Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Síða 32
Helgarblað 27.–30. nóvember 201532 Skrýtið
Kína fann upp hnattræna hlýnun
„Hugmyndin um hnattræna hlýn-
un var búin til af Kínverjum, fyrir
Kínverja, með það fyrir augum að
draga úr samkeppnishæfni banda-
rískrar framleiðslu.“ Þessi ummæli
lét Trump falla á Twitter árið 2012.
Þess má geta að Kínverjar hafa ný-
lega sett fram metnaðarfulla áætlun
til að draga úr losun gróðurhúsa-
lofttegunda í eigin landi.
Blökkumenn eru latir Trump
hefur alla tíð sagt hluti sem ganga
fram af fólki. Í bók sem óánægður
fyrrverandi undirmaður skrifaði
um Trump fullyrti hann að Trump
hefði sagt að það væri í eðli blökku-
manna að vera latir (e. Laziness is a
Trait in Blacks). Hafa ber í huga að
bókin er skrifuð af John R. O'Donn-
ell, sem vann fyri Trump í Vegas í
ein þrjú ár og hætti í fússi. Trump
hefur aftur á móti sagt að bókin sé
sennilega sönn.
Smábörn eru ekki hestar Um-
mælin lét hann falla í fyrra í um-
ræðu um bólusetningar. Hann sagði
eitthvað á þessa leið, í lauslegri þýð-
ingu: „Ég hef haft rétt fyrir mér um
fjöldabólusetningar – læknarnir
lugu. Björgum börnunum okkar og
framtíð þeirra, engar fleiri hópbólu-
setningar. Smábörn eru ekki hestar
– eina bólusetningu í einu.“
Sparperur valda krabbameini
Trump hefur að sjálfsögðu bland-
að sér í umræðuna um sparperur.
Það gerði hann árið 2012. Þá tísti
hann: „Munið að sparperur geta
valdið krabbameini. Gætið ykkar
– fávitunum sem fundu þetta upp
er slétt sama.“ Trump var líklega
að vísa til þess að sparperur senda
frá sér meiri geislun en hinar. Þær
valda hins vegar engu krabba-
meini og eru skaðlausar mönnum
og dýrum.
Sannleikurinn um fæðingar-
vottorðið Birther Movement á
hveitibrauðsdögum Baracks Obama
í embætti forseta er góð áminn-
ing um að peningar og vit fara ekki
alltaf saman. Með milljarðamær-
inginn Trump í broddi fylkingar
reyndi hreyfingin að hrekja Obama
úr embætti á þeim forsendum að
hann væri ekki fæddur í Banda-
ríkjunum – eitthvað sem Obama
hrakti í tvígang. Trump fullyrti að
skírteini um fæðingu (e. certificate
of live birth) væri ekki nálægt því
það sama og fæðingarvottorð (e.
birth certificate),. Staðreyndin er að
hið fyrrnefnda er fyrsta skjal þess
efnis að þess að kona hafi alið barn,
undanfari fæðingarvottorðs.
Í liði með Írönum
Samkomu-
lag stór-
veldanna
við Íran
um kjarnorkuvopn er til þess
fallið að koma í veg fyrir frekari út-
breiðslu kjarnavopna. Í samkomu-
laginu felst að Íranir geti óskað eft-
ir aðstoð ef hryðjuverkahópar, svo
sem ISIS, reyna að komast yfir efni
til framleiðslu kjarnavopna. Þeim
ber ekki einu sinni skylda til að
verða við beiðninni. Trump sagði
um þetta samkomulag í septem-
ber: „Ef Ísraelsmenn ráðast á Írani
þá eigum við að vera með Írönum í
liði.“ Þetta er fráleit túlkun á samn-
ingnum.
Kallaði Kínverja
„motherfuckers“ Kína er næsta
stórveldi heimsins og stjórnmála-
menn vestrænna ríkja hafa
margir hverjir freistað þess að
eiga góð samskipti við Kínverja.
Trump hefur valið aðra leið.
Árið 2011 örgraði hann Kínverj-
um: „Listen motherfuckers! We're
going to tax you 25%!“ Hann hót-
aði að skattleggja
þá um fjórðung
vegna þess að
hann er þeirrar
skoðunar að
Kínverjar
séu að
hrifsa störf af bandarískum verka-
mönnum. Afhjúpað hefur verið að
Trump á sjálfur fatalínu sem fram-
leidd er að stórum hluta í Kína til að
draga úr kostnaði.
Mexíkóar senda nauðgara og
morðingja Í sumar ásakaði Trump
ríkisstjórnina í Mexíkó um að senda
viljandi til Bandaríkjanna nauð-
gara og morðingja. Ekkert
í fullyrðingunni stenst
skoðun. Hlutfalls-
lega koma mun færri
Suðurameríkanar við
sögu í kynferðisbrota-
málum en innfæddir
og aðeins tvö um pró-
sent ólöglegra inn-
flytjenda.
Vildi aflífa unlingspilta án
dóms og lagaÁrið 1989 voru New
York-búar harmi slegnir eftir að
hvítri konu, sem var að skokka, var
nauðgað í Central Park. Í kjölfarið
voru nokkrir þeldökkir unglings-
piltar yfirheyrðir sem grunaðir.
Trump steig þá fram og birti heil-
síðuauglýsingar í dagblöðum
þar sem hann krafðist þess að
drengirnir yrði teknir af lífi við
fyrsta tækifæri. Drengirnir reynd-
ust svo saklausir. Trump sá að sér
og heimsótti fórnarlamb nauðg-
unar, þeldökka konu, á spítala
og bauðst til að borga fyrir hana
lækniskostnaðinn.
Hefði komið í veg fyrir 9/11
Í október síðastliðnum fullyrti
Trump að stefna hans í innflytj-
endamálum hefði getað komið í
veg fyrir 9/11 hryðjuverkaárásina.
„Ég trúi því að hefði ég stýrt
landinu þá hefði þetta fólk ekki
verið þar,“ sagði hann og átti við
þá sem rændu flugvélun-
um. n
HeiMSKuleguStu uMMælin
n Forsetaframbjóðandinn Donald trump lætur allt flakka n Hér eru tíu fáránleg ummæli hans
Strigakjaftur
Trump virðist stundum tala gegn
betri vitund. Hann talar fyrir harðri
innflytjendastefnu.
mynd epa
GÆÐI•ÞEKKING•ÞJÓNUSTA
Góð þjónusta
í yfir 60 ár
Gæðahreinsun þvottahús Dúkaleiga
fyrirtækjaþjónusta sækjum & sendum
Efnalaugin Björg Háaleitisbraut 58-60, 108 reykjavík sími: 553-1380