Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Qupperneq 52
Helgarblað 27.–30. nóvember 201512 Jólagjafahandbók - Kynningarblað
Gefðu sanna gjöf
Þetta gáfum við
Dæmi um hvað Íslendingar gáfu börnum
víða um heim árið 2014
n 1.323 lítra af næringarmjólk
n 12.750 pakka af jarðhnetumauki
n 11.370 skammta af bóluefni gegn mislingum
n 335.800 skammta af bóluefni gegn mænusótt
n 7.420 stílabækur og blýanta
n 93 pakka til varnar ebólu
n 440 moskítónet
n 17 Skóla í kassa
n 307 fótbolta
n 340 hlý teppi
n Mikið magn bóluefna, lyfja og skólagagna
er sent til Búrkína Fasó, Afganistan, Suður-
Súdan og víðar í gegnum sannar gjafir.
n Næringarsölt voru send til Sýrlands.
n Mikið af næringargögnum s.s. næringar-
mjólk, vítamínbætt hnetusmjör, ungbarna-
vigtir og næringarsölt var sent til Nepal.
n 14.086 fjölskyldupakkar til varnar ebólu
voru sendir til Líberíu og Síerra Leóne.
n Þroskaleikföng voru send til Palestínu.
n 396.152 pakkar af næringarmjólk voru
meðal annars sendir til Afganistan, Nepal,
Mjanmar og Malaví.
n 90.550 moskítónet voru send til Búrkína
Fasó, Mið-Afríkulýðveldisins, Eþíópíu og
Suður-Súdan.
n 2.849 Skólar í kassa voru sendir til
Kamerún, Lýðveldisins Kongó, Líberíu,
Senegal, Gíneu og Malí.
n 52.600 teppi voru send til barna í Serbíu,
Kamerún, Mið-Afríkulýðveldinu, Gana og
Suður-Súdan.
Sannar gjafir UNICEF eru lífsnauðsynleg hjálpargögn fyrir bágstödd börn
Þ
ú getur gefið gjöf sem hefur
áhrif á gang mála í heimin-
um. Sannar gjafir UNICEF
færa bágstöddum börnum
um allan heim lífsnauðsyn-
leg hjálpargögn. UNICEF eru
stærstu barnahjálparsamtök í heimi
og starfa í 196 ríkjum. Gjöfunum er
dreift til barna og fjölskyldna þeirra í
samfélögum þar sem þörfin er mest
hverju sinni.
Hjálpargögnin eru ýmiss konar og
í öllum verðflokkum. Til að mynda er
hægt að kaupa teppi, bólusetningar
og námsgögn en öll þessi hjálpar-
gögn eiga það sameiginlegt að bæta
líf barna víða um heim.
Á vefnum Sannar gjafir velur þú
hvernig gjöf þú vilt kaupa, skrifar
persónulega kveðju til vina og vanda-
manna og að lokum færð þú sent fal-
legt gjafabréf með lýsingu á gjöfinni.
UNICEF sér svo um að gjöfin berist til
barna sem eiga um sárt að binda.
Þú getur meðal annars keypt þetta:
Skóli í kassa: Gerir börnum kleift
að halda skólagöngu sinni áfram
eftir að neyðarástand hefur komið
upp. En við slíkar að-
stæður er mikil-
vægt að börn fái
tækifæri til þess að
dreifa huganum og
huga að hversdagslegum
hlutum eins og námi og
leik. Í kassanum eru skólagögn fyrir
40 börn.
Næringarmjólk: Inniheldur kol-
vetni, fitu, vítamín og öll þau steinefni
sem eru lífsnauðsynleg fyrir börn sem
þjást af alvarlegri vannæringu. Hún
gerir hreinlega kraftaverk fyrir alvar-
lega vannærð börn og skiptir sköpum
fyrir þroska þeirra og uppvöxt.
Bóluefni gegn mænusótt: Eina
leiðin til þess að koma í veg fyrir að
mænusótt valdi lömun er bólusetn-
ing. Í dag eru aðeins þrjú ríki þar
sem mænusótt er enn landlæg og
er stefnt að því að útrýma henni
alfarið.n
Skóli í kassa Hér má sjá
svokallaðan skóla í kassa, sem
gerir börnum kleift að halda
skólagöngu sinni áfram eftir
að neyðarástand hefur kom-
ið upp. Í hverjum kassa eru
skólagögn fyrir fjörutíu börn.
Í skólanum Þessi börn í Kuleshwor-skólanum í Kathmandu eru sæl í sinni enda fá þau að
fara í skólann. Þegar þessi mynd var tekin voru þau að mæta í fyrsta sinn eftir jarðskjálftana í
Nepal. Skólinn þeirra skemmdist mikið í jarðskjálftanum og var ekki öruggur fyrir vikið. Börnin
fengu því að mæta í skóla í húsnæði sem UNICEF sá þeim fyrir. Börnin fengu þar að auki skóla-
pakka sem í er lærdómsefni en einnig fengu kennarar sérstakt námsefni þar sem þeim er
kennt að takast á við félagslegar og sálfræðilegar afleiðingar jarðskjálftans með börnunum.
Hvert fara gjafirnar?
Bólusett Þessi
litla stúlka sýnir
á sér litla fingur,
en honum hefur
verið dýft í blek
til að sýna að
hún hefur fengið
bólusetningu
fyrir mislingum,
rauðum hundum og
lömunarveiki. Hún
býr í Nepal og fékk
bólusetninguna
eftir jarðskjálftann
sem reið yfir landið í
apríl síðastliðnum.
Í hátíðarbúningi Hér
má sjá bóluefni gegn
mislingum.
Skólastúlkur Hér má sjá nepalskar skóla-
stúlkur nota skólagögn frá UNICEF.
Þráðlausir hátalarar og
heyrnartól eru jólagöfin í ár
Fakó býður einstaklega aðlaðandi tegundir af þessum nýju græjum
S
tarfsfólk verslunarinnar
Fakó, Laugavegi 37, skynjar
að þráðlausir hátalarar
og heyrnartól eru jóla-
gjöfin í ár en þessar vörur
vekja mikinn áhuga og njóta feiki-
legra vinsælda hjá viðskiptavinum
verslunarinnar. Fakó er með þrjár
spennandi gerðir af þráðlausum
hátölurum til sölu og eina tegund
af heyrnartólum. Þetta eru vörur frá
danska fyrirtækinu Kreafunk, mjög
falleg hönnun:
„aGROOVE er hátalari sem hent-
ar til dæmis í smærri herbergi og til
að tengja við tölvuna þegar horft
er á eitthvað í henni. Hann kostar
10.900 kr. Næsta stærð fyrir ofan er
síðan aMOVE, hann er heldur öfl-
ugri og er einnig með innbyggðum
hljóðnema, þannig að ef maður er
með síma tengdan við þennan há-
talara og síminn hringir þá er hægt
að nota hátalarann til að svara sím-
tölum. Það er líka hægt að nota
hann til að hlaða símann. Ef síminn
er batteríslaus er hægt að hlaða sím-
ann frá batteríinu í hátalaranum,“
segir Jóhannes Ómar Sigurðsson,
annar af eigendum
verslunarinnar.
Þess má geta að
allir hátalararn-
ir eru með inn-
byggðri Lithium
-rafhlöðu og
því er hægt að
hlaða þá með
símahleðslu-
tækinu eða
hvaða USB-
tengi úr
tölvu sem er.
„Þriðja gerðin er
aGLOW, hann er öflugastur.
Hljóðið er allan hringinn á honum,
það berst 360 gráður. Það hentar því
mjög vel að vera með hann á borði.
Það er hægt að kveikja á honum
ljós, þannig að gott er að vera með
hann til dæmis úti á verönd í sum-
arbústað. Tengja þá hátalarann til
dæmis við símann. Einnig er hægt
að svara símtölum í honum. Hann
kostar 19.900 kr.“
„Síðan erum við með þráðlaus
heyrnartól sem eru nett og falleg
og fara fólki vel. Þau eru líka
til í mörgum lit-
um. Heyrnar-
tólin eru með
innbyggðum
hljóðnema
þannig að
ef maður
er með sím-
ann í vasanum
tengdan við þau
og síminn hringir, þá ýtir maður
bara á takka á heyrnartólunum og
getur byrjað að tala í símann. Þau
kosta 17.900 kr.“
Hátalararnir og
heyrnartólin gera verið
í allt að 25 metra fjar-
lægð frá tækinu sem
þau eru tengd við
og rafhlöðuhleðslan
endist í 14–24 tíma
spilun. Þau eru tengd
við ýmist snjallsíma
eða fartölvur sem
eru með Bluetooth-
tengingu en svo gildir
um flest slík tæki í dag.
Hátalarana, heyrnartólin
og margs konar aðrar spennandi
og fjölbreyttar jólagjafir frá Fakó má
sjá á heimasíðu verslunarinnar og á
Facebook-síðunni. n