Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Side 22
Helgarblað 23.–26. október 201522 Umræða
Myndin af Jóhönnu
É
g sá myndina um Jóhönnu Sig-
urðardóttur um daginn, þessa
konu sem almenningur álítur
besta forsætisráðherra sem
við höfum haft, samkvæmt ný-
legri könnun. Jóhanna er sannarlega
óvenjuleg manneskja sem mjög þurfti
að berjast fyrir þeim árangri sem hún
náði á þrjátíu ára stjórnmálaferli. Og
maður áttaði sig líka á því við að horfa
á myndina hvað hún er um margt
óvenjulegur pólitíkus og hvað þraut-
seigja hennar og prinsippfesta skilaði
henni langt.
Móðir mín sálug var að upplagi
Alþýðuflokksmanneskja eins og svo
margt fólk af hennar tagi frá Ísafirði.
Hún kaus reyndar fleiri flokka, ekki
síst þá sem gamli skólastjórinn henn-
ar að vestan, Hannibal Valdimarsson,
var í forystu fyrir; ég held að hún móð-
ir mín hafi líka orðið á tímabili örlítið
leið á því hvað hennar gamli flokkur
var lengi límdur upp við Íhaldið – þá
erum við auðvitað að tala um Við-
reisnarárin. En svo var það seinna,
um það bil sem var verið að hleypa
Samfylkingunni af stokkunum, að
haldið var prófkjör í flokknum, með-
al annars um hver ætti að leiða lista í
Reykjavík. Og móðir mín sagðist ætla
að mæta á kjörstað. Ég spurði hvort
hún ætlaði að kjósa fyrrverandi ná-
granna vorn og fornvin, Össur Skarp-
héðinsson? „Nei,“ svaraði mamma
gallhörð á svip, „ég ætla að kjósa Jó-
hönnu. Hún er alltaf svo skelegg á
móti forréttindapakkinu!“
Og held ég að kjarni málsins verði
ekkert betur orðaður er það.
Venjulegir og óvenjulegir stjórn-
málamenn
Ég held að þetta, að Jóhanna var
um sumt óvenjulegur pólitíkus,
hafi lengi staðið henni á einhvern
hátt fyrir þrifum. Eins og það hljóti
að vera svo mikilvægt að stjórn-
málamenn séu venjulegir. Það er til
svona steríótýpa fyrir stjórnmála-
menn; við getum kallað það svona
Einar Kárason rithöfundur skrifar
Þér að segja
„Og maður áttaði
sig líka á því við
að horfa á myndina
hvað hún er um margt
óvenjulegur pólitíkus og
hvað þrautseigja hennar
og prinsippfesta skilaði
henni langt.
Jóhanna og Steingrímur „Á einhvern óskiljanlegan hátt tókst að stilla umræðunni
þannig upp að Icesave hefði verið uppfinning Jóhönnu og Steingríms.“
Láttu þér líða vel
Opnunartími
Virka daga frá kl. 7.00 - 20.00
Laugardaga frá kl. 9.00 - 18.00
Sunnudaga frá kl. 10.00 - 14.00
meccaspa.is
Hótel Saga, Hagatorgi • 107 Reykjavík • Sími: 511 2111 og 862 0822 (utan opnunartíma)
Gildir f
yrir alla
r
tegund
ir af nu
ddi við
afhend
ingu þe
ssa
miða.
20%
afsláttu
r