambra –
ekki svo að skilja að þær séu merki-
legar en ég raula þær oft:
Mig langar að yrkja kvæði
um lífsins kvöl og pín
þó í því sjái ég reyndar
ekkert nema grín.
En það er um döpur kvæði
þetta með tragísk ljóð
að sjálfsagt rennur aldrei
saklaust hjartablóð.
Samt verð ég að yrkja kvæði
því veldur blaðið mitt
því kaupendum fjölgar stöðugt
og kaupendur heimta sitt.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Enn um Matta Matt og
vísnagerð
Í klípu
„ÞEGAR ÉG BAÐ HANN UM
SKILRÍKI HRÆKTI HANN Á MIG.
ÞANNIG FENGUM VIÐ LÍFSÝNI.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„BARA ÞETTA VENJULEGA LIÐ SEM
KEMUR Á FULLU TUNGLI.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar ykkur líður
best saman.
ÞÚ ERT
SEINN.
EN AÐALATRIÐIÐ ER AÐ
ÉG HAFÐI EKKERT SKÁRRA
AÐ GERA!
ÉG STÚTA
ÞÉR!
HRÓLFUR!
EIRÍKUR
BOGMAÐUR ER
SÆRÐUR!
STÖÐVAÐU BLÓÐ-
FLÆÐIÐ OG BITTU
FYRIR SÁRIÐ!
BJARGAÐU
ÞESSU...
LOSAÐU
HANN!
ÞETTA VAR
ÞÍN HUGMYND!