Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Page 46
Helgarblað 27.–30. nóvember 20156 Jólagjafahandbók - Kynningarblað
Björgvin Halldórsson afhjúpar
eftirminnilegustu jólagjöfina
Muhammed Ali var átrúnaðargoðið
Þ
egar ég var að komast á
unglingsárin var hnefa-
leikakappinn Cassius Clay,
öðru nafni Muhammed Ali,
átrúnaðargoð ungra pilta.
Faðir min var skipstjóri og stýrimað-
ur á togara allt sitt líf og fór oft í sigl-
ingar og kom heim færandi hendi
með framandi gjafir handa okkur
krökkunum. Í einni ferðinni kom
hann með eftirminnilegustu gjöf-
ina. Ekta par af rauðum box-
hönskum sem sjást hér á
meðfylgjandi mynd.
Vinirnir öfunduðu
strákinn mikið af
þessu hönskum,
man ég.“
Þetta segir
stórsöngvar-
inn og þjóðar-
gersemin
Björgvin Hall-
dórsson um
eftirminnileg-
ustu jólagjöf-
ina sem hann
hefur fengið, en á
meðfylgjandi mynd má
sjá Björgvin kornungan með
þessa forláta hanska.
Eins og vanalega er mikið að
gera hjá söngvaranum fyrir jólin
við að gleðja landsmenn með tón-
list sinni. Núna er kominn út 40 laga
diskapakki með mörgum af þekkt-
ustu lögum Björgvins og þann 12.
desember heldur hann glæsilega
stórtónleika í Laugardalshöllinni. n
Mynd MuMMi Lu
N
úna er sá tími að hefjast
þegar menn fata sig upp
fyrir jólin. Eiginkonurnar
koma þá gjarnan með og
fylgjast með hvað grípur
augu eiginmannanna í búðinni,
hvort eru þeir til dæmis að gefa ein-
hverri fallegri peysu gaum eða þess
háttar, og fá þannig hugmyndir að
jólagjöfum,“segir Georg Kári Hilm-
arsson, hjá Herrafataverzlun Kor-
máks & Skjaldar. Verslunin, sem
lengi hefur verið þekkt fyrir klass-
ískan stíl og föt fyrir sanna herra-
menn, er staðsett í Kjörgarði,
Laugavegi 59. Í upphafi höfðaði
verslunin mest til mikilla sundur-
gerðarmanna í klæðaburði en vin-
sældir hennar eru fyrir löngu orðn-
ar almennar, enda úrvalið slíkt að
sem flestir ættu að geta fundið eitt-
hvað við sitt hæfi.
„Hingað kemur afar breiður
aldurshópur, elstu fastakúnnarnir
okkar eru um áttrætt og þeir yngstu
um fermingaraldur,“ segir Georg
en hann tíndi til nokkur dæmi
fyrir blaðamann DV um vinsælar
jólagjafir þetta árið.
Chippawa-skór
„Núna er sá tími runninn upp að
menn vilja eyða örlítið meiri pen-
ingum í skó. Uppáhaldsskórnir mín-
ir núna eru Chippawa sem er am-
erískt merki. Þeir eru sterkbyggðir
úr góðu leðri með vibram-sóla og
framleiddir í Ameríku. Maður borg-
ar aðeins meira fyrir vandaða skó
en yfirleitt eru þeir góð fjárfesting
því þeir endast svo lengi. Auk þess
er miklu auðveldara að gera við og
sóla góða skó. Fyrir skóböðul eins
og mig er þetta kærkomið. Ég hef
keypt marga ódýrari skó og ég get
verið ansi fljótur með þá.“
Útbreiðsla vaxjakkans
Annað sem verður áberandi fyrir
þessi jól er vaxjakkinn. Tími hans
er nefnilega ekki liðinn heldur er
runnið upp nýtt þróunarskeið hans.
Áður þótti dálítið spjátrungslegt að
vera í vaxjakka en núna er notkunin
að verða mjög almenn. Georg seg-
ist hafa fundið fyrir mjög vaxandi
sölu á þessum flíkum frá því í haust
og það eigi bara eftir að fara vaxandi
fram að jólum.
„Það tók smá tíma fyrir vaxjakka
að festa sig í sessi en hið klassíska
útlit hans ásamt notagildi hefur
snúið blaðinu við, enda fáar flíkur
jafn heppilegar fyrir íslenska veðr-
áttu. Svo endast þeir vel og verða
fallegri með aldrinum.“
Andersen-Andersen peysurnar
Dönsku peysurnar frá Andersen-
Andersen verða vinsælar jólagjafir
fyrir þessi jól:
„Rosalega fínar og í miklu uppá-
haldi hjá mér núna. Þær eru úr af-
skaplega fínni ítalskri merino-ull,
gerðar á Ítalíu fyrir danskt fyrir-
tæki. Eru til í fjórum litum. Þær eru
symmetrískar og því skiptir ekki
máli hvort þú snýrð þeim fram eða
aftur. Litirnir eru þessi klassíski blái
sailor-litur, svartur, rosalega fallegur
grænn jarðlitur og svo rjómahvítur.“
Skyrturnar frá Kormáki & Skildi
Verslunin er með sína eigin fatalínu
og heitir innanhúsmerkið þeirra
Kormákur & Skjöldur. Auk þess að
framleiða jakkaföt og peysur má
finna mikið og gott skyrtuúrval við
allra hæfi. „Karlmenn þurfa alltaf að
eiga töluvert úrval af skyrtum,“ segir
Georg og skyrturnar frá Kormáki
og Skildi koma þar sterkar inn. Þær
eru til í hinum ýmsu efnum og snið-
um og ávallt spennandi að sjá nýjar
tegundir í hverri línu. n
Fyrir herramenn á öllum aldri
Herrafataverzlun Kormáks & Skjaldar