Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Síða 13
Fréttir 13Helgarblað 23.–26. október 2015 Stjórnvöld óttuðust brunaútsölu á bankanum til erlendra fjárfesta að kröfuhafar stýrðu söluferlinu n Glitnir gat ekki veitt ríkinu 37 milljarða í reiðufé valda að fara fram á það, sem hluta af þeim stöðugleikaskilyrðum sem búið þyrfti að uppfylla, að þeim yrði gert að framselja bankann til ríkis- ins. Þeir voru hins vegar í aðþrengdri stöðu. Slitabúið þyrfti að öðrum kosti að greiða 39% stöðugleikaskatt á heildareignir sínar (1.000 millj- arðar króna) ef ekki tækist að ljúka nauðasamningum fyrir árslok og inna af hendi stöðugleikaframlag til stjórnvalda – og tíminn var ekki að vinna með þeim. Þeir höfðu ekki far- ið varhluta af því að á Íslandi gætti vaxandi efasemda – sem birtist bæði í umræðum á Alþingi og í málflutn- ingi Indefence-hópsins – um að rétt væri að veita slitabúunum undan- þágu frá höftum til að ljúka skulda- skilum sínum með greiðslu stöð- ugleikaframlags þegar flest benti til þess að stöðugleikaskatturinn gæti „skilað“ ríkissjóði mun hærri fjár- hæðum í krónum talið. Fyrir kröfuhafa Glitnis, sem eru að langstærstum hluta erlendir vog- unarsjóðir, voru nokkrir hagsmun- ir í húfi að geta selt Íslandsbanka til erlendra fjárfesta og þannig feng- ið hluta af söluandvirðinu til sín í gjaldeyri. Þannig var gert ráð fyrir því í tillögum kröfuhafa frá því í júní, sem birtar voru á vef fjármálaráðu- neytisins, að ef bankinn yrði seldur til erlendra aðila skyldi 60% af sölu- andvirðinu renna til stjórnvalda – þó aldrei meira en sem næmi 60% af bókfærðu virði bankans – en af- gangurinn færi til kröfuhafa í erlendri mynt. Slík sala hefði því getað aukið endurheimtur kröfuhafa, líklega um tugi milljarða, borið saman við að selja hann til innlendra fjárfesta. Takk, en nei takk! Það voru hins vegar einnig önnur – og veigamikil – atriði sem réðu úr- slitum um að farin var sú leið að rík- ið tæki yfir allt hlutafé Íslandsbanka. Samkvæmt upphaflegum tillögum að stöðugleikaframlagi Glitnis átti slitabúið meðal annars að framselja krónuinnlán sín hjá Íslandsbanka að fjárhæð um 37 milljarða króna til stjórnvalda í formi reiðufjár. Það tók hins vegar breytingum þegar í ljós kom að Íslandsbanki taldi of mikla áhættu fólgna í því, vegna lausafjár- stöðu sinnar, ef Glitnir tæki sam- stundis út öll innlán sín í krónum. Til viðbótar átti bankinn einnig að greiða út arð í erlendri mynt að fjár- hæð 16 milljarða til kröfuhafa Glitn- is sem yrði endurfjárfestur í víkjandi fjármögnun á bankann í að lágmarki tíu ár. Samkvæmt breyttum tillögum kröfuhafa Glitnis hefur verið fallið frá þessari ráðstöfun. Að frumkvæði Íslandsbanka, eins og hefur áður verið ítarlega fjallað um á síðum DV, lagði bankinn til að Glitnir fengi afhent tíu ára skulda- bréf í krónum, útgefið af Íslands- banka, sem slitabúið myndi síðan framselja til stjórnvalda. Þessari til- lögu var alfarið hafnað af íslenskum stjórnvöldum. Ekki var talið forsvar- anlegt að ríkið tæki á sig þá áhættu sem fælist í því að að fá afhent tíu ára skuldabréf sem enginn virkur markaður er með og því alls óvíst hvaða verð gæti fengist fyrir bréfið og hvaða vaxtakjör það myndi bera. Frekar eignarhald, en tíu ára bréf Seðlabankinn hafnaði þessari til- lögu formlega í bréfi sem var sent á slitastjórn Glitnis um miðjan sept- embermánuð. Þegar DV leitaði eft- ir svörum frá Íslandsbanka í síðasta mánuði um hvernig bankinn ætlaði að bregðast við þessari stöðu sagð- ist bankinn meðal annars ekki geta svarað því hvort til greina kæmi að bankinn myndi sjálfur finna kaup- anda að skuldabréfinu eða að farin yrði sú leið, eins og upphaflega stóð til, að Glitnir tæki út krónuinnlán sín hjá bankanum sem yrðu síðan af- hent ríkinu. Fljótlega varð því ljóst að vegna áhrifa á lausafjárstöðu Íslands- banka, sem hefur aukið útlán sín umtalsvert á síðustu mánuðum og misserum, þá gat Glitnir ekki stað- ið við þá tillögu að afhenda ríkinu 37 milljarða krónu í formi reiðufjár. Í stað þess að fara að samþykkja að eignast tíu ára skuldabréf á bank- ann, eins og Íslandsbanki hafði lagt til, og þá eigendaáhættu sem hefði fylgt því að eiga slíkt bréf sem enginn markaður er með töldu stjórnvöld því einfaldlega rökréttara að bank- inn færi til ríkisins sem hluta af stöðuleikaframlagi Glitnis, sam- kvæmt heimildum DV. Hærra stöðugleikaframlag Glitnis Hvaða áhrif hinar breyttu tillögur kröfuhafa Glitnis munu hafa á þá fjárhæð sem stjórnvöld fá sem hluta af stöðugleikaframlagi slitabúsins er erfitt að segja fyrir um á þessari stundu. Það mun einkum ráðast af söluverði Íslandsbanka þegar að því kemur að stjórnvöld losa um hlut sinn í bankanum. Samkvæmt fyrri tillögum áætlaði slitastjórn Glitn- is að stöðugleikaframlag þess yrði á bilinu 205 til 255 milljarðar króna en líklega mun sú fjárhæð núna verða hærri – upp á einhverja tugi milljarða – eftir að ákveðið var að framselja eignarhlutinn í Íslands- banka til ríkisins. Að sögn kunnugra er hins vegar vitað að mikið af innlendum eign- um Glitnis, meðal annars stórir eignarhlutir í íslenskum félögum, eru bókfærðar á mun lægra verði en raunverulegt markaðsverðmæti þeirra er – og því ljóst að uppgef- ið stöðugleikaframlag vanmetur að einhverju marki þau verðmæti sem verða afhent stjórnvöldum. n Steinar Þór kemur aftur að haftavinnu fyrir stjórnvöld Á meðal þeirra sem hafa verið fengnir til að veita íslenskum stjórnvöld- um ráðgjöf í tengslum við vinnu vegna beiðni slitabúa föllnu bankanna um undanþágu frá höftum er Steinar Þór Guðgeirs- son, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi formaður skilanefndar Kaupþings. Samkvæmt heimildum DV hefur Steinar Þór á undanförnum vikum unnið að því að fara yfir þá nauðasamninga sem slitabúin hafa skilað til Seðlabanka Íslands samhliða undanþágubeiðnum þeirra frá höftum. Þar er um að ræða tugi ólíkra skjala sem telja í heildina yfir mörg hundruð blaðsíður. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem stjórnvöld falast eftir aðstoð Steinars þegar kemur að málefnum er tengjast losun hafta. Þannig var greint frá því í fjölmiðlum í mars 2013, skömmu fyrir alþingiskosningar, að fjármála- og efnahagsráðuneytið hefði ráðið Steinar sem ráðgjafa í tengslum við mögulegt samkomulag við kröfuhafa gömlu bankanna og losun hafta. Sú vinna stóð hins vegar stutt yfir enda töldu þá- verandi stjórnvöld ljóst að ekki væri fært að ljúka því verki áður en nýtt kjörtímabil hæfist. Beðið eftir Seðlabankanum Í gær var vinna Seðlabanka Íslands- banka við að leggja mat á undanþágu- beiðnir slitabúa allra bankanna og stöðugleikaframlag þeirra til ríkisins á lokametrunum. Þegar henni er lokið er efnahags- og viðskiptanefnd boðuð á fund með fjármálaráðherra og er búist við því að það muni gerast í dag, föstudag, samkvæmt heimildum DV. Lengi hafði verið ljóst að mesta vinnan myndi fara í að leggja mat á undanþágubeiðni Glitnis frá höftum. Innlendar eignir búsins eru mun meiri en hinna slitabúanna og þá var stöðugleikaframlag Glitnis mun flóknara í útfærslu borið saman við Kaupþing og gamla Landsbankann (LBI). Fyrir liggur að slitastjórn gamla Lands- bankans hefur boðað til kröfuhafafundar 17. nóvember næstkomandi þar sem til stendur að greiða atkvæði um nauða- samning búsins og stöðugleikaframlag til stjórnvalda. Samkvæmt áætlun LBI er gert ráð fyrir því að framlagið nemi tæplega 15 milljörðum króna. Sú fjárhæð, eins og áður hefur verið útskýrt á síðum DV, vanmetur hins vegar verulega þær eignir í krónum sem viðbúið er að muni renna til ríkisins. Töluverður hluti krónueigna LBI stend- ur til tryggingar vegna ágreinings um forgangskröfur sem lýst var í búið í formi sérstaks varasjóðs. Samkvæmt gögnum frá slitastjórn búsins, sem DV hefur undir höndum, nam varasjóðurinn um 69 milljörðum króna í lok fyrsta ársfjórð- ungs. Sjóðurinn er að stærstum hluta í krónum, eða tæplega 53 milljarðar króna. Stærstu óútkljáðu dómsmálin beinast að forgangskröfum Kaupþings, Glitnis, BG Holding og Baugs Group sem slitastjórnin hefur hafnað. Litlu máli skiptir hvernig þeim málum mun lykta fyrir hagsmuni ís- lenskra stjórnvalda – krónurnar í varasjóði LBI munu ávallt með einum eða öðrum hætti verða afhentar íslenska ríkinu. Ekki hefur verið ákveðið hvenær kröfuhafafundur Kaupþings fer fram en samkvæmt tímaætlun slitastjórnar er gert ráð fyrir því að það verði átján virkum dögum eftir að Seðlabankinn hefur sam- þykkt undanþágubeiðni slitabúsins. Stöðugleikaframlag Kaupþings, sem slitastjórnin hefur áætlað að nemi 120 milljörðum króna, felst sem kunnugt er fyrst og fremst í því að ríkið mun fá að nánast öllu leyti þá fjármuni sem munu fást við sölu Kaupþings. Ekki stendur til að ríkið yfirtaki Arion banka, líkt og í tilfelli Íslandsbanka, heldur verður það í höndum hins nýja eignaumsýslufélags Kaupþings eftir nauðasamninga að selja hlutinn. Fara ekki í dómsmál út af bankaskattinum Þær fjárhæðir sem slitabú gömlu bank- anna hafa kynnt að þau muni greiða til ríkisins í formi stöðugleikaframlags taka ekki tillit til þess sem þau þurfa að greiða í sérstakan bankaskatt, sem leggst meðal annars á skuldir fjármálafyrirtækja í slita- meðferð, vegna starfsemi þeirra á þessu ári. Samtals nemur sú upphæð tæplega 30 milljörðum króna. Hluti af því samkomulagi sem slitabúin gera við stjórnvöld samhliða því að inna afhendi stöðugleikaframlag er einnig að falla frá fyrirhuguðum dómsmál- um sem sum þeirra höfðu áformað að höfða á hendur íslenska ríkinu vegna bankaskattsins. Fjármálaráðherra Bjarni Benediktsson hefur sagt að það hafi verið óraunhæft að kröfuhafar Glitnis gætu tekið allt söluandvirði Íslandsbanka úr landi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.