Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Page 80
Helgarblað 27.–30. nóvember 201564 Lífsstíll
Gefum íslenska jólagjöf í ár
Skemmtilegir jólamarkaðir í desember
Í
desember er fátt jólalegra og
skemmtilegra en skella sér á jóla-
markaði. Á mörkuðum er margt
fallegt fyrir augað og þeir geta
verið afar gagnlegir þegar kem-
ur að jólainnkaupum. Jólamarkaði
má finna á víð og dreif um landið
og höfuðborgina þetta árið og ákvað
ég að taka saman þá sem mér þykir
mest spennandi fyrir ykkur lesend-
ur sem hafið áhuga á hönnun og
handgerðum munum.
Hinn árlegi PopUp Verzlun
jólamarkaður í Portinu í
Listasafni Reykjavíkur
Fyrir þá sem leita að góðum kaup-
um og upplifun mæli ég með Pop-
Up Verzlun. Þann 5. desember
verða hönnuðir, myndlistarmenn
og tónlistarfólk á skemmtilegum
markaði í Portinu í Hafnarhúsinu.
Þar verður ógrynni af fallegum vör-
um og listaverkum af ýmsum toga
til sölu fyrir jólapakkann í ár. Pop-
Up Eldhús verður sett upp í fjölnota
rýminu, útgáfuhóf, bókaupplestur,
lifandi tónlistarflutningur og margt
fleira verður á dagskrá. Í fyrra var al-
veg gríðarlega mikil stemning og ég
mæli eindregið með að áhugasam-
ir leggi leið sína í Listasafnið þenn-
an laugardag og styðji um leið ís-
lenska hönnuði og listamenn. Áður
en haldið er á þennan markað ætti
fólk að koma við í hraðbanka og
taka út smá aur, hér er jafnvel hægt
að prútta.
Hönnunarmarkaður í Tjarnarbíói
Menningarlegur markaður verður
haldinn í Tjarnarbíói þar sem lista-
menn og konur, hönnuðir og tón-
listarfólk, munu kynna og selja vörur
sínar á hagstæðara verði en gengur
og gerist laugardaginn 28. nóvem-
ber nk. Meðal þess sem boðið verð-
ur til sölu er fatnaður (fyrir börn
og fullorðna), handprentaðar flík-
ur, fallegir handgerðir skartgripir og
sérsaumaðar töskur. Einnig verða
ýmsir fallegir munir fyrir heimilið til
sölu, t.d. glasamottur, diskamottur,
bollastell, fallegir keramikmunir og
púðar. Allar vörurnar eru hannaðar
og framleiddar á Íslandi. Jólamark-
aður hönnuða í Tjarnarbíói er við-
burður fyrir alla fjölskylduna en boð-
ið verður upp á ljúfa jólatóna, ýmis
tónlistar atriði og notalegt umhverfi
til að tylla sér niður og gæða sér á
hinni margrómuðu súrdeigsloku
Tjarnarbíós. Hægt verður að fá súr-
deigsloku og bjór á 1.500 krónur
meðan á markaðinum stendur.
Jólamarkaður í Húsi
Sjávarklasans
Þann 4. desember, kl. 12–18 verður
sannkölluð jólastemning í Húsi
Sjávar klasans. Þar verður jólamark-
aður með ýmsum spennandi vörum
úr sjávarútvegi og hægt verður að
kaupa milliliðalaust af framleiðend-
um og hönnuðum. Svo er náttúrlega
hægt að nýta ferðina út á Granda og
kíkja í leiðinni í hinar skemmtilegu
búðirnar sem er að finna þar.
Jólamarkaður skógræktar-
félagsins
Fyrsti Jólamarkaður Skógræktar-
innar verður haldinn laugardaginn
28. nóvember, en markaðurinn
verður haldinn allar helgar í að-
ventunni og er að venju við Elliða-
vatn. Jólatréð verður tendrað kl.
11.20, en í ár skreyta hönnuðirnir
Elsa Dagný Ásgeirsdóttir og Auður
Inez Sellgren tréð, sem að þessu
sinni er um þriggja metra há stafa-
fura. Tau frá Togo, Trix og Anna
María munu selja vörur sínar ásamt
öðrum hönnuðum og listamönn-
um. Lifandi tónlist og skemmtun
verður í boði, ásamt afþreyingu fyrir
börnin. n
Hönn-
unar-
Horn
Kolfinna Von Arnardóttir
kolfinna@artikolo.is
Listamenn sem taka þátt eru: Leynibúðin,
Erla Gísla, Puzzled by Iceland, Scent
of Iceland, Royal Donut, MYNKA, Tíra,
Náttuglur, Harlem, Amikat, Töfrahurð,
llDEM, Geislar, Urta, Guggzý, DayNew,
FRIDA, Pastelpaper, Meiður, MEMO, Maja
Stína, Tiny Trésor, Óskabönd, Tindar,
Solids, MARGINALIA, Iceland Modern
Art, Himalaya Magic, Heiða Eiríksdóttir,
Laufey Jónsdóttir, Vagg og Velta, Sigga
Magga, Postulina.
Linnea Hellström, vegan kokkur, og
Krummi Björgvinsson setja upp PopUp-
eldhús með jólakræsingum. Þórarinn
Eldjárn og Elín Gunnlaugsdóttir árita
bókina Björt í sumarhúsi og Valgerður
Guðnadóttir, Jón Svavar Jósefsson og
Una Ragnarsdóttir munu syngja atriði úr
söngleiknum. Kvennakór Kópavogs kemur
og syngur á svölunum kl. 16.00.
Jólamarkaður
í húsi Sjávarklasans
Á markaðinum má meðal annars finna
vörur og kræsingar frá: Íslenska sjávar-
klasanum, Iceland Ocean Fisheries,
Dagný Land Design, Blámar, Opal sjávar-
fangi, Aflakló, Ankra, Dropa, Kristbjörgu
Keramiker, Dóru, Icemedico, Valfoss,
Uggi frá frumkvöðlum úr Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti, Omnom Chocolate,
Marginalía og Geo Silica.Einnig verður í
boði Jólabröns, gjafabréf, hnetusteik í
jólamatinn og veitingar frá Bergsson RE.
Fjölbreytt úrval Þann 28. nóvember má finna flottar íslenskar hönnunar- og listavörur á
markaðinum í Tjarnarbíói
PopUp Verzlun
Skemmtilegur markaður
sem verður haldinn í
Portinu í Hafnarhúsinu
þann 5. desember.
Hönnunarmarkaður
í Tjarnarbíói
Hönnuðir sem selja vörur sínar eru:
Fiona Cribben, Kolbrun, Erlagisla, Leyni-
búðin, Kolbrún Sigurðar, IBA, ByVikingr,
Loksins Guðrún Margrét, Iidem, Geislar,
Harpa Björnsdóttir og Glingling.
PopUp Verzlunog
Smáratorgi · Korputorgi
HUNDAFÓÐUR
FÆST HJÁ OKKUR