Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Blaðsíða 16
Helgarblað 27.–30. nóvember 201516 Fréttir
ÓfrjÓsemisaðgerðir sem kúgunartæki
n Íslenskar konur voru kerfisbundið neyddar til að undirgangast ófrjósemisaðgerðir n Sorglegur skortur á gögnum segir varaþingmaður
F
yrir mér vekja þessar tölur
upp fleiri spurningar og við
þurfum að fá ítarlegri svör,“
segir Freyja Haraldsdóttir,
varaþingmaður Bjartrar
framtíðar. Á þrjátíu ára tímabili, frá
1984 til 2014, voru gerðar 62 ófrjó-
semisaðgerðir á ungu fólki hér á
landi þar sem lögráðamenn undir-
rituðu umsóknir fyrir þeirra hönd.
Á einstaklingum sem vegna geð-
sjúkdóms, mikils greindarskorts
eða annarra geðtruflana töldust
varanlega ófærir um að gera sér
grein fyrir afleiðingum aðgerðar-
innar. Þar af voru 42 konur og 20
karlar. Níu slíkar aðgerðir voru
gerðar á einstaklingum 18 ára og
yngri á árunum 1998–2014, þar af
voru átta stúlkur og einn piltur á
aldrinum 15–18 ára. Að auki voru
framkvæmdar ófrjósemisaðgerð-
ir á 52 einstaklingum, undir 25 ára
aldri, á árunum 1987–2014 þar sem
þeir uppfylltu eitt af eða fleiri af
skilyrðum annars liðar 18. grein-
ar laga um ófrjósemisaðgerðir sem
lesa má hér í ítarefni með þessari
umfjöllun.
Eins og DV komst að við nánari
athugun á þessum málaflokki þá
liggur ljóst fyrir að fatlað fólk, þar
með talið fólk með þroskahöml-
un, hafi í gegnum tíðina verið tek-
ið úr sambandi, meira að segja með
blekkingum og án þess að vita það.
Allt á grundvelli núgildandi laga
um þessar aðgerðir.
Mun fleiri konur
Ofangreindar upplýsingar um
fjölda aðgerða komu fram í svari
Kristjáns Þórs Júlíussonar heil-
brigðisráðherra við fyrirspurn
Páls Vals Björnssonar, þingmanns
Bjartrar framtíðar, á Alþingi á
dögunum. Þar kom fram að 20.988
ófrjósemisaðgerðir voru gerðar á Ís-
landi á tímabilinu 1981–2014. Mikill
meirihluti aðgerðanna var gerður á
konum en hlutföllin hafa heldur
jafnast með árunum og árið 2005
voru karlar fyrst í meirihluta yfir
framkvæmdar ófrjósemisaðgerðir á
Íslandi, og hafa verið síðan.
Frábært kúgunartæki
Fyrir liggur að langflestar þessara
tæplega 21 þúsund aðgerða voru
gerðar að ósk karla og kvenna sem
náð höfðu 25 ára aldri og óskuðu
eindregið og að vel íhuguðu máli
þess að vera tekin úr sambandi og
engar læknisfræðilegar ástæður
mæltu gegn því. Þó er ljóst að slík-
ar aðgerðir hafa einnig verið fram-
kvæmdar ansi reglulega hér á tug-
um einstaklinga sem talið var, að
sökum líkamlegra eða andlegra
vandkvæða, ættu ekki að auka kyn
sitt og höfðu jafnvel lítið sem ekkert
um það að segja.
Freyja, sem hefur látið sig þessi
mál varða, ítrekar að gagnrýni
hennar og fleiri beinist ekki að öll-
um ófrjósemisaðgerðum, heldur
aðeins þeim sem eru notaðar með
þeim hætti að gera fatlaðar konur
og karla ófrjó undir því yfirskini að
það sé þeim fyrir bestu. „Fyrir vikið
er það mikið áfall að þetta skuli
vera svona, að við höfum ekki fleiri
gögn um þetta. En þetta er auðvitað
frábært kúgunartæki.“
Ekki sundurliðað
Megintilgangur fyrirspurnar Páls
Vals var að varpa ljósi á hversu
margar ófrjósemisaðgerðir hefðu
verið gerðar á fötluðu fólki og börn-
um, sundurliðað eftir tegund fötlun-
ar hér á landi í gegnum tíðina. Í ljós
kom að þegar óskað er eftir slíkum
aðgerðum þarf viðkomandi, eða lög-
ráðamaður, að sækja um á eyðublöð-
um sem embætti landlæknis gefur
út. Þar er fötlun eða tegund fötlunar
ekki skráð sérstaklega og liggja upp-
lýsingar um slíkt því ekki fyrir.
Vísbendingar eru þó í svörun-
um um hversu margar aðgerð-
ir hafa verið gerðar á fólki sem af
ýmsum ástæðum er talið ófært um
að eignast, eða sjá um börn, eða
sökum líkamlegrar eða andlegrar
vangetu, greindarskerðingar eða
annars hafa gengist undir ófrjó-
semisaðgerðir á undanförnum ára-
tugum. Ljóst er að margir þeirra
þátta, sem tilgreindir eru í laga-
greinum þar að lútandi, geta átt
við þann hóp fólks sem fyrirspurn-
in varðaði. Þó að ekki sé hægt að
sundurliða það sérstaklega sökum
uppbyggingar umsóknareyðublað-
anna. Rannsóknir hafa þó sýnt að
fjölmörg dæmi eru þess að konur
sem glíma við þroskahömlun hafi
verið nánast kerfisbundið látnar
gangast undir ófrjósemisaðgerðir í
gegnum tíðina. Nánar er fjallað um
eina slíka rannsókn á næstu síðu.
Handvömm embættisins
„Það hryggir mig mikið að land-
læknisembættið, vitandi hver saga
fatlaðs fólks er, sýni af sér svona
mikið ábyrgðarleysi að vera ekki
búið að halda betur utan um þessi
gögn. Þetta er líka ábyrgðarleysi hjá
heilbrigðisráðherra að láta svona
svör frá sér fara. Það komu ekki
fram neinar upplýsingar um að þau
væru að reyna að breyta þessu,“
segir Freyja.
„Ég hef sterkan grun um að þess-
ar níu aðgerðir sem framkvæmdar
voru snúi að fötluðum börnum, þá
sérstaklega fötluðum stúlkum. En
þar sem þetta er ekki greint neitt
frekar slær það vopnin svolítið úr
höndunum á okkur sem erum að
berjast fyrir réttlæti í þessum mál-
um. Ef við höfum ekki þessar upp-
lýsingar þá vandast málið og verður
allt miklu erfiðara,“ segir hún.
Freyja segist sérstaklega hugsi
yfir þeim aðgerðum sem fram-
kvæmdar hafa verið á börnum, en
einnig yfir kynjaslagsíðunni sem er
umtalsverð. „Við Páll viljum skoða
þetta frekar, fá upplýsingar um
hvað býr að baki þessum tölum
og afla upplýsinga um það hverjir
verkferlarnir eru. Í tilfellum barna
vantar allar upplýsingar, sem er
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
Sigurður Mikael Jónsson
astasigrun@dv.is / mikael@dv.is
Í skýrslu WHO, Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar frá árinu 2011 um stöðu
fatlaðs fólks kemur fram að þrátt fyrir að
ófrjósemisaðgerðir séu notaðar
sem getnaðarvörn, sem svar við
vandamálum tengdum tíðum
kvenna eða sem vörn gegn
kynferðisofbeldi, sé það
sjaldnast réttmætur tilgang-
ur. WHO tekur skýrt fram að
þrátt fyrir ólögmæti þess séu
til fjölmörg dæmi á heimsvísu þar
sem aðgerðirnar eru notaðar, sérstak-
lega á konum með þroskaskerðingar,
til að koma í veg fyrir frjósemi þeirra.
„Ófrjósemisaðgerðir sem framkvæmdar
eru án samþykkis fatlaðs fólks eru brot á
mannréttindareglum,“ segir í skýrslunni.
Þar kemur fram að mikilvægt sé
að fatlað fólk hafi sama aðgengi að
ófrjósemisaðgerðum til jafns við ófatlað
fólk, en þá á þeirra eigin forsendum.
Einnig er kveðið á um mikilvægi
þess að fatlað fólk hafi aðgengi
að heilbrigðiskerfinu varðandi
kynheilsu sína.
„[Ófrjósemisaðgerðir] eru engin
vörn gegn kynferðisofbeldi eða gegn
kynsjúkdómum.“ WHO kallar á að settar
verði strangar reglur og kerfi sem styður
við fatlað fólk þegar kemur að því að taka
ákvarðanir um ófrjósemisaðgerðir og
tryggja að vilji þess sé skýr og verði ekki
fótum troðinn í nafni hagsmuna annarra. „Þetta er
auðvitað frábært
kúgunartæki.
Ófrjósemisaðgerð
er samkvæmt lögum þegar sáðgöngum karla
eða eggvegum kvenna er lokað og þannig komið
í veg fyrir að viðkomandi auki kyn sitt.
Kerfisbundin kúgun „Fatlað fólk hefur ekki vald yfir líkama sínum svo það er þvingað í
ófrjósemisaðgerðir eða það er gabbað í þær,“ segir Freyja. Mynd GabriEllE Motola
auki líkurnar Freyja
segist óttast að aðgerðir
sem þessar auki líkurnar
á því að fatlað fólk verði
fyrir ofbeldi. Mynd 123.rF
Mannréttindabrot
Síðumúla 31 • 108 Reykjavík • S. 581 2220 • Opið kl. 12-18
Lengri og breiðari
parketpLankar