Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Blaðsíða 16
Helgarblað 23.–26. október 201516 Fréttir Erlent
Sálfræðihernaður í
Mið-Austurlöndum
n Engillinn í Kobane fæddist og féll n Fallni engill dauðans berst gegn ISIS
Ó
öldin í Mið-Austurlöndum
virðist engan endi ætla að
taka. Sögur af grimmdar-
verkum skekja fjölmiðla
reglulega og ISIS-samtökin
eru orðin eins og samnefnari fyrir
hreinræktaða illsku. Eins og algengt
er í stríðsátökum þá verða sumir
vígamenn þekktari en aðrir og oftar
en ekki er það með ráðum gert hjá
hæstráðendum. Tilgangurinn er að
skapa ímynd sem blæs samherjum
baráttuanda í brjóst en dreifir ótta og
efa um lið andstæðinganna. Stríðsá-
tök samtímans fara ekki síður fram
fyrir framan tölvuskjái, lyklaborð og
snjallsíma.
Sálfræðin skiptir máli
Þetta ímyndarstríð hefur hins vegar
alltaf verið hluti af stríðsátökunum,
sálfræðin skiptir verulegu máli. Sem
dæmi má nefna Manfred von Richt-
hofen sem skaut mönnum skelk í
bringu skýjum ofar sem Rauði bar-
óninn á tímum fyrri heimsstyrjaldar-
innar. Líklega hefur ofsahræðsla
gripið um sig meðal flestra flug-
manna í liði andstæðinganna þegar
rauð flugvél sást við sjóndeildar-
hringinn. Von Richthofen var ein
helsta stríðshetja Þjóðverja í styrj-
öldinni en talið er að hann hafi skot-
ið niður 80 flugvélar. Hann var nán-
ast talinn of mikilvægur til að vera
úti á vígvellinum enda hafði fall hans
slæm áhrif á samherja hans en hvatti
andstæðingana áfram.
Engillinn af Kobane
Áður fyrr var kannski erfiðara að
koma slíkum sögum á hreyfingu,
boðleiðirnar voru seinfarnar, en að
sama skapi illmögulegt að hrekja
þær. Um leið og slíkar sögur fóru að
berast um nánast ómannlega her-
menn þá var ekki hægt um vik að
leita eftir upplýsingum til þess að af-
sanna sögusagnirnar.
Staðan er öðruvísi á okkar
tímum. Saga sem hreyfir við fólki
dreifist með ógnarhraða um sam-
félagsmiðla og fréttaveitur en að
sama skapi er oft og tíðum auðvelt
að hrekja hana ef hún er ekki sann-
leikanum samkvæm. Dæmi um það
er valkyrjan Rehana sem skaust
fram á sjónarsviðið síðla árs 2014.
Rehana birtist fyrst í Twitter-fær-
slu blaðamannsins Pawan Durani,
ásamt meðfylgjandi mynd þar sem
því var haldið fram að hún hefði fellt
100 ISIS-liða í orrustum við borgina
Kobane. Skilaboðin bárust eins og
eldur í sinu á samfélagsmiðlum og
Rehana fékk fljótlega viðurnefnið
„Engillinn af Kobane“. Hún blés
mönnum baráttuanda í brjóst en
nokkru síðar birtist mynd af IS-
IS-liða sem hélt á afhöggnu höfði
ungrar konu sem svipaði nokkuð til
Rehana. Engillinn var fallinn.
Skömmu síðar steig sænski
blaðamaðurinn Carl Drott fram
og upplýsti að hann hefði tekið
myndina fyrr á árinu og hún væri
af konu sem nýlega hefði gengið til
liðs við heimavarnarlið í Kobane.
Hann vissi ekki nafn hennar en full-
yrti að það væri ekki Rehana og taldi
ólíklegt að hún hefði lent í bardaga
og fellt ISIS-liða, hvað þá hundrað.
Engillinn var uppspuni frá rótum.
Andlit andspyrnunnar gegn ISIS
Annar engill er þó raunverulega til
og berst gegn ISIS-samtökunum. Sá
gengur undir nafninu Abu Azrael,
sem þýðir lauslega „fallinn engill
dauðans“ en að auki er hann oft kall-
aður „Hinn írakski Rambó“. Hans
rétta nafn er Ayub Faleh al-
Rubabie og hann er írakskur
ríkisborgari. Talið er að hann
hafi kennt við háskóla áður
en hann varð stríðshetja en
það er óstaðfest. Mikilvægi
hans fyrir íröksk stjórnvöld er
gríðarlegt því Abu Azrael er
andlit andspyrnunnar gegn
ISIS. Í kringum hann hef-
ur skapast fullkomið æði og
til marks um það er ásjóna
hans prentuð á vinsæla
boli í heimalandinu yfirleitt
með textanum „illa tahin“
sem myndi þýða „í hveiti“.
Myndlíkingin er sú að hann
gereyðir óvinunum og mal-
ar þá mélinu smærra. Sam-
félagsmiðlar eru fullir af til-
vísunum í Abu Azrael og myndbönd
af honum á vígvellinum og í fullum
skrúða njóta mikilla vinsælda enda
er snjallsíminn aldrei langt und-
an þegar Fallinn engill dauðans er
annars vegar. Eitt myndband sló sér-
staklega í gegn en þar mátti sjá Abu
Azrael stríða ISIS-liðum í gegnum
talstöð sem hann hafði komist yfir
hjá föllnum vígamanni samtakanna.
Shawarma úr ISIS-liðum
Staðalbúnaður hans er öxi eða sverð
í annarri hendi og kraftmikil vél-
byssa í hinni. Að auki er brosið
og húmorinn hans helstu vopn.
Hann vílar ekkert fyrir sér í baráttu
sinni gegn ISIS, jafnvel að falla nið-
ur á plan samtakanna illræmdu.
Myndband af honum að skera
stykki úr líki ISIS-liða sem hafði ver-
ið hengdur upp og brenndur vakti
mikla athygli í heimspressunni og
var fordæmt í hvívetna. Abu Azrael
sagði við það tilefni að hann vildi
búa til shawarma úr öllum meðlim-
um hryðjuverkasamtakanna. Ímynd
hans er orðin svo sterk og mikilvæg
fyrir baráttuna gegn ISIS að
samtökin eru talin vilja deyða
hann hið fyrsta til þess að
veikja baráttuanda þeirra sem
berjast gegn þeim. Hann segist
þó ekki óttast dauðann heldur
taki honum fagnandi ef það er
vilji guðs.
Jihadi-John fer huldu höfði
ISIS-samtökin stunda grimmt
áróðursstríð og ýta undir
ímyndir sem valda ótta og óhug
meðal andstæðinga þeirra. Þar
fara böðlar samtakanna fremst-
ir í flokki. Sá þekktasti er lík-
lega Jihadi-John sem blessunar-
lega hefur látið lítið fyrir sér fara að
undanförnu. Hulið andlit hans hefur
ratað á síður helstu fjölmiðla heims
enda hefur hann, í hlutverki böð-
uls ISIS-samtakanna, afhöfðað fjöl-
marga gísla í áróðursmyndböndum
samtakanna. Maðurinn á bak við
grímuna er talinn vera Mohammed
Emwazi, 27 ára breskur ríkisborgari,
sem fæddist í Kúveit en flutti ásamt
fjölskyldu sinni til Bretlands ung-
ur að árum. Emwazi var einn af
fjórum enskumælandi fangavörð-
um ISIS-samtakanna sem gengu
undir nafninu „Bítlarnir“. Eðli máls-
ins samkvæmt gengu hinir þrír und-
ir nöfnunum, Paul, George og Ringo
en þess má geta að Ringo Starr var
æfur af bræði yfir þessum viðurnefn-
um. Bandarísk yfirvöld hafa sett
rúmlega milljarð til höfuðs Jihadi-
John en ekkert er vitað hvar hann
er niðurkominn. Það er þó degin-
um ljósara að staðfest fall hans eða
handtaka myndi hafa mikið að segja
enda er böðullinn holdgervingur alls
þess sem Vesturlandabúar fyrirlíta
við ISIS-samtökin.
Jarðýtan af Fallujah
Annar böðull sem nýlega komst í
heimsfréttirnar gengur undir nafninu
Jarðýtan af Fallujah. Enginn veit nafn
hans en viðurnefnið er tilkomið vegna
þess að hann er talinn vera rúmlega
200 kíló að þyngd og á því erfitt með
að falla í hópinn. Hann er ætíð grímu-
klæddur og lætur reglulega mynda
sig með afar öfluga vélbyssu sem yfir-
leitt er komið fyrir á þaki stríðsjeppa.
Óljóst er hvort hann beitir henni á
vígvellinum. Nýlega birtist í erlend-
um fjölmiðlum viðtal við 14 ára sýr-
lenskan dreng sem var tekinn hönd-
um af ISIS-samtökunum. Hann var
pyntaður illa og fékk boð um að ganga
til liðs við samtökin. Boð sem dreng-
urinn hafnaði. Jarðýtan af Fallujah
skar af honum hönd og fót og leyfði
honum síðan að virða fyrir sér líkams-
hlutana eftir ódæðið. Drengnum var
síðan sleppt, en ástæða er til að óttast
um afdrif hans. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
„Gereyðir
óvinunum
og malar þá
mélinu smærra
Írakski Rambó Abu Azrael er
ímynd baráttunnar gegn ISIS-
samtökunum í heimalandinu
og frægðarsól hans skín skært.
„Rehana“ Engillinn af Kobane.
Jihadi-John Hefur farið huldu höfði í rúmt
ár eftir að hafa afhöfðað að minnsta kosti
sjö gísla ISIS-samtakanna í viðurstyggileg-
um myndböndum.
Grimmdarverk Samkvæmt erlendum miðlum er Jarðýtan af Fallujah fræg með eindæmum innan ISIS-samtakanna.
Jarðýtan
af Fallujah
Vígalegur
eða auðvelt
skotmark?