Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2015, Side 10
Vikublað 3.–5. nóvember 201510 Fréttir
Ú
tlit er fyrir að íslenska eigna-
umsýslufélagið ALMC, áður
Straumur-Burðarás fjár-
festingabanki, muni fallast
á að inna af hendi stöðug-
leikaframlag til íslenskra stjórnvalda
í því skyni að komast hjá því að þurfa
að greiða 39% stöðugleikaskatt af
eignum félagsins.
Samkvæmt heim-
ildum DV er
samkomu-
lag um slíkt í
burðarliðn-
um og mun
framlag
ALMC lík-
lega nema
á bilinu
5 til 10
milljörð-
um króna.
Heildareign-
ir ALMC námu
um 917 milljón-
um evra, jafnvirði um
130 milljarða íslenskra
króna, í árslok 2014 og
miðað við það þyrfti
félagið því að öðrum
kosti að greiða um
50 milljarða í stöðug-
leikaskatt til ríkisins.
Stjórnendur ALMC
hafa hins vegar frá upp-
hafi mótmælt því harð-
lega að félagið hafi verið
fellt undir stöðug leikaskattinn
– ólíkt slitabúum Glitnis, Kaupþings
og LBI kláraði ALMC nauðasamn-
inga fyrir fimm árum – enda telji þeir
að starfsemi þess hafi haft umtals-
verð jákvæð áhrif á greiðslujöfnuð
þjóðar-
búsins. Í
bréfi sem
Reimar
Pétursson,
lögmaður
ALMC, sendi til
efnahags- og við-
skiptanefndar 3. júlí
síðastliðinn, sama dag og frumvarp-
ið um stöðug leikaskatt varð að lög-
um, kom fram að ALMC ætlaði að
höfða mál á hendur ríkinu, ef þess
myndi gerast þörf, til að verja hags-
muni sína.
Skattskyldan var útvíkkuð
Þegar frumvarp fjármálaráðherra um
stöðugleikaskatt var fyrst lagt fram
á Alþingi var ekki gert ráð fyrir að
þau félög sem hafa lokið slitameð-
ferð með nauðasamningi, en hafa
ekki getað efnt greiðslur til kröfuhafa
samkvæmt honum vegna fjármagns-
hafta, myndu þurfa að greiða slíkan
skatt. Eins og upplýst var um í frétt
DV hinn 14. júlí þá tók það hins vegar
breytingum í meðferð efnahags- og
viðskiptanefndar sem lagði til að
skattskyldan yrði víkkuð út þannig að
hún næði einnig til ALMC.
Í fyrrnefndu bréfi ALMC eru birt-
ir útreikningar sem eiga að sýna
fram á að áhrif af starfsemi félagsins
á greiðslujöfnuð þjóðarbúsins hafi
verið jákvæð um 352 milljónir evra,
jafnvirði um 50 milljarða króna, eftir
að Straumur-Burðarás fjárfestinga-
banki fór í greiðsluþrot í mars 2009.
Starfsemi félagsins hafi frá þeim
tíma því „bætt hreina gjaldeyris-
stöðu þjóðarbúsins“ og „ekki gert
afnám gjaldeyrishafta erfiðara, hún
hafi auðveldað það,“ segir í bréfinu.
Deilt um réttmæti skattsins
Mjög deildar meiningar voru á því
innan stjórnkerfisins síðastliðið vor
hvort rétt væri að fella ALMC und-
ir stöðugleikaskattinn, samkvæmt
heimildum DV. Af hálfu gjaldeyris-
eftirlits Seðlabankans var hins vegar
talið einsýnt að starfsemi ALMC
væri hluti af þeim greiðslujafnaðar-
vanda sem frumvarpinu um stöðug-
leikaskatt væri ætlað að leysa og
því eðlilegt að skattskyldan næði
til ALMC. Greining bankans hafi
sýnt, ólíkt því sem fram kemur í út-
reikningum ALMC, að útgreiðsla
eigna félagsins til erlendra kröfuhafa
hefði neikvæð áhrif á greiðslujöfnuð
þjóðarbúsins.
ALMC benti á að skatthlutfall-
ið væri fordæmalaust og skatturinn
tekinn af eignum án tillits til skulda.
Áhrifin af skattlagningunni væru
jafnframt „einkar íþyngjandi“ og
næmi skatturinn „margfaldri krónu-
eign“ ALMC og væri lagður á án til-
lits til jákvæðra áhrifa af starfsemi
félagsins á greiðslujöfnuð Íslands.
„Því sé um hreina tekjuöflun ríkis-
ins að ræða án tengsla við markmið
um stöðugleika. Samspil alls þessa
myndi því gera skattlagninguna
marklausa,“ segir í bréfi ALMC.
Krónueign ALMC nam um 15
milljörðum í árslok 2014, eða ríflega
10% af heildareignum félagsins. n
Greiðir milljarða í
stöðugleikaframlag
n Samkomulag um að ALMC greiði stöðugleikaframlag í bígerð n Ætlaði í mál út af skattinum
Ætti að opna á milljarða bónus-
greiðslur til starfsmanna
Ef 50 milljarða skattlagning á ALMC næði
fram að ganga myndi hún ekki aðeins
bitna á eigendum ALMC, sem eru ýmsir
erlendir vogunarsjóðir, heldur einnig
fjölmörgum núverandi og fyrrverandi
lykilstarfsmönnum félagsins sem til
stóð að fengju samtals um 3,4 milljarða
króna í bónusgreiðslur, eins og sagt var
frá í forsíðufrétt blaðsins þann 19. maí
síðastliðinn. Ekkert yrði af slíkum bónus-
greiðslum ef lagður yrði á 39% skattur
á eignir félagsins enda myndi það verða
til þess að draga verulega úr áætluðum
endurheimtum kröfuhafa.
Verði niðurstaðan hins vegar sú
að ALMC komist hjá skattinum með
milljarða króna stöðugleikaframlagi ætti það ekki að hafa teljandi áhrif á fyrir-
hugaðar bónusgreiðslur til 20–30 starfsmanna félagsins. Meirihluti þeirra er erlendir
aðilar en einnig er um að ræða Íslendinga sem hafa starfað fyrir bæði ALMC og Straum
fjárfestingabanka, sem sameinaðist nýlega MP banka, á undanförnum árum. Að með-
altali gætu greiðslurnar numið yfir 100 milljónum króna á starfsmann en þeir sem eiga
von á að fá mest í sinn hlut geta fengið hundruð milljóna. Í þeim hópi eru Óttar Pálsson,
stjórnarmaður ALMC og hæstaréttarlögmaður hjá LOGOS, og Jakob Ásmundsson, sem
hætti í sumar sem forstjóri Straums, en hann gegndi áður starfi fjármálastjóra ALMC.
Hörður Ægisson
hordur@dv.is
Lykilstarfsmenn ALMC Óttar Pálsson og Jakob Ásmundsson eru í hópi þeirra núverandi og fyrrverandi starfsmanna sem geta átt von á að fá hundruð
milljóna í sinn hlut í bónusgreiðslur frá ALMC.
Er skipulagið í lagi...?
Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki
Brettarekkar
Gey
mslu
- og
dekk
jahi
llur
Mikil burðargeta
Einfalt í uppsetningu
KÍKTU VIÐ Á WWW.ISOLD.IS OPIÐ 08:00 - 17:00
Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík
Sími 53 53 600 - Fax 567 3609