Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Qupperneq 32
Helgarblað 23.–26. október 201532 Skrýtið Sakamál
n Carl Panzram greip ungur til afbrota n Betrunin reyndist lítt uppbyggileg
C
arl Panzram fæddist 28. júní,
1891, í East Grand Forks í
Minnesota í Bandaríkjunum.
Foreldrar hans voru innflytj-
endur frá Austur-Prússlandi,
sem þá var og hét, og áttu sex börn.
Örbirgð varð hlutskipti fjölskyldunn-
ar og heimilisfaðirinn lét sig hverfa
þegar Carl var átta ára.
Carl tók sín fyrstu skref á stigu af-
brota tólf ára að aldri. Þá braust hann
inn á heimili nágrannanna og tók
ófrjálsri hendi kökur, epli og marg-
hleypu.
Skömmu síðar var hann vistaður í
betrunarskóla, Red Wing, vegna inn-
brota. Betrunin sem boðið var upp
á í skólanum fólst í barsmíðum og
kynferðislegri misnotkun og Carl til-
einkaði sér fræðin. „Veröldin er þessi
skítakamar og ég ætla að skilja eftir
mig eyðileggingu á leið minni um
hann,“ var haft eftir honum.
Innbrot, íkveikjur og nauðganir
Þegar Carl „útskrifaðist“ úr Red
Wing-skólanum tók við nokkurra
ára flökkulíf. Hann fann sér náttstað
um borð í vöruflutningalestum og lét
kylfu ráða kasti hvað varðaði áfanga-
staði. Í einni slíkri ferð var honum
hópnauðgað af samferðamönnum
sínum sem gerði hann að „dapurri,
veikari en vitrari dreng“, eins og
hann orðaði það síðar.
Árið 1915 þvældist hann um
Idaho, Kaliforníu og fleiri ríki með-
fram Columbia-ánni og var iðinn við
íkveikjur og innbrot auk þess sem
hann nauðgaði ótölulegum fjölda
ungra manna og drengja.
Um svipað leyti fékk hann sjö ára
dóm fyrir innbrot og var gert að af-
plána í Oregon-ríkisfangelsinu. Hann
lét illa að stjórn og refsuðu verðirnir
honum með því að láta hann hanga
svo tímum skipti í loftbitum, spúluðu
hann með háþrýstislöngu og settu
hann ítrekað í einangrun.
Flótti og fyrsta morðið
Carl tókst að flýja úr fangelsinu
árið 1918 og skömmu síðar framdi
hann sitt fyrsta morð, en þeim átti
eftir að fjölga svo um munaði. Carl
átti eitthvert fé í handraðanum eftir
árangursríkt rán. Hann festi kaup á
skútu og á börum New York-borgar
fann hann drykkjurúta og munstraði
þá í áhöfn skútunnar. Carl hélt víni
að áhöfninni eftir að landfestum var
sleppt og þegar hún var orðin rænu-
laus nauðgaði hann hverjum og ein-
um – tíu manns – og myrti að því
loknu.
Í kringum 1920 laumaðist hann
um borð í skip sem var á leið til
Angóla, sunnarlega á vesturströnd
Afríku, sem þá var portúgölsk ný-
lenda. Hann fór í land í Lobito Bay og
hafði ekki dvalið þar lengi þegar hann
nauðgaði og myrti ungan dreng.
Krókódílaleiðangur
Í Lobito Bay réð Carl sex leiðsögu-
menn undir þeim formerkjum að
hann hygði á krókódílaveiðar. En Carl
hafði annað í hyggju og skaut hann
leiðsögumennina einn af öðrum og
henti fyrir krókódílana.
Hann sneri seinna aftur til Banda-
ríkjanna og var að eigin sögn önnum
kafinn við ódæði. Hann sagðist meðal
annars hafa nauðgað og myrt tvo litla
drengi – annan barði hann til dauðs
með grjóti, í Salem í Massachusetts,
hinn kyrkti hann, í New Haven í
Connecticut.
Carl sagðist einnig hafa orðið
manni, sem reyndi að ræna hann, að
bana í New Rochelle, framið tvö morð
í húsum sem hann braust inn í á leið
sinni frá Baltimore til Washington
D.C., og Guð má vita hve fleiri ódæði
hann sagðist hafa á samviskunni.
Handtekinn fyrir innbrot
Carl Panzram var handtekinn árið
1928 fyrir innbrot og við yfirheyrslur
játaði hann á sig tvö morð. Í ljósi
langs og alvarlegs sakaferils hljóðaði
dómur yfir Carl upp á 25 ár til lífstíðar.
Hann var fluttur til Leavenworth-
fangelsisins og sagði við yfirfanga-
vörðinn: „Ég mun drepa fyrsta
manninn sem fer í taugarnar á mér.“
Í júní 1929 stóð Carl við stóru orðin
og barði Robert Warnke, yfirmann
þvottahúss fangelsisins, til bana
með járnröri. Fyrir vikið fékk Carl
dauðadóm sem hann kaus að áfrýja
ekki.
„Haskaðu þér …“
Þegar Carl mætti örlögum sínum,
5. september 1930, sagði hann, í
sömu andrá og snaran var sett um
hálsinn á honum: „Ég vildi að ger-
vallt mannkyn hefði einn háls og ég
hefði hendur mínar um hann.“ Þegar
hann var spurður hvort hann vildi
segja eitthvað að lokum hreytti hann
í böðulinn: „Haskaðu þér, Hoosier-
skítseiðið þitt. Ég gæti drepið tíu
manns á meðan þú ert að dunda þér.“
(Hoosier er notað um menn frá Indi-
ana-ríki Bandaríkjanna.) n
„Haskaðu þér,
Hoosier-
skítseiðið þitt.
Ég gæti drepið tíu
manns á meðan þú
ert að dunda þér.
Hataði allt
mannkynið
Carl Panzram
skildi eftir sig
slóð nauðgana,
innbrota og
morða.
Ómennið frá minnesota
Við elskum umslög
- en prentum allt mögulegt
• Nafnspjöld
• Reikninga
• Veggspjöld
• Bréfsefni
• Einblöðunga
• Borðstanda
• Bæklinga
• Markpóst
• Ársskýrslur
Hagnýtar upplýsingar www.umslag.is
Umslag | Lágmúli 5 | Reykjavík | Sími 533 5252 | umslag@umslag.is