Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Page 53
Helgarblað 27.–30. nóvember 2015 Kynningarblað - Jólagjafahandbók 13
Meba, Rhodium og Meba-Rhodium í Kringlunni og Smáralind
Splunkuný úralína í retro-stíl
og íslensk skartgripahönnun
S
pennandi, fallegar og heill-
andi gjafahugmyndir er að
finna í verslununum Meba
og Rhodium í Kringlunni
og Meba-Rhodium í Smára-
lind. Í spjalli við Unni Eir Björns-
dóttur, einn af eigendum verslan-
anna, er áherslan annars vegar á
nýja og afar spennandi línur í úrum
og hins vegar í fjölbreyttri íslenskri
skartgripahönnun:
„Við erum að taka inn tvær nýjar
gerðir af úramerkjum, annars vegar
Henry London og þau úr eru í retro-
stíl með lituðum skífum í gömlum
litatónum. Alveg eins og úrin voru í
gamla daga með þessu kúpta gleri.
Virkilega falleg og þessir retro-litir
eru einstaklega flottir,“ segir Unnur,
en hin nýja úrategundin er íslensk
hönnun:
„Arctic-úrin, en þeir eru komnir
með nýja línu sem er líka í þessum
retro-stíl sem virðist vera gegnum-
gangandi, en samt öðruvísi en hin
frá Henry London. Þau eru afar stíl-
hrein og eru með tveimur gerðum af
ólum, annars vegar leðuról og hins
vegar nato-ól.“
Íslensk hönnun er í öndvegi í
skartgripaúrvali Meba-Rhodium-
verslananna, segir Unnur:
„Við erum að auka úrvalið í ís-
lenskri hönnun, sem er á mikilli
uppleið. Við erum að selja vörur frá
mörgum íslenskum gullsmiðum og
flóran er afskaplega fjölbreytt. En
við höldum einnig mikla úrvalinu
í innfluttu skartgripunum eins og
síðustu ár.“
Ástæða er til að hvetja fólk til að
kynna sér íslenska skartgripaflóru
eins og hún birtist í Meba- og Rhodi-
um-verslununum vegna gæðanna,
fjölbreytninnar og gróskunnar sem
ríkir á þessu sviði. Fjölbreytt verð
gerir að verkum að þar eru jólagjafir
við allra hæfi.
„Mér finnst íslenska hönnunin
vera á alveg sérlega góðu verði,“ bæt-
ir Unnur við.
Öflug viðgerðarþjónusta og gegn-
heil fagmennska á sviði gullsmíði og
úrasmíði er veigamikill þáttur í starf-
semi Meba og Rhodium:
„Við erum með fagfólk í vinnu hjá
okkur, bæði úrsmiði og gullsmiði,
þannig getum við tryggt ábyrgð á
skartgripum og gæði þeirra. Við
erum með bæði úrsmíðaverkstæði
og gullsmíðaverkstæði og erum
með þjónustu í kringum okkar vöru
frá a til ö. Einnig tökum við að okkur
að áletra á hluti.“
Í Kringlunni er annars vegar
að finna verslunina Meba og hins
vegar Rhodium. Í Smáralind eru
verslanirnar síðan sameinaðar í
einni verslun: Meba-Rhodium.
Nánari upplýsingar má fá á
heimasíðunni og Facebook-síð-
unni n