Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2015, Side 84
Helgarblað 27.–30. nóvember 201568 Menning
Smáatriðin
skipta öllu máli
Mark Lewisohn hefur skrifað ítarlegustu bók sem komið hefur út um sögu bítlanna
S
aga Bítlanna er ein af
þessum örfáu sögum í lífinu
þar sem hvert einasta smá
atriði er gríðaráhugavert
og skiptir miklu máli fyrir
heildarmyndina,“ segir Mark Lewis
ohn, einn allra helsti Bítlafræðingur
heims.
Á dögunum kom út á íslensku
bókin Bítlarnir telja í, fyrsta bókin í
þríleik Lewisohn um sögu þessarar
frægustu hljómsveitar heims. Sagan
hefur líklega aldrei verið sögð af
meiri nákvæmni. Þrátt fyrir að hún
endi um það leyti sem hljómsveitin
slær fyrst í gegn er hún rétt um 1.000
síður, tæplega 400 þúsund orð, tvö
kíló af ástríðufullri Bítlasagnfræði.
Lewisohn lætur sögu Bítlanna
hefjast í kartöfluhallærinu og
hungursneyðinni á Írlandi árið 1845
en þá flúðu írskir forfeður Johns
Lennon yfir til Englands. Hann
segir frá æsku Bítlanna í Liverpool,
tónlistaráhuganum, fyrstu hljóm
sveitarárunum og sukkinu þegar
þeir spiluðu á strippbúllum í þýsku
hafnarborginni Hamborg. Bókin
endar svo þegar þeir standa á barmi
heimsfrægðar eftir að hafa tekið upp
fyrstu breiðskífu sína fyrir Parlo
phoneútgáfuna: Please Please Me.
Áttu allir óvenjulega ævi
Hinn 57 ára gamli Mark Lewisohn
er sjálflærður Bítlasagnfræðingur
en viðurkennir að hann sé með lím
heila, söfnunar og skipulagsáráttu á
háu stigi og sé því einkar vel til þess
fallinn að skrifa söguna. Hann hefur
unnið í um áratug að bókinni, stund
aði rannsóknir í sex ár, notaði þrjú ár
í að skrifa og eitt ár í að búa hana til
útgáfu.
Hann segir að smáatriðunum sé
alls ekki ofaukið í bókinni: „Ef höf
undur kann ekki að nota smáatriði
og treður inn alls konar stað
reyndum sem skipta engu
máli getur hann gert bók
hundleiðinlega og þreyt
andi, en það vill bara svo til
að ég kann að nota smáat
riðin þannig að lesendum
finnst þeir vera að upplifa
atburðina,“ segir Lewisohn.
Hann segir raunar
einstakt hversu sérstök og
áhugaverð saga Bítlanna
sé alveg sama hversu djúpt
maður grafi. „Rolling Stones
er til dæmis frábær hljóm
sveit en það væri ómögulegt að
skrifa svona ítarlega bók um æskuár
þeirra – hún væri ekkert spennandi.
En hver og einn Bítlanna átti óvenju
lega ævi allt frá fæðingu. Smáatriðin
varpa ljósi á hverjir þeir urðu síðar
meir. Maður skilur betur leiðtoga
hæfileika og sterkan persónuleika
Johns Lennon sem endurómar svo
í öllu því sem Bítlarnir gerðu. Hann
leiddi gengi æskuvinanna eins og
hann leiddi Bítlana síðar meir. Maður
skilur betur hæfileika Pauls McCart
ney, en líka sjálfsöryggi hans og of
næmi fyrir því að aðrir segðu honum
fyrir verkum. Maður öðlast skilning
á þögulli staðfestu og einbeitingu
Georges Harrison og svo skilur mað
ur hvernig lífsháski sem Ringo lenti í
mótaði sterkan persónuleika hans,“
segir Lewisohn.
„Fjölskyldur þeirra eru líka áhuga
verðar og Liverpool er gríðarlega
áhugaverður og litríkur staður. Í gegn
um aldirnar hafa íbúar oft lent illa í
lífinu, borgin skemmdist illa í heims
styrjöldinni, þarna er mikill húmor og
mikil drykkja, lífið hefur verið erfitt
þar og mótað harðgert fólk. Bítlarnir
hefðu varla getað komið frá öðrum
stað. Liverpool er í blóðinu og lífs
viðhorfi þeirra,“ segir Lewisohn.
Eru einhver ákveðin atriði sem
þér finnst fólk hafa misskilið í gegn-
um tíðina um feril þeirra?
„Þau eru fjölmörg, en Bítla
fræðingar endurtaka oft þann
misskilning að umboðsmaðurinn
þeirra, Brian Epstein, hafi vafið þeim
um fingur sér og breytt þeim svo
þeir yrðu aðgengilegri. En þetta voru
menn með mjög sterkar skoðanir
og sterkan vilja og þeir gerðu aldrei
neitt sem þeir vildu ekki sjálfir,“ segir
hann.
Mest spennandi saga í heimi
Í meira en 35 ár hefur Lewisohn
skrifað um Bítlana, en hann var rétt
um tvítugt þegar hann hóf sínar eig
in rannsóknir á sögu hljómsveitar
innar.
„Jafnvel á þeim tíma var fólk farið
að velta fyrir sér hvort
það væri nokkuð meira
að vita um þessa menn.
En ég komst að því mjög
fljótt að ef maður stund
aði skipulega rann
sóknarvinnu var maður
strax farinn að grafa upp
hluti sem enginn hafði
fundið áður. Ég varð fyr
ir miklum vonbrigðum
að höfundar þeirra bóka
sem ég hafði lesið höfðu
ekki rannsakað efnið al
mennilega. Kannski
var það vegna þess að
popp átti bara að vera einnota tón
list. Þessi tónlist var ekki álitin hafa
nokkuð listrænt gildi og menn töldu
að hún yrði horfin daginn eftir. En
eftir því sem tíminn hefur liðið höf
um við séð að tónlistin lifir áfram og
hefur enn gríðarleg áhrif.“
Svona ævisögur tónlistarmanna
bera það oft með sér að vera eins og
dýrlingasögur af helgum mönnum,
ert þú á þeim slóðum?
„Nei, þetta er bók sem fjallar um
unga menn sem hugsa öðruvísi en
allir aðrir, hafa sterkan vilja og þrá
að gera hlutina á sinn hátt. Þeir vildu
auðvitað slá í gegn, en ef það hefði
ekki tekist hefðu þeir verið sáttir því
þeir voru alltaf trúir sjálfum sér. Þetta
eru ekki helgir menn eða dýrlingar.
Ég vildi ekki skrifa dýrlingatölu. Ég
vildi ekki skrifa bók sem hrósar bara.
Ég hrósa tónlistinni þeirra raunar
ekki neitt í bókinni,“ segir Lewisohn.
„Þessi saga hefur verið sögð á
sama hátt aftur og aftur og aftur.
Fimm hundruð bókum seinna er
sagan orðin flöt og útjöskuð. En ég
vissi að á ákveðnum tímapunkti
hafði sagan verið sú mest spennandi
í heiminum. Mig langaði að endur
uppgötva þá spennu sem sagan
hafði til að byrja með og skrifa bók
ina á þann hátt að atriðin hoppuðu
upp af blaðsíðunum.“ n
Uppáhaldslag
Bítlafræðingsins
„Ég á mér ekki eitt uppáhaldslag með
Bítlunum. Þeir tóku upp um 215 lög og
ég gæti kannski þrengt hringinn niður
í 150. Það breytist því dag frá degi, en
ef ég ætti að nefna eitthvað í dag væri
það líklega *Happiness is a warm gun*.
Eins og svo mörg laga þeirra þreytist það
ekkert við ítrekaða hlustun, jafnvel eftir
hundruð skipta. Það fangar eitthvert
augnablik svo fallega, bæði tónsmíðin og
upptakan sjálf. Það er svo frumlegt þó að
maður heyri skýrt hvaðan áhrifin koma.“
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Einn virtasti Bítla-
sérfræðingur heims Mark
Lewisohn tók 10 ár í að skrifa fyrsta
hluta þríleiks síns um sögu Bítlanna.
Hann vonast til að næsta bók komi
út árið 2020. Mynd SiGtryGGur Ari
Í Hamburg Bítlarnir léku leðurklæddir á næturklúbbum og stripp-búllum í Hamburg áður en þeir slógu í gegn.
Metsölulisti
Eymundsson
18. nóv.–24. nóv. 2015
yrsa Sigurðardóttir
Allar bækur
Innbundin
skáldverk
1 SogiðYrsa Sigurðardóttir
2 Þýska húsiðArnaldur Indriðason
3 Stríðsárin 1938 - 1945 Páll Baldvin
Baldvinsson
4 Stóri skjálftiAuður Jónsdóttir
5 Þín eigin goðsagaÆvar Þór Benediktsson
6 Vísindabók Villa - Geimurinn
Vilhelm Anton Jónsson / Sævar
Helgi Bragason
7 Og svo tjöllum við í okkur í rallið
Guðmundur Andri Thorsson
8 Brynhildur Georgía Björnsson
Ragnhildur Thorlacius
9 Mamma klikk!Gunnar Helgason
10 Kafteinn Ofurbrók og endurkoma
Dav Pilkey
1 SogiðYrsa Sigurdardottir
2 Þýska húsiðArnaldur Indriðason
3 Stóri skjálftiAuður Jónsdóttir
4 Og svo tjöllum við í okkur í rallið
Guðmundur Andri Thorsson
5 EndurkomanÓlafur Jóhann Ólafsson
6 NautiðStefán Máni
7 HundadagarEinar Már Guðmundsson
8 Geirmundar saga heljarskinns
Bergsveinn Birgisson
9 ÚtlaginnJón Gnarr
10 Eitthvað á stærð við alheiminn
Jón Kalman Stefánsson