Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Blaðsíða 55
Helgarblað 27.–30. nóvember 2015 Kynningarblað - Jólagjafahandbók 15
JÓLATILBOÐ
Á ÖLLUM SÆNGUM OG KODDUM
Laugavegi 86 | S:511 2004 | dunogdur.is
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
dunOgFidurJolatilbod.pdf 1 26.11.2015 13:54:11
Jólagjafir handa
þeim sem eiga allt
Amíra, Ármúla 23
Þ
að eru ansi margir sem
klóra sér í hausnum þegar
velja þarf jólagjafir því
svo margir ættingjar og
vinir eru þannig settir að
þeir „eiga allt“ eins og það er kall-
að. Fyrir þá sem vantar hugmynd-
ir að jólagjöfum handa slíku fólki
er tilvalið að kíkja í Amíra, Ármúla
23, því þar kennir svo sannarlega
ýmissa grasa og úrvalið af alls kon-
ar gjafavörum er mjög fjölbreytt.
„Við erum með fínar vörur fyrir
þá sem eiga allt, við erum með
jólavörur, jólaskraut með gull- og
silfurhúð frá Danmörku; einnig
stálvörur frá Noregi, til dæmis
hnífapör og kökusett. Svo erum við
með fallega skúlptúra, kertastjaka
og þess háttar,“ segir Guðrún Elín
Guðmundsdóttir hjá Amíra. Hún
og viðskiptavinir hennar eru sér-
staklega ánægðir með nýja línu frá
Svíþjóð:
„Þetta sænska merki heitir Jelly
Bean og við erum með rosalega
skemmtilegar og litríkar glervörur
frá þeim, desertskálar, kökudiska
og þess háttar.“
Sængurföt í sérflokki
„Við erum bara með sængurföt úr
100% bómull, hágæða sængurföt
á viðráðanlegu verði. Það er
æðislegt að sofa í þeim og þau
endast afskaplega vel. Þá er ekki
síst kostur að þau upplitast ekki í
þvotti, þó að maður sé að margþvo
þau,“ segir Guðrún.
Það er ógjörningur að telja upp
allt sem í boði er í jafn fjölbreyttri
verslun og Amíra. Sjón er sögu rík-
ari. Guðrúnu langar þó að nefna
eina línu sem hefur fengið afskap-
lega góðar viðtökur:
„Við erum með rosalega flottar
vörur frá London frá merkinu
Kenneth Turner en það eru ilmefni
fyrir heimilið, ilmúði og ilmkerti.
Þetta er hágæðavara og endingar-
tíminn á kertunum er afskaplega
langur. Enn fremur erum við með
einstaklega fallegar kristals vörur
frá þessu sama fyrirtæki.“
Amíra er, eins og fyrr segir, að Ár-
múla 23. Verslunin er opin 11 til 18
virka daga og 12 til 16 á laugardög-
um. Á vefsvæði verslunarinnar, má
sjá stóran hluta af þeim vörum sem
í boði eru. Á Facebook-síðu verslun-
arinnar eru síðan reglulega uppfærð-
ar upplýsingar um nýjar vörur og þar
má sjá fallegar myndir af vörunum. n