Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2015, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2015, Side 30
Vikublað 3.–5. nóvember 201522 Menning G arðabær, hið fullkomna bæjar félag þar sem ekki þarf að kjósa enda rétti flokk­ urinn alltaf við völd, helgasta vé efnafólks sem ekki vill blandast almúgafólki, staðurinn þar sem allir eru jafn firrtir í efnishyggj­ unni og maður sjálfur. Garðbæingar hugsa um sína. Friðurinn er úti þegar sonur fyrirmyndarhúsmóðurinnar Sóleyjar er lagður í einelti af bekkjar­ bróður sem þar að auki er ásamt móður sinni á sósíalnum í gettóinu á Nónhæðinni. Vinkonur Sóleyjar, þær Steinunn og Bergdís, ákveða að ekki verði við unað og taka til sinna ráða. Leikið með klisjurnar Eins og sjá má af lýsingunni er (90)210 Garðabær leikrit sem áreiðan lega á eftir að fara fyrir brjóstið á hátíðlegri Garðbæingum. Líkt og titill verksins vísar til þekktrar sápuóperu um líf ríka fólksins í Beverly Hills gerir verkið stólpagrín að öllum þekktustu klisjum um ríka Garðbæinga sem all­ ir kjósa Sjálfstæðisflokkinn og flykkj­ ast á þorrablót Stjörnunnar sem er eins konar árshátíð bæjar félagsins. Mér þætti því skiljanlegt þótt verkið færi fyrir brjóstið á einhverjum þar sem það er ansi vúlgar ofan í kaup­ ið, en ég verð að játa að verkið gekk fram af mér á allra besta hátt. Ég skemmti mér konunglega og ætlaði vart að trúa eigin augum á köflum. Í því sambandi vil ég fyrstan nefna Stefán Hall Stefánsson sem lék Loft, eiginmann Steinunnar og hinn týpíska efnaða dellukarl sem á rétta búnaðinn til alls, sem hann ekki stundar. Ég skil ekki hvernig Stefán Hallur getur framleitt svona mikið hor og beitt því svona mark­ visst fyrir sig sem propsi. Mér hefur hingað til fundist Stefán Hallur vera fínn leikari en núna tókst honum að impónera mig. María Heba Þorkelsdóttir fer með hlutverk Sóleyjar, sem er hluti af elít­ unni en þó á skjön – nær áhorfendum í mennsku sinni – og hún spilar fanta­ vel þarna á mörkunum, angurvær og þjökuð. Sá áhorfandi sem fylgist vel með getur séð fyrir hverja einustu hreyfingu hennar og hvert einasta við­ bragð út frá augnsvip hennar einum, og það er mikil list sem er sjaldséð. Rauði bletturinn á bláa sveitarfélaginu Vigdís Másdóttir fer með hlutverk Steinunnar, sem er eins konar frum­ valdur allrar atburðarásar verksins, það er hún sem heldur í strengina sem aðrir dansa eftir. Það er hún sem ræður þegar öllu er á botninn hvolft og valdið skín í gegnum hennar sér­ hverja hreyfingu. Vigdís er jöfn og þétt í sínu hlutverki og minnti mig nokk­ uð á Bree úr Desperate Housewives í stífni sinni og meinhæðni. Á meðan Steinunn er manipúler­ andi óþokki og Sóley lætur ýta sér hvert á land sem er þá er persóna Bergdísar, sem Svandís Dóra Einars­ dóttir hafði veg og vanda af að kynna okkur áhorfendum, öllu tví­ bentari að ytra byrði. Hún veit hvað hún vill og hvernig hún á að ná því. Svandís Dóra virtist ekkert hafa fyrir margræðninni og sá eiginleiki Berg­ dísar sem uppnefndur er „Séðog­ heyrtdrottningin“ skín hvarvetna sterkur í gegnum túlkun hennar. Að lokum er það Reynir, vinstri­ græna félagsmálatröllið sem tekist hefur að smokra sér í bæjarstjórn einhvern veginn, rauði bletturinn á bláa bæjarfélaginu. Hann er ekki undanþeginn neysluhyggjunni, gengur um í rándýrum fötum frá Kormáki og Skildi sem þó þykja vera óttalegir larfar í samanburði við hinn viðurkennda Garðabæjarstíl. Sveinn Ólafur Gunnarsson leikur Reyni og gerir það æði vel. Einkum er gam­ an að fylgjast með samspili hans við Stefán Hall annars vegar og Svandísi Dóru hins vegar. Fjölmargar popp­ vísanir skreyta alla þessa frásögn með vísunum í 15 ára gamla sjón­ varpsþætti og umræðu um Svavar Knút sem ég trúi því ekki ennþá að ég hafi heyrt. Sýningin gengur fram af manni, en ég á ekki til orð yfir það hversu skemmtilega það er gert. Bjórinn sem táknmynd Heiðar Sumarliðason sem jafnframt er höfundur verksins sá um leikstjórn og Bjartmar Þórðarson er dramatúrg. Við þá tvo vil ég segja: Bravó! Sam­ starf þeirra og leikaranna er einhvers konar draumaverksmiðja. Symbólískt gildi porterbjórsins Myrkva var snilldarlegt bragð sem minnti á svissneska leik­ skáldið Dürren matt, og hvernig sköpun Adams er sett á svið með dyggri aðstoð hinnar snilldarlegu ljósahönnunar Magnúsar Arnar Sig­ urðarsonar og téðs porters – hvernig hið framandlega er endurgert í ímynd hins guðlega og fullkomna – er óborganlegt. Lýsingin, svo fleiri orðum sé komið að henni, er eins og gestaltmynd yfir hinni fullkomnu stofu, meira en summa parta hennar og þar með táknræn í senn fyrir að ekki er allt þar sem það er séð þegar nánar er að gætt. Steinunn og Loft­ ur kaupa sér fín ljós en skilja ekki skuggann sem þeim fylgir. Tákn­ mynd lífs þeirra afhjúpar þau. Þannig er líka allt sófasettið opið til vinstri, ólíkt stjórnmálaskoðunum persóna að Reyni undanskildum, en til hægri séð frá áhorfendum – hið rétta er þannig endurspeglun öfug­ snúins veruleika. Sannleikskornið í satírunni Þetta undirstrikar að í rauninni eru þau ekki pólitísk þótt þau haldi sig vera það. Þau búa í bæ þar sem þarf ekki að kjósa. Allt er eins og það hef­ ur alltaf verið. Þetta er heimur þar sem Bjarni Ben er fótboltagoðsögn á við Pelé. Garðbæingar sjá um sína. Það gerir flokkurinn líka. Þau styðja sinn flokk en hið innra eru þau flökt­ andi. Steinunn og Loftur afhjúpa með allri innréttingunni að þau hafa ekki í raun sinn eigin smekk. Þau kaupa það sem er í tísku þótt það sé í sýnilegri andstöðu við þeirra eigið gildismat, þau stunda neyslu neysl­ unnar vegna af því þau skilja í raun ekki hvað gerir hlutina þeirra fína, að innréttingar lífs þeirra eru jafn yfir­ borðskenndar og þau sjálf. Þannig kallast sviðsmynd Kristínu Berman á við yfirborðsmennskuna og sið­ blinduna sem liggur í hjarta verksins og gerir það meistaralega vel. Hér er Garðbæingurinn settur á svið sem sýnekdóka sinna allra verstu parta eins og félagsmálatröll heimsins skilja þá. Þetta getur verið stuðandi en er þó ekki nýtt; minna má á Georg Bjarnfreðarson sem samnefnara íslenskrar vinstrihreyf­ ingar allt frá Rauðsokkahreyfingunni til Steingríms Sigfússonar. Það er eins með Georg og (90)210 Garða­ bæ: Það er sannleikskorn í þessu öllu saman. n Hefnd lattelepjandi listapakksins Arngrímur Vídalín ritstjorn@dv.is Leikhús Garðabær (90)210 Höfundur og leikstjóri: Heiðar Sumarliðason Leikarar: María Heba Þorkelsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson, Svandís Dóra Einarsdóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Vigdís Másdóttir Leikmynd: Kristína R. Berman Búningar: Júlíana Lára Steingrímsdóttir Lýsing: Magnús Arnar Sigurðarson Dramatúrg: Bjartmar Þórðarson „Sýningin gengur fram af manni, en ég á ekki til orð yfir það hversu skemmtilega það er gert. Hæ sæti hvað færð þú að borða? Smáralind • Kringlunni • Reykjanesbæ • sími 511 2022 • www.dyrabaer.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.