Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Page 30
Helgarblað 27.–30. nóvember 2015 JEPPA- DEKK fyrir íslenskar aðstæður Kletthálsi 3 110 Reykjavík 540 4900 www.arctictrucks.is Verið alltaf velkomin í Kolaportið! Opið laugardaga og sunnudaga kl. 11-17. Næg bílastæði við Kolaportið Það liggja allar leiðir til okkar – veldu þína! Kolaportið er umkringt af bílastæðahúsum. Vesturgata · Mjóstræti Fjöldi stæða 106 Ráðhúsið · Tjarnargata 11 Fjöldi stæða 130 Traðarkot · Hverfisgata 20 Fjöldi stæða 270 Kolaportið · Kalkofnsvegur 1 Fjöldi stæða 270 K V IK A 30 Fréttir Erlent Meintur barnaperri látinn eftir árás fasteignasala A uðugur breskur fasteigna­ sali, sem barði meintan barnaperra til dauða, virðist ætla að sleppa við fangelsisdóm. Davinder Kainth var á dögunum dæmdur til sex mánaða fangelsisvistar eftir að hafa játað að hafa orðið valdur að dauða almannatengilsins Sand­ ro Rottman. Atvikið átti sér stað á veitingastað á Sotogrande á Spáni. Ástæðu árásarinnar má rekja til þess að Rottman, sem sætti rann­ sókn vegna barnakláms sem fannst í tölvu hans, hafði tekið myndir af börnum fasteignasalans. Fyrsti dómur Breskir fjölmiðlar greina frá þessu. Daily Mail segir að á Spáni sleppi þeir sem fá sinn fyrsta dóm, ef hann er vægari en tvö ár, alla jafna við afplánun. Rottman, sem er sagður hafa verið við slæma heilsu vegna áfengisdrykkju, lést á spítala eftir heilablæðingu í kjölfar árásar­ innar. Málsatvik voru þannig að á um­ ræddum veitingastað sá eigin­ kona Kainth, Gemma Hawkins, að á iPad Rottmans voru myndir af börnunum hennar þremur, sem teknar höfðu verið án leyfis. Þetta var þegar fólkið hafði lokið við að borða og var í þann mund að yfir­ gefa veitingastaðinn. Við það varð hún æst og krafðist skýringar á myndunum. Þá upphófst mikið rifrildi sem þróaðist út í ofbeldi þar sem Kainth barði Rottman nokkrum sinnum í höfuðið, að því er segir í dómnum. Heilsubrestir vegna áfengisneyslu Dómarinn, Raquel Gomez Sancho, sagði að högg sem þessi drægju menn venjulega ekki til dauða en maðurinn lést nokkrum mínútum síðar. Hún komst að þeirri niður­ stöðu að heilsubrestir hins látna, vegna langvarandi áfengisneyslu, hefðu átt sinn þátt í að maðurinn dó. Þá varð skýringin á uppnáminu Kainth til refsilækkunar. Rottman varð þekktur í Bret­ landi árið 2009, þegar hann kom fram sem einhvers konar lífvörður Katie Price, þegar hún kynnti nýja fatalínu í Sotogrande. n baldur@dv.is n Tók myndir af börnunum án leyfis n Rottman lést eftir heilablæðingu Sakaður um vörslu barnakláms Rottman, sem hér er á mynd með Katie Price árið 2009, sætti rannsókn vegna mynda sem fundust á tölvunni hans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.