Skagfirðingabók - 01.01.2015, Side 111
AF GOÐDALAPRESTUM
111
um 1762 á Vindheimum, þar sem í
fyrndinni var smábýli og síðan beitarhús
frá Bakkakoti fram um miðja þessa öld.
Foreldar Jóns þessa voru Jón Jónsson
blóðtökumaður og Þórdís Jónsdóttir
kona hans, sem bjuggu um árabil í
Dalkoti, hjáleigu frá Goðdölum, og síðar
á Tunguhálsi. Talið er að Jón prestur hafi
kennt nafna sínum ýmislegt, því að Jón
goddi var talinn margfróður, skrifari
góður og skáldmæltur vel. Eftir vistina í
Goðdölum dvaldist Goddi víða og varð
með tímanum þjóðsagnapersóna.
Goddi varð fyrir því óláni að missa
augun og var því blindur á efri árum.
Sagt var að hann hefði gert samning
um eitthvað við Kölska og orðið að láta
augun fyrir. Fyrst missti hann annað
augað í bardaga við ófreskju eina, þegar
hann var í göngum á Egilsdal. Er hann
var spurður um nánari tildrög, svaraði
hann með þessari alkunnu vísu:
Mæðu stranga hryðjan hraust
hyggju stangar salinn.
Ei mig langar annað haust
Egils- ganga -dalinn.
Nokkrum árum síðar missti hann hitt
augað og ber mönnum ekki saman um
hvort hann var þá í Godölum, Egilsá,
Bjarnastaðahlíð, Gilhaga eða Sölvanesi.
En hvar sem það var, þá svaf fólk á
bænum rökkurblund í skammdeginu
eins og víða var venja. Skyndilega kvað þá
við kvalafullt vein frá rúmi Jóns godda,
svo að allir hrukku upp í skelfingu, en
Goddi mælir mitt í óhljóðunum: „Þarna
fór hann með hitt.“ Brugðið var upp ljósi
og sáu þá allir að augað hafði sprungið út
úr höfði hans og var blóðpollur á gólfinu.
En ekki var það ætlunin að skrifa mikið
um Jón godda sem alþýða manna taldi
bæði lærðan og fjölkunnugan, heldur
aðeins að rifja upp skemmtilegt atvik frá
samskiptum þessa piltunga frá Dalkoti og
séra Jóns í Goðdölum. Einhverju sinni,
meðan Goddi var í þjónustu prestsins
og starfaði sem nautamaður hans, kom
séra Jón þar að sem Goddi stóð fyrir
fjósdyrum og trúlega harla spekingslegur
á svip. Prestur var skáldmæltur og ávarp-
aði nafna sinn Godda í gamansemi á
þessa leið:
Má ég snúa í musteri
majestatis yðar?
Heilir nú í hásæti,
hæstur kúa-domini!
Goddi svaraði af bragði húsbónda sínum
og læriföður með svohljóðandi stöku:
Mitt í skunda musteri
mun ég leyfa yður,
sanna ef stundar siðprýði,
silkihrunda-domini!
Fer ekki frekari sögum af yrkingum þeirra
nafnanna, en vísurnar sýna ótvírætt að
gagnkvæm kímni og smákerksni hefur
ráðið ríkjum hjá presti og nautamanni
hans, Jóni godda.
Þorsteinn stúdent í Gilhaga
BÖRN SÉRA Jóns og Steinunnar sem
upp komust voru þrjú að tölu og hétu
Ragnhildur, Guðrún og Þorsteinn. Þessi
systkin hafa hlotið uppeldi og menntun
að þeirrar tíðar hætti og mannast vel.
Prestur hefur kennt Þorsteini heima
undir skóla og 18 ára gamall var hann
sendur í Hólaskóla, þar sem hann lauk