Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Side 82
Helgarblað 27.–30. nóvember 201566 Menning
H
ar
ðp
ar
ke
tÞýsk gæði!
Ármúli 32, 108 Reykjavík
Sími 568 1888
www.parketoggolf.is
Í
Landnámabók er sagt frá
Geirmundi nokkrum heljar
skinni, sem er sagður hafa
verið göfgastur allra landnáms
manna. En þrátt fyrir að hafa
verið óhemju valdamikill og ríkur
hefur þögnin sem umlykur ævi
Geirmundar verið óþægilega mikil.
Saga hans hefur aldrei verið rituð,
fyrr en nú.
Bergsveinn Birgisson, rithöfund
ur og doktor í norrænum fræðum,
hefur skrifað þessa nýju fornsögu,
landnámssöguna sem Íslendingar
vildu ekki muna. Hann ímyndar sér
12. aldar munk sem sagnaritarann
og skrifar svo sjálfur lærðan inn
gang að bókinni – í anda íslenskra
menntamanna um miðja 20. öld.
DV settist niður með Bergsveini
og spurði hann um týnda land
námsmenn og fjaðurstafi.
Glansmynd landnáms-
sagnanna ekki sönn
Hver var þessi Geirmundur heljar
skinn og af hverju langaði þig að
segja hans sögu?
„Hann var ekki bara göfgastur,
hér í merkingunni voldugastur og
ríkastur, heldur reið hann milli
búa sinna með áttatíu vopnaða
menn og hlóð niður mönnum sín
um um alla Vestfirði. Hann var ekki
norrænn maður nema til hálfs.
Hann var svartur og ljótur segja
heimildir. Móðir hans segir Land
námabók vera frá Bjarmalandi og
þar virðist faðir Geirmundar hafa
tekið sér konu meðal inúíta þar við
Hvíta hafið. Hann var í samstarfi
við norræna konungsveldið í Dyfl
inni á Írlandi, og færir þeim vörur
sem þeir borga honum fyrir með
írskum þrælum. Þrælana tekur
hann til Íslands til að vinna sjávar
fang, rostungsafurðir eins og reipi
og lýsi fyrir skipamenninguna, og
rostungs tennur, æðardún og margt
fleira sem hans landnám í Breiða
firði og á Hornströndum bauð upp
á. Hann nemur land út frá efna
hagsforsendum einum, þarna er
auðlind og hann virðist koma til að
taka hana. Engar súlur eða flótti frá
Haraldi hárfagra, altso.“
Kenning Bergsveins er að sagan
af Geirmundi hafi ekki hentað þeirri
sjálfsmynd og baksögu þjóðarinnar
sem sagnaritarar vildu miðla þegar
flestar Íslendingasögurnar voru
skrifaðar á 13. öld. Þegar Íslendingar
voru að móta hugmynd um landið
sem jafnræðisþjóðfélag hentaði ekki
að hampa Geirmundi sem var smá
konungur, þrælahaldari og dekkri á
hörund en hinar hefðbundnu nor
rænu hetjur.
„Sú glansmynd sem var búin til
var hins vegar ekki alveg sönn. Hún
var gerð til að fegra og búa til gullna
fortíð. En ég tel að það sé mjög tíma
bært að taka þetta upp og velta fyrir
okkur hvert raunverulegt upphaf Ís
lands hafi verið,“ segir Bergsveinn.
Ekki annars eðlis en hinar
Íslendingasögurnar
„Það er aðeins stigs en ekki eðlis
munur á því sem ég er að gera og
því sem höfundar Íslendingasagn
anna voru að gera fyrir átta hund
ruð árum,“ segir Bergsveinn um
vinnuna á bak við söguna.
Undanfarin ár hefur hann rann
sakað landnámsmanninn í þaula.
Hann hefur grafið upp, safnað
saman og rýnt í allar mögulegar
heimildir um Geirmund og sam
félagið á þessum tíma og reynt að
finna samhengi í þær heimildir. Þá
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Ekki einhver fornfræðaþurs
n Bergsveinn Birgisson segir Geirmundarsögu eiga erindi við samtímann n Skrifuð á fornmáli
G
osminjasýningin Eldheimar
í Vestmannaeyjum hlaut
Hönnunarverðlaun Íslands
sem voru veitt í annað sinn
á Kjarvalsstöðum á þriðjudag. Þá
hlaut stoðtækjafyrirtækið Össur
verðlaun fyrir bestu fjárfestingu í
hönnun 2015.
Eldheimar er verk Axels Hallkels
Jóhannessonar sýningarhönnuðar,
Gagarín, sem hannaði gagnvirkan
sýningarhluta, arkitektsins Margrét
ar Kristínar Gunnarsdóttur og Lilju
Kristínar Ólafsdóttur landslagsarki
tekts. Í rökstuðningi dómnefndar
segir: „Sýningin miðlar einstökum
atburði í náttúrusögu Íslands með
framúrskarandi hætti. Sýningin er til
vitnis um hugmyndaríkar og vel út
færðar leiðir til að ná til gesta með
öflugum sjónrænum og gagnvirk
um hætti. Verkefnið er einstaklega
metnaðarfullt og gildi þess ótví
rætt þegar litið er til þverfaglegs
samstarfs hönnuða og arkitekta.“
Að launum fær sigurvegarinn pen
ingaverðlaun að upphæð 1.000.000
krónur, en þau eru veitt af iðnaðar
og viðskiptaráðherra
Önnur verkefni sem hlutu til
nefningar í ár voru landslagsverk
ið Allt til eilífðar eftir Studio Granda
og Kristin E. Hrafnsson, Íslenski fán
inn eftir grafíska hönnuðinn Hörð
Lárusson, skartgripalínan Primitiva
eftir Katrínu Ólínu Pétursdóttur og
fatahönnun Anítu Hirlekar. n
kristjan@dv.is
Eldheimar hlutu
Hönnunarverðlaunin
„Verkefnið er einstaklega metnaðarfullt“
Úr listheiminum
Listahátíð í Reykjavík verður haldin á tveggja ára fresti eftir árið 2016. Þetta var ákveðið
á ársfundi fulltrúaráðs hátíðar
innar og er markmiðið með
breytingunni sagt vera að efla
hátíðina listrænt og rekstrarlega.
Tekjur hátíðarinnar hafa dreg
ist mjög saman á síðasta áratug
meðal annars vegna lækkandi
framlaga opinberra aðila.
Á sama fundi tók Þórunn Sig
urðardóttir við
af Kjartani Erni
Ólafssyni sem
stjórnarformaður
hátíðarinnar. Þórunn var listrænn
stjórnandi Listahátíðar frá 2000 til
2008 og stjórnarformaður hennar
árin 1996 til 1998.
Framleiðslufyrirtækið Pegasus
hefur keypt
kvikmynda
rétt á Nautinu,
nýjustu skáldsögu
Stefáns Mána. Baldvin Z hefur
verið fenginn til að leikstýra og
er ætlunin að gera sjónvarps
þætti eftir úr bókinni.
Danslífið í Reykjavík er blómlegt þessa dagana. Vel heppnuð nóvemberútgáfa
Reykjavík Dance Festival fór
fram um daginn. Þá eru þrjár
nýjar íslenskar danssýningar
sýndar í leikhúsum borgarinn
ar: Og himinninn kristallast í
Borgarleikhúsinu, The Valley og
This conversation is missing a
point í Tjarnarbíói. En aukasýn
ing verður á þeirri síðastnefndu
á mánudagskvöld vegna mikilla
vinsælda.
Fiskarnir hafa engar fætur eftir
Jón Kalman
Stefánsson er
besta erlenda
skáldsagan sem gef
in var út í Frakklandi árið 2015
samkvæmt franska bókmennta
tímaritinu Lire. Þetta var til
kynnt í París á miðvikudags
kvöld.