Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2015, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2015, Page 38
Vikublað 3.–5. nóvember 201530 Fólk n Vinsælustu konungbornu stjörnurnar Ó líkt Bandaríkjunum státar Evrópa af fjölda konung­ borinna stjarna. Bresku, sænsku og dönsku slúður­ blöðin fjalla álíka mikið um drottningar, prinsa og prinsessur og vinsælustu stjörnurnar hverju sinni. DV skoðaði heitustu stjörnur Evrópu sem svo vill til að eru einnig giftar inn í frægustu konungsfjölskyldurnar eða fæddust bæði með silfurskeið í munni og gullkórónu á höfði. n Rík, falleg og konungborin  Barn á leiðinni Sænski prinsinn Karl Philip er kvæntur hinni gullfallegu Sofiu prinsessu. Hjónakornin gengu í það heilaga á árinu og eiga nú von á sínu fyrsta barni í apríl á næsta ári. Karl Philip, sem er 36 ára, er litli bróðir Viktoríu krónprinsessu.  Verðandi drottning Viktoría krónprinessa mun einn daginn verða drottning Svíþjóðar. Viktoría er gift almúgamanninum Daniel Westling sem nú gengur undir nafninu prins Daniel, hertoginn af Västergötland. Hjónakornin eiga dótturina Estelle, sem er þriggja ára en hún mun verða stóra systir í mars á næsta ári.  Vinsæl prinsessa Madeline prinsessa heillaði unga menn upp úr skónum árum saman en hefur nú fest ráð sitt. Þessi yngri systir Viktoríu krónprinsessu og yngsta barn Karls Gústafs Svíakonungs er orðin gift tveggja barna móðir. Eiginmaður hennar er bresk/ bandaríski viðskiptajöf- urinn Christopher O'Neill en hjónin gengu í það heilaga árið 2013. Madeleine hefur verið daglegt umfjöllunarefni sænsku pressunnar um árabil þótt fréttirnar af henni hafi breyst í gegnum tíðina.  Ótrúlega vinsæl Hertogaynjan af Cambridge, Kate prinsessa, sem áður gekk undir nafninu Catherine Middleton er löngu orðin að tískugoði um allan heim. Kate giftist Vilhjálmi prins, elsta syni Karls krónprins Bretlands árið 2011 en hjónin eiga tvö börn, prins George og Charlotte prinsessu. Kate er dýrkuð og dáð líkt og tengdamóðir hennar, Díana heitin.  Stjörnuhjón Pierre Casiraghi er yngri sonur Carolinu prinsessu og eiginmanns hennar sáluga, Stefano Casiraghi. Pierre, sem er fæddur árið 1987, gekk að eiga ítölsku sjónvarpsstjörnuna Beatrice Borremeo í Mónakó á dögunum í tvöfaldri athöfn. Fyrst var um borgaralega athöfn að ræða þar sem hjónakornin létu pússa sig saman í kastala konungsfjölskyldunnar í Mónakó en trúarlega athöfnin fór fram á Ítalíu. Hjónin eru svo sannarlega ung, rík og fræg.  Villtasti prinsinn Vinsælasti prinsinn um árabil er án efa rauðhausinn og villingurinn Harry Bretaprins sem hefur líklega aldrei verið heitari en einmitt núna. Slúðurblöð um allan heim hafa keppst um að skrifa fréttir af Harry sem hefur gefið þeim meira en nóg til að velta sér upp úr. Harry er yngri bróðir Vilhjálms og því ekki með ábyrgð heils konungsríkis á bakinu líkt og stóri bróðir og hefur því leyft sér að njóta hins ljúfa lífs til hins ítrasta. Harry hefur verið kenndur við hinar ýmsu konur á borð við leikkonuna Cressida Bonas en er á lausu þessa dagana.  Sætustu systurnar Spænsku prinsessurnar Leonor, níu ára og Sofia, átta ára, eru líklega orðnar vanar sviðsljósinu þrátt fyrir ungan aldur. Hinar sætu ljóshærðu systur eru dætur Felips Spánarkonungs og Letiziu drottningar. Letizi, mamma þeirra, var mikilsmetin sjónvarpsfréttakona áður en henni tókst að heilla þáverandi prinsinn upp úr skónum en hjónin giftu sig árið 2004 og urðu konungshjón Spánar þann 19. júní í fyrra. Margnota augnhitapoki Fæst í helstu apótekum og Eyesland Gleraugnaverslun, Glæsibæ Ef augnhvílan er notuð tvisvar á dag með reglulegu millibili hefur hún jafnan jákvæð áhrif á hvarmabólgu (Blepharitis), vanstarfsemi í fitukirtlum, augnþurrk, vogris, augnhvarmablöðrur og rósroða í hvörmum/augnlokum Augnhvilan Augnhvílan er auðveld í notkun og vermir í 10 mínútur í hvert sinn. Hún er einfaldlega hituð í 30 sekúndur í örbylgjuofni og lögð yfir augun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.