Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.04.2016, Side 3

Læknablaðið - 01.04.2016, Side 3
Anna Fríða Jónsdóttir (f. 1984) nam við Listaháskóla Íslands á árunum 2007-2010 áður en hún fluttist til Austurríkis. Þar lagði hún stund á framhaldsnám við listaháskóla Vínarborgar og brautskráðist árið 2013. Anna Fríða byggir verk sín gjarnan á gjörningum þar sem hún kemur sjálf við sögu í ýmsum aðstæðum. Auk lifandi uppákoma er útkom- an einnig í formi ljósmynda eða myndbandsverka ásamt innsetn- ingum. Tónlist og hljóð er nokkuð sem kemur endurtekið fram í verk- um listakonunnar þar sem hún býr til eða afbyggir hljóðfæri, leikur á þau og/eða sýnir sem skúlptúra eða hluta af innsetningu. Árið 2015 bauðst Önnu Fríðu að sýna við listasafn Liechtenstein og skapaði hún af því tilefni verkið Wandering Vibrations. Auk verksins sem var til sýnis í sýningarsölum safnsins teygði hún hluta þess út á götu þar sem hún flutti gjörning. Ljósmyndin á forsíðu Læknablaðsins sýnir brot af þeim viðburði. Listakonan klæddist dökkum fötum, hélt á lofti stórum svörtum vængjum og – eins og sjá má á ljósmyndinni – greiddi hárið yfir andlitið og bar grímu fyrir augunum. Þar í var heiti gjörningsins saumað: Now I See. Innblástur fyrir verkið var sóttur í leðurblökur og sérstakan hæfileika þeirra til þess að rata með því að beita hljóðbylgjum og bergmálsskynj- un. Tíðnisvið og bylgjur eru Önnu Fríðu hugleikin fyrirbæri þar sem þau liggja til grund- vallar tilveru okkar sem hluti af gangverki náttúrunnar. Við eigum til dæmis í samskiptum og greinum nærveru með hjálp hljóðbylgja og orkusviða sem stafa af öllu og öllum í umhverfi okkar. Náttúran býr yfir fjölda slíkra ósýnilegra eiginleika sem eru manninum allajafna huldir. Anna Fríða skyggnist inn í þann skynheim í leit að hugsanlegu jafnvægi í hinni ófyrirsjáanlegu náttúru og því óreiðukennda umhverfi sem við hrærumst í. Markús Þór Andrésson LÆKNAblaðið 2016/102 163 Læknablaðið THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL www.laeknabladid.is Hlíðasmára 8 201 Kópavogi sími 564 4104 Útgefandi Læknafélag Íslands Læknafélag Reykjavíkur Ritstjórn Engilbert Sigurðsson, ritstjóri og ábyrgðarmaður Gerður Gröndal Hannes Hrafnkelsson Magnús Gottfreðsson Sigurbergur Kárason Tómas Guðbjartsson Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir Tölfræðilegur ráðgjafi Thor Aspelund Ritstjórnarfulltrúi Védís Skarphéðinsdóttir vedis@lis.is Blaðamaður og ljósmyndari Hávar Sigurjónsson havar@lis.is Auglýsingastjóri og ritari Sigdís Þóra Sigþórsdóttir sigdis@lis.is Umbrot Sævar Guðbjörnsson saevar@lis.is Upplag 1800 Prentun, bókband og pökkun Prenttækni ehf. Vesturvör 11 200 Kópavogi Áskrift 12.900,- m. vsk. Lausasala 1290,- m. vsk. © Læknablaðið Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki að hluta né í heild, án leyfis. Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráð- ar (höfundar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna: Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Cita- tion Reports/Science Edition, Scopus og Hirsluna, gagnagrunn Landspítala. The scientific contents of the Icelandic Medical Journal are indexed and abst- racted in Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/ Science Edition and Scopus. ISSN: 0023-7213 L I S T A M A Ð U R M Á N A Ð A R I N S Þyrlulækningar 30 ára Núverandi og fyrrverandi starfsmenn, læknar og áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar komu saman þann 4. mars síðastliðinn til að fagna því að 30 ár eru liðin síðan læknar á bráðadeild Borgarspítalans ákváðu að manna læknavakt á þyrlunni í sjálfboðavinnu. Eftir fyrsta árið varð þyrluvaktin hluti af starfsemi bráðadeildar spítalans en hefur á stundum síðan verið pólitískt bitbein og ekki alltaf samstaða um á hvers könnu læknavakt þyrlunnar skuli vera. Bergur Stefánsson yfirlæknir á bráðadeild Landspítalans í Fossvogi orðaði það þannig í samtali við RÚV: „Við erum að tala um mannslíf, ekki aura.“ Og sannarlega hefur mikilvægi þess að hafa lækni um borð í þyrlunni við björgunarstörf margsann- að gildi sitt og hafið yfir vafa að með því hefur mörgum mannslífum verið bjargað á þessum 30 árum. Það er því full ástæða til að fagna þessum áfanga og óska læknum og áhöfn þyrlunnar alls hins besta um ókomna tíð við sín mikilvægu störf. Mynd: Þorkell Þorkelsson NÝTT Ný meðferð við langvinnri lungnateppu —byggð á sterkum rótum SPIRIVA1–5 IS S pl -1 5- 01 -0 3 A ug us t 2 01 5 • SPIOLTO RESPIMAT er SPIRIVA RESPIMAT eflt með STRIVERDI RESPIMAT6 • Virka efnið kemst langt niður í lungu sjúklinganna7–9 • Skammtur gefinn óháð innöndunarflæði10 SPIRIVA® (tíótrópíum) STRIVERDI® (olodaterol) IS S pl -1 5- 01 -0 3 A ug us t 2 01 5 IS S pl -1 5- 01 -0 3 A ug us t 2 01 5 SPIOLTO® RESPIMAT ® (tíótrópíum/olodaterol) TÍÓTRÓPÍUM OG OLODATEROL SPIOLTO RESPIMAT — nýr möguleiki Ábending: Berkjuvíkkandi viðhaldsmeðferð til að lina einkenni langvinnrar lungnateppu (LLT). NÝTT Ný meðferð við langvinnri lungnateppu —byggð á sterkum rótum SPIRIVA1–5 IS S pl -1 5- 01 -0 3 A ug us t 2 01 5 • SPIOLTO RESPIMAT er SPIRIVA RESPIMAT eflt með STRIVERDI RESPIMAT6 • Virka efnið kemst langt niður í lungu sjúklinganna7–9 • Skammtur gefinn óháð innöndunarflæði10 SPIRIVA® (tíótrópíum) STRIVERDI® (olodaterol) SPIOLTO® RESPIMAT ® (tíótrópíum/olodaterol) TÍÓTRÓPÍUM OG OLODATEROL SPIOLTO RESPIMAT — nýr möguleiki Ábending: Berkjuvíkkandi viðhaldsmeðferð til að lina einkenni langvinnrar lungnateppu (LLT). NÝTT Ný meðferð við langvinnri lungnateppu —byggð á sterkum rótum SPIRIVA1–5 IS S pl -1 5- 01 -0 3 A ug us t 2 01 5 SPIOLTO RESPIMAT er SPIRIVA RESPIMAT eflt með STRIVERDI RESPIMAT6 Virka efnið kemst langt iður í lungu sjúklinganna7–9 • Skammtur gefinn óháð innöndunarflæði10 SPIRIVA® (tíótrópíum) STRIVERDI® (olodaterol) SPIOLTO® RESPIMAT ® (tíótrópíum/olodaterol) TÍÓTRÓPÍUM OG OLODATEROL SPIOLTO RESPIMAT — nýr möguleiki Ábending: Berkjuvíkkandi viðhaldsmeðferð til að lina einkenni langvinnrar lungnateppu (LLT).

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.