Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Qupperneq 74
Helgarblað 27.–30. nóvember 201558 Skrýtið Sakamál
„Ég þarf að drepa.
Ég ætti að hafa
heimild til að drepa.E
inu sinni var maður sem bjó
í Leer, litlum bæ í Neðra-
Saxlandi í Þýskalandi. Mað-
urinn hét Matthias Steiner
og hann bjó einn og hlust-
aði á þungarokk. Hann hafði sett
mynd af sér á netið sem sýndi hann
með skammbyssu í annarri hendi
og tennta sveðju í hinni. Matthias
var með úfið, axlasítt hár og skartaði
alla jafna sólgleraugum – að sumra
sögn var hann birtingarmynd þýsks
Vítisengils. Íbúar Leer höfðu illan
bifur á Matthias og stóð í raun ógn
af honum.
Sprenging skekur hverfið
Sem fyrr segir bjó kappinn einn en
nágrannar höfðu stundum séð hann
í félagsskap ungrar, ljóshærðrar konu
og sú var einmitt raunin að kveldi 19.
febrúar 2008.
Næsta morgun hrukku nágrannar
Matthiasar í kút og svelgdist án efa á
svínafleskinu þar sem þeir sátu mak-
indalegir við morgunverðarborðið.
Gríðarleg sprenging varð í íbúð
Matthiasar og eldtungurnar teygðu
sig út um gluggana. Nágrannarnir
höfðu ekki náð að jafna sig þegar þeir
sáu Matthias skunda, með bakpoka
á bakinu, að rauðri Ford Escort-bif-
reið sinni og síðan aka á brott eins og
skrattinn væri á hælum hans.
Á Escort inn í eilífðina
Um svipað leyti og slökkvilið náði að
slökkva eldana í íbúð Matthiasar sá
lögreglan rauða Escort-bifreið sem
ekið var á 160 kílómetra hraða og hóf
eftirför.
Lögreglan náði að aka upp að hlið
Matthiasar sem sá sitt óvænna, snar-
beygði og ók beint framan á sendibif-
reið sem kom úr gagnstæðri átt.
Við áreksturinn gjöreyðilagðist
framendi bíls Matthiasar og þótt bíl-
stjóri sendibifreiðarinnar slyppi lítt
slasaður var ekki sömu sögu að segja
um Matta karlinn sem ók bókstaflega
inn í eilífðina.
Skammbyssa, sveðja og höfuð
Fyrir Matthias var ekkert hægt að
gera – aldrei myndi hann finna lækn-
ingu gegn krabbameini eða kvefi,
hann hafði unnið sitt síðasta afrek.
En í eyðilagðri Escort-bifreiðinni
fann lögreglan skammbyssu og
sveðju í farþegasætinu fram í og í aft-
ursætinu gægðist höfuð út úr bak-
poka Matthiasar.
Brátt kom í ljós að höfuðið til-
heyrði Biöncu Kost, ungu kon-
unni sem hafði stundum heim-
sótt Matthias. Það sem upp á
vantaði fundu slökkviliðsmenn í íbúð
Matthiasar – í sófanum lá nakið, höf-
uðlaust lík Biöncu og blóðug sveðja
fannst í baðkarinu.
Vorkenndi Matthias
Sambýlismaður Biöncu, Bernardt,
vissi að hún hafði heimsótt Matthias
endrum og sinnum, en eingöngu
sem vinur. Að sögn Bernardts hafði
hún vorkennt Matthias.
Lögreglan leiddi að því líkur að
Bianca hefði heimsótt Matthias og
að þau hefðu deilt um eðli sambands
þeirra og þeim deilum hefði lyktað
með því að Matthias kyrkti Biöncu.
Merkilegt nokk þá hafði Matthias
tilkynnt um fyrirætlanir sínar á
netinu nokkrum klukkustundum fyrr
og sennilega hafði Bianca verið á leið
til hans á þeirri stundu.
Eftirmæli Matthiasar
Í orðsendingu Matthiasar sagði: „Ég
veit hvað sagt verður í blöðunum eft-
ir að líkið finnst. Þeir munu segja að
ég sé brjálaður, háður ofbeldismynd-
um og vopnum og enn fremur að ég
sé nýnasisti, og það er allt satt. Ég
þarf að drepa. Ég ætti að hafa heimild
til að drepa. Þeir sem ég vil drepa eru
skriffinnar, lögfræðingar og dómarar
og allir þeir sem hafa sýnt mér órétt-
læti. Ég á enga framtíð og ég vil ekki
lifa í svona samfélagi.“ Svo mörg voru
þau orð. n
Válegur Vinskapur
n Bianca vildi sýna vinsemd n Matthias vildi kannski annað
Matthias
Steiner
Gæfulegur
með byssu og
sveðju.
Bianca Kost
Vinskapur hennar
reyndist vábeiða.
B
resk kona hefur verið dæmd
til 15 ára fangelsisvistar fyr-
ir að hafa, að áeggjan dóttur
sinnar, reynt að ráða eigin-
mann sinn af dögum. Ambögur í
stafsetningu komu upp um hana.
Reuters greinir frá þessu.
Í tvígang, eftir rifrildi þeirra
hjóna, reyndi Jacqueline Pat-
rick, 55 ára, að koma eigin-
manni sínum, hinum sjötuga
Douglas, fyrir kattarnef. Fyrst
í október 2013 en svo á sjálfan
jóladag sama ár. Í bæði skipti
blandaði hún frostlegi saman
við ódýrt Lambrini-freyði-
vín, sem hann teygaði. Þegar
sjúkraflutningamenn komu á
vettvang afhenti eiginkonan
sjúkraliðunum bréf sem átti
að vera frá manninum. Í því
stóð að hann kærði sig ekki
um að verða endurlífgaður. Á
sjúkrahúsinu var Douglas hætt kom-
inn og læknum tókst fljótlega að
komast að því hvers kyns var. Það
var þá sem það rann upp fyrir eigin-
konunni að hún gæti hafa séð hann
drekka torkennilegan bláan vökva.
Sú söguskýring vakti grunsemdir
lækna og lögregla var kölluð til.
Á miðanum áðurnefnda var
orðið virðing (e. dignity) staf-
sett „dignerty“. Þetta átti eft-
ir að reynast örlagarík stafsetn-
ingarvilla því við skýrslutöku
var konan beðin um að stafsetja
orðið á nýjan leik. Þar ritaði hún
orðið aftur eins. Í síma konunn-
ar fundust fjölmörg skilaboð
á milli konunnar og dóttur
hennar þar sem þær lögðu á
ráðin. Dóttirin, Katherine, 21
árs, hlaut þriggja ára dóm eftir
að hafa gengist við því að hafa
egnt móður sína áfram. n
Stafsetningin felldi hana
Eiginkona reyndi að myrða mann sinn með frostlegi
Lambrini með
kirsuberja-
bragði Þetta er
freyðivínið sem
maðurinn drakk.
V A R M A D Æ L U R