Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Blaðsíða 35
Helgarblað 23.–26. október 2015 Lífsstíll 35
trúlofuð. Reglurnar voru þannig að
við urðum að gifta okkur innan 90
daga þannig að í janúar 2013 létum
við verða af þessu og það var dá-
samleg stund.“
Börnin hans Randy voru við-
stödd giftinguna sem fór fram hjá
dómara í Texas – ekki ósvipað því
og þegar hjón ákveða að gefa sig
saman hjá sýslumanni hér á landi
í stað þess að halda hefðbundið
brúðkaup með prest.
Gift í þrjú ár í janúar
„Og núna í janúar 2016 verða kom-
in þrjú ár síðan við giftum okkur
og ég sé ekki enn sólina fyrir hon-
um. Þetta hafa verið bestu þrjú ár
lífs míns og ég elska að búa í Texas í
hitanum. Ég hataði kuldann á klak-
anum. Mér var alltaf kalt og það var
alltaf rok og rigning og þess vegna
þráði ég að búa í sól-
arlandi,“ segir Fann-
ey Rut sem ekki
bara þráði að búa
í sólarlandi held-
ur hafði hana alltaf
dreymt um að flytja
til Bandaríkjanna.
Í kjölfar gift-
ingarinnar tók
Fanney Rut upp
fjölskyldunafn
Randys og heit-
ir því í dag Fanney
Rut Dishaw.
Vill aldrei flytja
aftur til Íslands
„Lífið er gott hérna
og ég sé mig aldrei
vilja flytja aftur
til Íslands. Mér
fannst bara ekk-
ert hægt að gera
þar fyrir utan að
kíkja á djammið allar helgar. Það
var voðalega lítið annað að gera fyr-
ir utan náttúrlega að vinna stans-
laust. Ég var alveg föst á því að fara
frá Íslandi. Mér var sagt að grasið
væri ekkert grænna þar en jú, það
get ég sko staðfest. Grasið gæti ekki
verið meira grænna hér fyrir mér að
minnsta kosti,“ segir Fanney Rut og
hlær.
Það eru eflaust margir lesendur
sem hafa skoðun á aldursmuninum.
Hefur eitthvað verið sagt við ykkur í
Bandaríkjunum? Hvernig takið þið
því?
„Þegar við vorum að byrja
saman þá fengum við oft að heyra:
„Is that your daughter?!?“ þannig að
við bjuggum til skemmtilega reglu
saman. Í hvert skipti sem einhver
sagði það við okkur þá leit ég á hann
og sagði „Oh, daddy“ og kyssti hann
stórum kossi bara til að rugla að-
eins í liðinu. Sá sem spurði átti það
til að verða alveg orðlaus en flestir
tóku þessu þó létt og hlógu að þessu
og báðust afsökunar. Okkur fannst
þetta alltaf svo fyndið.“
Fannstu ekki fyrir neinum for-
dómum?
„Ég fékk oft þá spurningu í byrj-
un hvort hann væri til dæmis ríkur?
Og nei. Hann er ekki ríkur en hefur
það svo sem gott. Ég veit að margir
halda að ég hafi viljað hann út af
peningunum hans en það skiptir
mig engu máli. Ég elska hann meira
en allt. Þótt við ættum ekkert á milli
handanna og værum heimilislaus
þá myndi ég glöð vera heimilislaus
með honum. Hann er minn og ég
vona að ég muni hafa hann hjá mér
það sem eftir er.“
Fjölskylda Fanneyjar Rutar er
öll flutt búferlum til Danmerkur og
segir hún því ólíklegt að þau Randy
og börnin komi til með að heim-
sækja Ísland eitthvað á næstunni.
Hún segir þó Randy hafa komið
hingað til lands tvívegis og orðið
hrifinn af bæði landi og þjóð.
„Ég spái þess vegna frekar í það
að reyna að kíkja til Danmerkur
með þau í stað Íslands og þá von-
andi fljótlega.“
„Dagur í mínu lífi“
Eins og áður segir búa þau Fanney
Rut og Randy rétt fyrir utan Bellville
í Texas, nánar tiltekið við Brazos-
fljótið, en þar keyptu þau fjögurra
hektara land sem samsvarar 40 þús-
und fermetrum. Fanney Rut seg-
ir þetta eins og að búa í sveitinni,
þar sem þau eru um 20 mínútur frá
næsta bæ.
„Ég elska að búa úti í sveit og að
geta verið svona út af fyrir mig. Líf-
ið gæti ekki verið betra. Áin í bak-
garðinum er sennilega það besta
við að búa hérna. Þar er hægt að
veiða á stöng eða bara einfaldlega
„go hunting“ (e. fara á veiðar).“
Fanney Rut og Randy eiga auk
þess lítinn bát sem er á lóð þeirra
við Brazos-fljótið en hún segir þau
nota bátinn oft til þess að fara út á
fljót og njóta lífsins.
En hvernig er dagur í lífi þínu í
Texas?
„Dagur í lífi mínu? Ég bara vakna
þegar ég vakna,“ segir Fanney Rut og
hlær. „Ég fer svo oftast bara að vinna
á lóðinni við að gera hana fína, eins
og til dæmis að slá grasið hér sem
tekur endalausan tíma enda er lóð-
in svo svakalega stór. Síðan finn ég
mér oftast eitthvað að gera, eins
og til dæmis að þrífa sundlaugina
eða bátinn okkar. Þegar mér leiðist
þá bið ég Randy að setja mér fyr-
ir verkefni og þannig höldum við
saman um lóðina og heimilið okk-
ar. Annars slaka ég bara á með ná-
grönnunum mínum, púsla eða leik
mér í ánni á kajakanum okkar. Eins
og þú heyrir þá er ég ekkert með
neina fasta rútínu svo sem.“
Hvert er stefnan tekin í
Bandaríkjunum? Á að hella sér í
nám eða bara vera hin klassíska
heimavinnandi húsmóðir?
„Ég er bara heima alltaf. Mig
langar ekki að vinna því ég vil
ekki þurfa að fara að mæta í vinnu
þegar maðurinn minn er bara
heima í mánuð. Hann vinnur á
olíuborpalli í Brasilíu
og er að vinna í mánuð
og kemur svo heim
í mánuð. Ég vil ekki
missa eina mínútu frá honum þegar
hann er heima. Hann sagði mér líka
að ég þyrfti ekki að vinna. Í staðinn
má ég vera heima og sjá um heim-
ilið okkar og lóðina og bara lifa líf-
inu og gera það sem ég vil. Ég hata
það svo sem ekkert,“ segir Fanney
Rut og hlær.
„Við plönum að reyna að eignast
barn saman á næstu árum þannig
að ég mun bara vera heima með
barnið.“ n
Atvinna í boði á einum
skemmtilegasta
vinnustað landsins
DV óskar eftir góðu og jákvæðu símasölufólki
Umsóknir sendist á magnushelgi@dv.is
→ Söluhæfileikar eru mjög mikilvægir → Ófeimin/n að tala við
fólk í gegnum síma → Reynsla af svipuðum störfum er kostur
Laun eru árangurstengd. Góð laun í boði fyrir góðan og duglegan sölumann.
„Og núna í
janúar 2016
verða komin þrjú
ár síðan við gift-
um okkur og ég
sé ekki enn sólina
fyrir honum
„Dagur í lífi
mínu? Ég
bara vakna þegar
ég vakna.
Skýtur leirdúfur Landið sem þau Randy og Fanney Rut eiga er gríðarlega
stórt og þar er hægt að gera ýmislegt. Hér er Fanney Rut að skjóta leirdúfur
við Brazos-fljótið.
Fjölskyldan saman Hér eru þau Fanney
Rut, Randy og börnin, þau Tess Nicola
Dishaw, sem verður 12 ára núna í desember,
og Sandor Brodie Dishaw, en hann varð 10
ára núna í september. Myndin er tekin í Dis-
neylandi fyrir tæpum þremur árum síðan.
Lúxuslífið í Texas Fanney Rut ver tíma sínum í Texas með því að hugsa um heimilið og
lóðina sem þau eiga. Ávallt er þó stund milli stríða og þá er gott að eiga sundlaug.
Fallegur staður Fanney Rut segist aldrei ætla að flytja aftur til Íslands. Hún elskar að vera í sólinni í Texas.
Ástin spyr ekki um aldur Þau Fanney Rut og
Randy
hafa verið gift í þrjú ár í janúar á næsta ári.