Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Síða 29
Helgarblað 23.–26. október 2015 Fólk Viðtal 29
Þ
að er í nógu að snúast hjá
tónlistarkonunni Svölu
Björgvinsdóttur. Svala býr
í Los Angeles ásamt eigin-
manni sínum Agli Einars-
syni þar sem líf þeirra snýst um tón-
list og þá helst hljómsveitina Steed
Lord. Þessa dagana hefur Svala
brugðið sér í hlutverk sjónvarps-
stjörnu en hún er ein af söngþjálfur-
um í sjónvarpsþættinum The Voice
sem sýndur er á Skjá einum.
Mikil tilfinningavera
„Ég kann mjög vel við The Voice.
Þetta er áhugavert og gefandi starf
en við vinnum mjög náið með þátt-
takendum þar sem við erum þjálfar-
ar en ekki dómarar. Þetta hefur samt
líka verið erfitt því það komast ekki
allir áfram. Það er bara einn sem
vinnur. Ég er mikil tilfinningavera
sem tengist fólki auðveldlega og hef-
ur fundist það mjög erfitt. En svo hef-
ur verið gaman að fá að kynnast þátt-
takendum sem og öllum þeim sem
standa að þættinum. Við erum orðin
ein stór fjölskylda.
Ég var bara í nokkra daga að
hugsa mig um að vera með. Það
sem stoppaði mig var búsetan. Ég
hef búið í Bandaríkjunum í rúm sex
ár og að ferðast til Íslands í nokkur
skipti til að taka upp þáttinn var dá-
lítið flókið. Ég lifi mínu annasama lífi
hérna úti og var ekki viss um að þetta
gengi upp. En svo talaði ég við um-
boðsmanninn minn og við náðum
að færa hluti til og frá svo allt gekk
upp að lokum. Mér finnst þáttur-
inn mjög jákvæður gagnvart upp-
rennandi söngvurum því þetta snýst
alfarið um að styðja, hjálpa og vinna
náið með þeim. Ég myndi ekki taka
þátt í einhverju neikvæðu eða standa
í niðurrifi á fólki, eins og hefur tíðk-
ast í Idol og X Factor.“
Flugþreyta frá helvíti
Komu hæfileikarnir þér á óvart?
„Ég vissi að það væri fjöldi
hæfileikaríkra söngvara á Íslandi en
ég var ekki viss um að svona margir
af þeim myndu taka þátt í The Voice.
Allir í blindu prufunum voru góðir
og mjög margir á heimsmælikvarða.
Það var því erfitt að velja átta manns
úr 62 þátttakendum. Að snúa baki
í þau og heyra bara sönginn ger-
ir þetta meira ruglingslegt auk þess
sem ég glímdi við flugþreytu frá
helvíti í flestöllum upptökum. Svo
langaði mig líka að snúa mér við 20
sinnum en mátti aðeins velja átta.“
Ertu búin að finna líklegan sigur-
vegara?
„Nokkrir munu fara alla leið, auk
þess sem allir sem komust áfram í
blindu prufunum eiga eftir að verða
áberandi í íslensku tónlistarlífi og ör-
ugglega erlendis líka. Þetta er flott
tónlistarfólk með mikla hæfileika og
drifkraft. Þeir sem ekki komust áfram
eiga örugglega eftir að standa sig vel
líka. Það er afar erfitt að keppa í söng
og eiginlega ekki hægt. Eina leiðin til
að velja á milli fólks er að fara eftir
innsæinu.“
Hvað er að frétta af Steed Lord?
„Allt mjög gott. Við höfum spilað
hér og þar á árinu líkt og vanalega og
vorum til dæmis eitt af aðalböndun-
um á Gay Pride í Kaupmannahöfn í
ágúst þar sem við spiluðum fyrir 30
þúsund manns. Við höfum að undan-
förnu notað tímann í nýju plötuna
okkar og höfum verið að semja með
alls kyns frábærum lagahöfundum
alls staðar að úr heiminum.“
Sama stúdíó og Daft Punk
„Núna erum við í stúdíói að taka
plötuna upp í Hancock Park, þar
sem Daft Punk tók upp tvær síðustu
plötur sínar. Auk þess hefur tónlistin
okkar verið í bíómyndum og sjón-
varpsþáttum á árinu sem er alltaf
gaman. Það er margt spennandi í
gangi hjá Steed Lord.“
Hversu þekkt eruð þið?
„Ég velti því aldrei fyrir mér. En
við spilum úti um allan heim og fólk
borgar sig inn á tónleika hvert sem
við förum og það hlýtur að hafa ein-
hverja merkingu. Þegar við vorum
í tónleikaferð í Rússlandi í fyrra var
uppselt í nokkrum borgum. Annars
er mér slétt sama hvort við erum
fræg eða ekki. Við erum að vinna við
það sem við elskum og það er algjör
draumur.“
Slétt sama um frægð
„Margir halda að þeir sem vinna í tón-
list, kvikmyndum, eða einhvers konar
listum séu að leita að frægð og frama.
Það er ekki þannig hjá okkur og hefur
aldrei verið. Ég hef unnið við tónlist
í 15 ár vegna þess að ég elska það og
það veitir mér hamingju. Að syngja
og semja er mitt líf. Ég gæti ekki lif-
að án þess og mun gera það þangað
til ég hætti að anda. Og að geta lifað á
því sem maður elskar að gera og veit-
ir manni sálarfyllingu er forréttindi.
Fyrir það er ég mjög þakklát.
Það skiptir mig mestu máli að
vera virtur tónlistarmaður sem skilur
eitthvað eftir sig og veitir fólki gleði
og innblástur. Það finnst mér ég gera
með Steed Lord. Ég fékk til dæmis
tölvupóst frá samkynhneigðum ung-
lingi frá Mið-Ameríku sem sagði mér
að tónlistin okkar hefði hjálpað hon-
um í gegnum alvarlegt einelti og erf-
iða tíma í hans lífi. Það er nóg fyrir
mig að heyra svona til að setja allt í
samhengi. Mér er svo slétt sama um
frægð.“
Hvernig er dæmigerður dagur í lífi
Svölu Björgvins?
„Dagarnir mínir eru mjög mis-
jafnir og fara eftir verkefnum hverju
sinni. Þessa dagana vakna ég um níu
leytið og gef kisunni okkar, Lúsí, að
borða. Svo náum við okkur í kaffi og
förum í stúdíóið þar sem við vinnum
fram á kvöld. Aðra daga notum við
til að semja tónlist; ég, Einsi og Eddi,
eða með öðrum lagahöfundum.
Dagurinn fer eftir því sem við erum
að fást við hverju sinni, en eitt er víst
að ég er alltaf að vinna að einhverju.
Ég tek mér eiginlega aldrei frí.“
Frekir vinnualkar
Hvernig er að vinna með manninum
sínum?
„Fyrir mig er það frábært. Við höf-
um unnið saman svo lengi. Áður en
Steed Lord varð til, árið 2006, unn-
um við saman að alls kyns verkefnum.
Einar var mikið að ljósmynda fyrir
blöð á Íslandi og ég var stílistinn. Svo
vorum við líka plötusnúðateymið
Suzy og Elvis og spiluðum mikið á
skemmtistöðum í Reykjavík. Þegar
Steed Lord varð til vorum við orðin
svo vön því að vinna saman og kunn-
um því að fara úr því að vera hjón yfir
í að vera samstarfsfélagar. En við ríf-
umst alveg og erum oft ósammála. Við
erum bæði frek og ákveðin og örlitlir
vinnualkar en þetta virkar fyrir okkur
einhvern veginn. Sem betur fer.“
Er stefnan að flytja aftur heim?
„Ekki í náinni framtíð. Við höfum
búið í Los Angeles í rúm sex ár, höf-
um komið okkur vel fyrir og líður af-
skaplega vel hérna. Ég flutti hingað
fyrst árið 2000, þegar ég skrifaði und-
ir plötusamning við EMI, og hef ver-
ið með annan fótinn hér síðan. Hér
vinnum við og gengur vel og erum
komin með gott teymi í kringum
okkur sem vinnur við að koma Steed
Lord á framfæri.“
Eðlilegt að vera í Bandaríkjunum
„Við Einar höfum dvalið mikið í
Bandaríkjunum frá því við vor-
um smábörn. Systir pabba bjó hér
í 38 ár og ég eyddi mörgum sumr-
um og jólum hjá henni. Foreldrar
Einars áttu hús á Flórída þar sem
hann dvaldi hvert einasta sumar frá
fæðingu til 18 ára aldurs þannig að
okkur þykir frekar eðlilegt að búa
í Bandaríkjunum og viljum hvergi
annars staðar vera. Við eigum líka
afar stóran og góðan vinahóp hér í
Los Angeles sem er svolítið eins og
okkar fjölskylda svo við erum fyrir
löngu búin að skjóta niður sterkum
rótum hérna.“
Hjálparlaust, heimilislaust fólk
Hvað er best við Los Angeles?
„Það sem ég kann best við í Los
Angeles er hvað hér er allt skógi vax-
ið. Veðrið er auðvitað gott og hér er
allt til alls og svo mikið hægt að gera
sér til skemmtunar. Möguleikarnir og
tækifærin eru alls staðar. Í borginni
búa margar milljónir og ég elska að
búa í borg þar sem fjölbreytileikinn
er allsráðandi. Umferðin getur hins
vegar verið leiðinleg. Þetta er mikil
bílaborg og stundum er umferðin
svo hræðileg að maður getur setið
fastur í tvo tíma. Annað neikvætt við
borgina er allt heimilislausa fólkið.
Mér finnst hræðilegt að þessu fólki
sé ekki hjálpað. Ég venst því aldrei að
sjá fólk búa á götunni en það er mik-
ið vandamál hér í borg.“
Eitt barn í byrjun
Stefnirðu á að eignast börn?
„Já, okkur langar að eignast barn
einn daginn. Byrja allavega á einu og
sjá svo til. Margar af vinkonum mín-
um eiga börn en aðrar ekki. En það
er misjafnt, enda á ég vini á öllum
aldri.“
Hvar viltu ala upp börnin þín?
„Ég vil ala upp börnin mín þar
sem ég bý með mínum eiginmanni;
sama hvort það verður í Los Angeles,
á Íslandi eða annars staðar í heimin-
um. Ég á mjög marga vini sem eiga
börn hérna í Los Angeles. Hér er frá-
bært að ala upp börn líkt og í mörg-
um öðrum stórborgum.“
Hvar sérðu þig eftir tíu ár?
„Hamingjusama, vonandi með
eitt barn, að vinna við tónlist og lif-
andi lífinu til fulls. Annars hugsa ég
ekki svo langt fram í tímann. Hver
veit hvað gerist á morgun?“
Býr í vinsælasta hverfinu
Hvernig býrðu?
„Við búum í fallegri íbúð með kis-
unni okkar í hverfi sem heitir Los
Feliz sem er mjög nálægt miðbænum
og West Hollywood. Hér búa margir
listamann og leikarar og hér eru
æðisleg kaffihús, veitingastaðir og
klúbbar. Þetta er eitt vinsælasta
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
„Við erum
bæði frek
og ákveðin og
örlitlir vinnu-
alkar en þetta
virkar fyrir okkur
einhvern veginn
Lifir fyrir tónlistina
Svala ætlar að halda áfram
að semja og syngja þar til
hún hættir að anda.