Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.04.2016, Qupperneq 18

Læknablaðið - 01.04.2016, Qupperneq 18
Eins lítið og mögulegt er, eins mikið og þarf Klæðskerasniðin meðferð við ADHD FJÖLD I STYRK LEIKA Medikinet® 5 mg, 10 mg, 20 mg töflur og Medikinet® CR 5mg, 10 mg, 20 mg, 30 mg, 40 mg, 50 mg, 60 mg hörð hylki með breyttan losunarhraða. Medikinet® og Medikinet® CR innihalda methylphenidat hýdróklórið. 30 stk. pakkningar. Ábendingar: Til notkunar sem hluti af víðtækri meðferðaráætlun við athyglisbresti með ofvirkni (ADHD) hjá börnum, 6 ára og eldri, þegar stuðningsúrræði ein sér nægja ekki. Meðferð skal hefja undir umsjón sérfræðings í hegðunarröskunum barna. Greining skal vera samkvæmt gildandi DSM viðmiði eða leiðbeiningum í ICD-10 og til grundvallar skal liggja heildarsjúkrasaga og mat á sjúklingnum. Ekki má byggja greiningu eingöngu á því að eitt eða fleiri einkenni séu til staðar. Sjá nánar í SmPC. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna. Gláka. Krómfíklaæxli (phaeochromocytoma). Samhliða meðferð með ósértækum, óafturkræfum MAO-hemlum eða innan 14 daga eftir að meðferð með þessum lyfjum hefur verið hætt. Ofvirkni skjaldkirtils eða skjaldvakaeitrun (thyrotoxicosis). Greining eða saga um alvarlegt þunglyndi, lystarstol/átraskanir, sjálfsvígstilhneigingu, einkenni geðrofs, alvarlega skapbresti, oflæti, geðklofa, siðblindu/jaðarpersónuröskun. Greining eða saga um alvarlega og lotubundna geðhvarfasýki (tegund I). Áður greindir hjarta- og æðasjúkdómar, þar með talið verulegur háþrýstingur, hjartabilun, kransæðastífla, hjartaöng, meðfæddur hjartasjúkdómur sem hefur marktæk áhrif á lífeðlisfræði blóðrásar, hjartavöðvakvillar, hjartadrep, hjartsláttartruflanir sem geta verið lífshættulegar og jónagangasjúkdómar. Undirliggjandi sjúkdómar í heilaæðum, slagæðagúlpur í heila, æðasjúkdómar, þar með talið æðabólgur og heilablóðfall. Saga um umtalsverðan skort á magasýru (eingöngu Medikinet® CR). Skammtar: Meðferð verður að hefja undir umsjón sérfræðings í hegðunarröskunum barna og/eða unglinga. Í upphafi meðferðar með methylphenidati er nauðsynlegt að fram fari nákvæm skammtaaðlögun. Hámarks dagsskammtur af methylphenidat hýdróklóríði er 60 mg. Ítarlegar upplýsingar um skammta er að finna í SmPC. Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá – www.serlyfjaskra.is. Markaðsleyfishafi: Medice Arzneimittel Pütter GmbH & Co. KG. Umboðsaðili á Íslandi: LYFIS ehf. Sími: 534-3500, netfang: lyfis@lyfis.is. Lyfið er lyfseðils- og eftirritunarskylt. Greiðsluþátttaka SÍ: 0. Hámarksverð: Sjá lyfjaverðskrá. SmPC: Október 2015. Töflur og hylki eru í raunstærð og raunlit á myndinni. Medikinet ® CR forðahylki 5 mg 10 mg 20 mg 30 mg 40 mg 50 mg 60 mg 5 mg 10 mg 20 mg Medikinet ® töflur

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.