Læknablaðið - 01.04.2016, Page 27
S J Ú K R A T I L F E L L I
LÆKNAblaðið 2016/102 187
Inngangur
Bogagöng innra eyrans eru þrjú talsins og mikilvægur
hluti jafnvægiskerfis líkamans. Rof á efri bogagöngum
(superior canal dehiscence) er sjaldgæf orsök heyrnar-
deyfu og svima.1,2 Fáir hafa greinst á Íslandi. Níu Ís-
lendingar hafa farið í aðgerð í lækningatilgangi (apríl
2015). Fjórir fyrstu sjúklinganir sem þurftu aðgerð fóru
til Baltimore í Bandaríkjunum. Hinir 5 fóru í aðgerð
hér á landi og er hér lýst einu þeirra tilfella.
Tilfellið
28 ára hraust kona hafði fundið fyrir svima og hellu
fyrir vinstra eyra um þriggja mánaða skeið. Sviminn
lýsti sér sem sundl (dizziness). Sjónsviðið hreyfðist og
virtist við nánari skoðun gera það í takt við hjartslátt-
inn. Helst gerðist það þegar höfðinu var snúið langt yfir
til annarrar hvorrar hliðarinnar. Einnig varð þessara
sjónsviðsáhrifa vart við utanaðkomandi áreiti, svo sem
titring. Viðkomandi leitaði til mismunandi lækna sem
gerðu ýmsar rannsóknir án þess að greining fengist.
Meðal annars var gerð segulómskoðun (magnetic reson-
ance imaging) af höfði til að útiloka meinsemdir og kom
sú rannsókn eðlilega út. Við frekari eftirgrennslan kom
í ljós að einkennin voru töluvert meiri en sjúklingur-
inn hafði í fyrstu látið uppi. Hluti þess var að hún
hafði hreinlega ekki áttað sig á að ástandið væri svo
óeðlilegt sem raun bar vitni. Til að mynda var ljóst að
viðkomandi var með talsverða sjálfheyrn (autophony).
Það lýsti sér þannig að sjúklingurinn heyrði stöðugt
eigin hjartatóna og hreyfingar um hálsliði. Þá heyrðist
einnig marrandi hljóð við allar augnhreyfingar. Það
var orðið óbærilegt fyrir sjúklinginn að tala þar sem
eigin rödd glumdi í höfðinu.
Rof á efri bogagöngum innra eyra (superior canal dehiscence) getur valdið
sérstæðri einkennamynd, það er heyrnardeyfu, svima og sjálfheyrn
(autophonia). Hægt er að lækna sjúklinginn með skurðaðgerð.
28 ára hraust kona leitaði til ýmissa lækna um nokkurra mánaða skeið
vegna hellu fyrir vinstra eyra, svima og sjálfheyrnar. Einkennin höfðu
ágerst. Uppvinnsla leiddi í ljós rof á efri bogagöngum vinstra eyra. Fór
sjúklingurinn í aðgerð og löguðust einkennin. Töf getur orðið á grein-
ingunni enda um sjaldgæfan sjúkdóm að ræða. Mikilvægt er að hafa rof á
efri bogagöngum í huga þegar sjúklingar með þessi einkenni leita læknis.
ÁGRIP
Fór svo að sjúklingnum var beint til sérfræðings
á háls-, nef- og eyrnadeild Landspítala. Fór þar fram
ítarleg uppvinnsla. Fólst skoðunin meðal annars í að
viðkomandi læknir setti tónkvísl á sköflungshnyðju
(malleolus medialis) sjúklingsins sem heyrði þá greini-
lega hljóðið frá titrandi tónkvíslinni í vinstra eyra sínu.
Heyrnarmæling sýndi góða heyrn, sjá mynd 1. Því
næst var gert Tullio-próf. Í því felst að athuga hvort
sjúklingurinn fái augntif (nystagmus) við hávaðaáreiti.
Reyndist það vera jákvætt í þessu tilfelli og komu fram
bæði talsvert augntif og svimi við prófunina.
Greiningin fékkst svo með háskerpu tölvusneið-
myndum af klettbeinum (temporal bones) sem sýndu
fram á eyðingu beins í efri bogagöngunum, sjá mynd
2. Sjúklingurinn fór í framhaldinu í skurðaðgerð þar
sem þétt var með eigin bandvef og beinmulningi þar
sem rofið hafði orðið. Aðgerð sem þessi er gerð í gegn-
um opnun á höfuðkúpu ofanfrá og gatið síðan staðfest
nákvæmlega með staðsetningartæki (navigation system).
Rofið þótti stórt, eða um 6 millimetrar að lengd, sjá
Greinin barst
12. nóvember 2015,
samþykkt til birtingar
9. mars 2016.
Höfundar hafa
útfyllt eyðublað um
hagsmunatengsl.
Rof á efri bogagöngum – sjúkratilfelli
Bryndís Baldvinsdóttir1, Martina Vigdís Nardini1, Ingvar Hákon Ólafsson2, Ólafur Guðmundsson3, Sigurður Stefánsson3
Höfundar eru öll
læknar.
1Skurðlækningasviði,
2heila- og
taugaskurðdeild, 3háls-,
nef- og eyrnadeild
Landspítala.
Fyrirspurnir:
Bryndís Baldvinsdóttir
bryndisbaldvins
@gmail.com
http://dx.doi.org/10.17992/lbl.2016.04.76
Mynd 1. Heyrnarmæling sýndi fram á góða heyrn á báðum eyrum. Ljós-
bláa línan sýnir óvenju góða beinleiðni á vinstra eyra.
Höfundar fengu
samþykki sjúklings fyrir
þessari umfjöllun og
birtingu.