Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Side 45

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Side 45
Lífsstíll 37Helgarblað 27. febrúar–2. mars 2015 Útlitsmiðuð sjálfsmynd Í vikunni sem nú er að líða und­ ir lok áttu sér stað stórir við­ burðir í heimi stjarnanna. Bæði hér heima á Edduverðlauna­ hátíðinni og í Hollywood þegar Óskarsverðlaunin voru afhent. Við þessi tilefni er athyglis­ vert að skoða með kynja­ gleraugum þá athygli sem stjörnunum er sýnd. Samfélags­ miðlarnir hafa logað og sitt sýn­ ist hverjum í þessu samhengi. Því er þó ekki að neita að konur fá meiri athygli fyrir kjólana og útlitið á meðan meiri tími gefst til þess að ræða framlag karl­ anna til greinarinnar og kom­ andi starfsferil. Við getum að sjálfsögðu þrætt um og rætt þessi mál í þaula, en verðum þó flest að sammælast um að útlitskröf­ ur til kvenna eru snaralvar­ legar og oft og tíðum skaðlegar sjálfsmynd þeirra og líkamlegri heilsu. Nokkuð sem til dæmis viðtalsröð í Kastljósi vikunnar staðfesti í viðtali við unga konu sem fékk hjartastopp vegna átröskunar með þeim alvar­ legu afleiðingum að hún getur í dag hvorki gengið né tjáð sig al­ mennilega. Ég hef oft fengið spurn­ ingar um hvernig við getum snúið þessari þróun við og leyft öðrum þáttum en útlitinu að stýra því hvort við séum með jákvæða eða neikvæða sjálfs­ mynd. Og ef ég bara vissi svarið! Það sem ég þó legg til er að við lítum öll sem einstaklingar inn á við, skoðum sjálfsmynd okkar og þá þætti sem henni stjórna. Eðlilegt er að fjöl­ skyldan, áhugamálin, heilsan, samfélagsstaða og vinir komi þar við sögu en hjá mörgum stelpum og konum fær útlitið að ráða allt of miklu um það hvernig sjálfsmyndin mótast og þróast. Aftur á móti getum við öll með æfingu og stöðugri með­ vitund reynt að gefa öðrum þáttum meira vægi. Ef við hrós­ um öðrum fyrir eiginleika sem eru óháðir útliti þeirra og ef við fókuserum á það sem við sjálf erum góð í þá fær það ósjálfrátt að hafa meiri áhrif en ytri þætt­ ir eins og útlit. Þá getur skipt sköpum að stunda áhugamálin og njóta augnabliksins. Eins er sniðugt að snúa umræðu sem þér finnst of útlitsmiðuð upp í efni sem tengjast hæfileikum og gjörðum. Þetta er sérstaklega mikilvægt þegar kemur að upp­ eldi barnanna okkar. Með því að breyta þessari áherslu innra með okkur erum við að hafa áhrif á samfélagið í heild sinni. Margt smátt gerir eitt stórt og ef við byrjum á okk­ ur sjálfum þá hlýtur það að vera skref í rétt átt. Út fyrir kassann Kristín Tómasdóttir utfyrirkassann@gmail.com Á öllum aldri Konur í hópnum eru á aldrinum 12 ára og upp í fimmtugt. Konur ráðleggja hver annarri Áslaug María stofnaði hópinn Beauty-tips Á örfáum vikum hefur hópur­ inn Beauty­tips á Facebook haslað sér völl sem stærsti umræðuþráður ungra kvenna á Íslandi. Fyrir tilstilli Áslaugar Maríu Agnarsdóttur, sem stofnaði hópinn á eigin spýtur, hefur hópur­ inn vaxið stöðugt frá því um miðjan febrúar og telur nú um 23.000 kon­ ur. Áslaugu Maríu þótti vanta upp­ byggilegan vef fyrir konur þar sem þær gætu skiptst á ráðum og hvatn­ ingu um málefni tengd heilsu, út­ liti og tísku. Viðtökurnar stóðu ekki á sér og umræður sem hafa skapast innan hópsins eru afar fjölbreytt­ ar. Í hópnum eru engar auglýsingar leyfðar heldur er þetta vettvangur ráðlegginga, kvenlægrar samstöðu og uppbyggilegrar umræðu. „Hugmyndin var bara að hafa þetta litla grúppu þar sem stelpur geta skipst á ráðum. Svo hefur hópurinn þróast með tímanum og umræðurnar spanna allt mögu­ legt, til að mynda andlega heilsu, félagslíf og alls konar pælingar sem tengjast samfélaginu og samskipt­ um. Stelpur skiptast líka á reynslu­ sögum, hvort sem þær eru erfiðar, sorglegar eða jákvæðar.“ Hópurinn er lokaður og þurfa meðlimir að óska eftir samþykki til þess að taka þátt í umræðunum. Vegna forvitni karlpeningsins sem tóku meðlimir síðunnar lýðræðis­ lega ákvörðun um að neita karl­ mönnum um aðgang að hópnum. „Í upphafi var stefnan ekki tek­ in á sérstakan markhóp, fyrir utan að svæðið ætti bara að vera tileink­ að stelpum. En svo fóru strákar að tínast inn og mjög margir kvört­ uðu undan því að stemningin væri að breytast. Það er bara einfaldlega þannig að það var bara haldin kosn­ ing og strákarnir látnir fjúka. Nú eru bara konur á öllum aldri inni á síð­ unni, alveg frá 12 ára og upp í kon­ ur á fimmtugsaldri en þær fylgjast mismikið með og taka mismikinn þátt.“ Til þess að sækja um þátttöku í hópnum þarf Facebook­vinkona þín sem er nú þegar meðlimur í hópnum að sækja um aðgang fyrir þig. n Erna er með leiklistar­ bakteríuna á háu stigi Erna Björk ver stærstum hluta frítíma síns í áhugamannaleikhúsi L eiklist heillar marga, hvort sem það er að horfa á gott leikverk eða taka þátt í upp­ setningu þess. Færri stunda leiklist sem áhugamál enda krefst uppsetning á leikverki mik­ illar vinnu, viðveru og tíma. Erna Björk Hallbera Einarsdóttir grunn­ skólakennari setur þetta ekki fyrir sig og tekur þátt í áhugamannaleik­ húsi af krafti. Erna Björk vinnur fullt starf sem deildarstjóri við Barnaheimilið Ós. Frítíma sínum ver Erna að miklu leyti í áhugamálið sitt en hún hef­ ur á undanförnum árum starfað með ýmsum áhugamannaleikhóp­ um. Um þessar mundir leikur Erna í verkinu Óþarfa offarsi sem Leikfé­ lag Kópavogs setur upp. Fyrstu skrefin í Rocky Horror „Eins og hjá svo mörgum byrjaði þetta á menntaskólaárunum. Fram­ haldsskólinn í Vestmannaeyjum setti upp Rocky Horror í Leikfélagi Vestmannaeyja og þar steig ég mín fyrstu skref á sviði í litlu sætavísu­ hlutverki. Það var þó ekki fyrr en þremur árum seinna sem leiklistin kveikti fyrst virkilega í mér en þá setti Leikfélag Vestmannaeyja upp Gauragang undir leikstjórn hins of­ ursnjalla Agnars Jóns Egilssonar og ég landaði hlutverki Lindu, kær­ ustu Orms. Eftir að hafa hneigt mig á sviði í frumsýningarvímu var ekki aftur snúið, ég var komin með leik­ listarbakteríu á háu stigi.“ Erna íhugaði leiklistarskólann þegar hún valdi sér nám eftir menntaskóla en kennaranámið heillaði líka og varð ofan á. Aftur á móti hefur Erna sótt fjölda nám­ skeiða og verið dugleg að viða að sér leiklistarþekkingu samhliða kennarahlutverkinu. „Ég hef verið dugleg að sækja hin og þessi leiklistarnámskeið og sumarfríin hafa verið vel nýtt í slíka vinnu. Ég læt mig samt dreyma um að komast í sumarskóla erlendis , í það minnsta í aðeins lengra og meira krefjandi nám í leiklist en ég hef prófað hingað til. Trúðaskóli er til dæmis eitthvað sem ég held að gæti verið mjög lærdómsríkt. Ég get einhvern veginn aldrei sleppt tak­ inu af leiklistinni, þannig að segja má að ég sé 100% kennari í 100% áhugaleik.“ Leikhúsið er fyrir alla Erna Björk mælir svo sannarlega með áhugaleikhúsinu fyrir alla og hvetur fólk til þess að standa upp úr sófanum á kvöldin og kynna sér allt sem í boði er fyrir áhugaleikfólk á Íslandi. „Áhugaleikhússenan á Íslandi er virkilega flott og vönduð. Það eina sem maður þarf að gera er að hafa samband og mæta, þarna hittist fólk á öllum aldri og úr öll­ um starfsstéttum. Á vef Banda­ lags íslenskra áhugaleikara má einnig finna fréttir um starfsemi áhugaleikhúsa og svo er „Google“ frænka alltaf góð ef fólk er að leita sér að leikfélagi. Leikhúsið er fyrir alla.“ n Fékk bakeríuna Eftir að hafa tekið þátt í uppsetningu á Rocky Horror í menntaskóla var ekki aftur snúið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.