Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Blaðsíða 44
Helgarblað 27.–30. nóvember 20154 Jólagjafahandbók - Kynningarblað
Sjaldan sértilboð en alltaf gæði,
hagstætt verð og góð þjónusta
Herrafataverslun Birgis
É
g býð yfirleitt ekki afslætti
heldur reyni einfaldlega alltaf
að vera með besta mögulega
verðið hverju sinni og sam-
eina hagstætt verð og gæði,“
segir Birgir Georgsson hjá Herrafata-
verslun Birgis, Fákafeni 11. Verslunin
hefur verið starfandi frá árinu 1990.
Þýsk gæðamerki eru uppistaðan í
fataframboðinu á borð við Bäumler,
Stones, Lindenmann, Barutti og
fleiri í jakkafötum, jökkum, buxum
og skyrtum; en ítölsk merki í nær-
buxum og sokkum.
Birgir segist lítið gefa fyrir
stundarafslætti og sértilboð en vilja
fremur tryggja viðskiptavinum sín-
um gæði og hagstætt verð alltaf. „Við
erum með tvær útsölur á ári en fyrir
utan þær eru aldrei neinir afslættir.“
Sem dæmi um verðstefnu Birgis hafa
sumar vörur hjá honum ekki hækk-
að í verði í sex ár og hann býður til
dæmis hágæða frakka úr 80% ull á
aðeins 33.500 krónur. „Svona frakka
hef ég séð á 69.000 krónur annars
staðar,“ segir Birgir.
Auk gæða og hagstæðs verðs
leggur Herrafataverslun Birgis
mikla áherslu á mikið úrval bæði af
tegundum og stærðum: „Þjóðverjar
eru með fjögur stærðarkerfi sem eru
það djúp að þau dekka nánast allt
mannkynið.“
Síðast en ekki síst segir Birgir að
góð og alúðleg þjónusta sé mjög
mikilvæg. Íslenskir karlmenn hafi á
heildina litið ekki mikið vit á fötum
og þurfi góða ráðgjöf. Það getur líka
verið vandasamt að kaupa sér föt
og það vekur mönnum öryggistilf-
inningu að vera í góðum höndum
og geta treyst því að þeir fari út með
eitthvað sem fer þeim vel og á eftir að
nýtast þeim og vekja gleði lengi.
Sem fyrr segir er Herrafataverslun
Birgis að Fákafeni 11 og Birgir minnir
á að þar er alltaf nóg af bílastæðum.
Opið er 10–18 mánudaga til föstu-
daga og 11–16 á laugardögum. n