Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Side 78
Helgarblað 27.–30. nóvember 201562 Lífsstíll
Mest seldu
sendibílar
Evrópu
Gríðarsterk sendibílalína Ford
Ford hefur hlotið titilinn Sendibíll ársins –
International Van of the Year árin 2013 og 2014.
Í áratugi hafa fyrirtæki sett traust sitt á styrk,
virkni og áreiðanleika Ford Transit enda
mest seldu sendibílar Evrópu síðustu 40 ár.
Ford Transit Connect, EcoBoost bensín 100 hö. beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 5,6 l/100 km. CO2 losun 129 g/km. Verð með bensínvél frá 2.950.000 m/vsk.
Ford Transit Connect, 1,6TDCi dísil 75 hö. beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 4,4 l/100 km. CO2 losun 115 g/km. Verð með dísilvél frá 3.210.000 m/vsk.
Ford Transit Custom, 2,2TDCi dísil 100 hö., 6 gíra beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 6,9 l/100 km. CO losun 183 g/km. Verð frá 4.330.000 m/vsk.
Ford Transit Van, 2,2TDCi dísil 125 hö. 6 gíra beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 7,3 l/100 km. CO2 losun 194 g/km. Verð frá 5.495.000 m/vsk.
Tökum allar tegundir bíla upp í nýja. Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu.
FORD TRANSIT CUSTOM
FR
Á
FORD TRANSIT VAN
FR
Á
FORD TRANSIT CONNECT
FR
Á 2.379.032 3.491.935 4.431.452
ford.is
KR. KR. KR.
ÁN VSKÁN VSKÁN VSK
Kíktu í kaffi og spjall. Í sameiningu finnum
við hagstæða fyrirtækjalausn fyrir þig.
Veldu traust umboð með einstöku þjónustu-
framboði fyrir bíla- og tækjaflota.
Eigum 18 sæta Transit rútur ásamt Transit
sendibílum til afhendingar strax.
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16.
Varahlutaverslun og verkstæðismóttaka er einnig opin laugardaga kl. 12-16.
20 ára
afmæli
Fordhjá Brimbor
g
FÁANLEGUR SJÁLFSKIPTUR FÁANLEGUR 9 SÆTA FÁANLEGUR AWD
Transit_3bílar_5x18_20150903_END.indd 1 4.9.2015 17:12:57
S
umir prjóna eða fara í fjall-
göngur en ég skrifa,“ segir
Kristín Margrét Kristmanns-
dóttir, höfundur barnabók-
arinnar Vikkala Sól og ham-
ingjukrúsin.
Form án takmarkana
Kristín Margrét, sem vanalega er
kölluð Kría, er leiklistarmenntaður
jógakennari og fjögurra barna móð-
ir sem hefur lengi gengið með þann
draum að gerast rithöfundur. „Ég
hef ástríðu gagnvart skrifum og
bókum, sérstaklega barnabókum. Á
kvöldin þegar aðrir hanga yfir sjón-
varpinu er ég að skrifa og á því mikið
af handritum og hugmyndum ofan í
skúffu. Það er líka ekkert skemmti-
legt að fara með mér í búðir því ég
enda alltaf í barnabókabúðunum,
eins og krakki í nammibúð. Heim-
ur barnabóka er bara svo heillandi.
Þetta er skemmtilegt form – algjör-
lega án takmarkana.“
Börnin gagnrýnendur
Kría segir börnin sín fjögur hennar
bestu gagnrýnendur. „Ég kalla reglu-
lega í þau og les fyrir þau. Ef þau
halda athygli og jafnvel hlæja veit
að ég er á réttri leið. Börn eru svo
heiðarleg og fljót að ganga í burtu
ef sagan er ekki nógu skemmti-
leg. Myndskreytirinn minn, Herdís
Björk, hefur einnig fengið börnin sín
tvö til að skoða teikningarnar. Börn
eru náttúrlega snillingar í að láta
mann vita hvort maður sé að gera
rétt eða rangt.“
Líf í gleði betra
Kría fékk hugmyndina að bókinni
eftir að hafa haldið úti svokallaðri
hamingjukrús þar sem hún skrifaði á
miða það sem gerði hana glaða þann
daginn. „Það gat verið hvað sem er,
bara að hitta óvænt vin í Bónus,
borða góðan mat eða bara að fá að
vakna um morguninn. Þetta smitað-
ist fljótt yfir á aðra fjölskyldumeðlimi
og út úr þessu spruttu oft skemmti-
legar samræður. Við fundum öll
hvað þetta gerði okkur gott og fyrir
vikið varð til meiri núvitund á heim-
ilinu – við urðum meðvitaðri um það
sem er gott og skemmtilegt. Lífið er
stutt og dýrmætt og alls ekkert sjálf-
gefið og með því að einblína á það
góða getum við gert það aðeins létt-
ara. Lífið er líka miklu skemmtilegra
í gleði.“
Troðfullar hamingjukrúsir
Í dag eru hamingjukrúsirnar á heim-
ili Kríu orðnar hvorki meira né
minna en fjórar talsins. „Og allar
troðfullar. Svo ef þannig ber und-
ir og manni finnst maður þurfa á
smá áminningu að halda getur mað-
ur tekið einn miða upp úr og séð að
hamingjan er allt um kring. Maður
þarf bara að vera meðvitaður um
að sjá hana. Auðvitað koma dagar
inn á milli sem eru grámyglulegir og
leiðinlegir en það er þó alltaf hægt að
finna eitthvað sem gleður okkur. Þótt
það sé ekki nema það að fá að vakna
um morguninn.“
Leitin að hamingjunni
Vikkala Sól fjallar um stúlkuna
Viktoríu Sól sem, eins og mörg börn,
á erfitt með að bera nafnið sitt rétt
fram. „Bókin fjallar um þennan
gleðigjafa sem, eins og við hin, er að
leita að þessari blessaðri hamingju.
Líf hennar er ekki alltaf skemmtilegt
en bókin fjallar um hennar leiðangur
að hamingjunni. Markmið mitt er að
bókin sé skemmtileg lesning en það
skemmir ekkert fyrir ef hún fær þótt
ekki sé nema eitt barn til að spyrja sig
hvað það sé sem geri það hamingju-
samt. Það er nefnilega svo sterkt að
vita það svo maður geti gert meira af
því.“ n
„Lífið er skemmtilegra í gleði“
Kría fékk hugmyndina að bók sinni eftir að hafa haldið úti hamingjukrús
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
„Lífið er stutt og
dýrmætt og alls
ekkert sjálfgefið og með
því að einblína á það
góða getum við gert það
aðeins léttara.
Kristín Margrét
Skrifaði bókina Vikkala
Sól og hamingjukrúsin.
Mynd SIgTryggur ArI
Hamingjukrúsin Kristín og fjölskylda bæta reglulega í hamingjukrúsina.