Læknablaðið - 01.04.2016, Qupperneq 35
LÆKNAblaðið 2016/102 195
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
FOODLOOSE
Ráðstefna um mataræði
og lífsstílssjúkdóma
Þrír íslenskir læknar eru meðal þeirra
sem standa að alþjóðlegri ráðstefnu í
Hörpu þann 26. maí næstkomandi um
mataræði og lífsstílssjúkdóma. Á ráð-
stefnunni, sem ber heitið Foodloose,
munu heimsþekktir sérfræðingar nálgast
þetta mikilvæga efni frá ýmsum sjón-
arhornum. Íslensku læknarnir eru Axel
F. Sigurðsson hjartalæknir, Guðmundur
Jóhannsson lyf- og bráðalæknir og Kjart-
an Hrafn Loftsson almennur læknir.
„Ástæðan fyrir því að við réðumst í þetta
er sú að við erum að sjá sívaxandi bylgju
krónískra sjúkdóma hér á Íslandi sem
helst í hendur við þróunina í öðrum lönd-
um. Ef svo fer sem horfir mun þetta að
fáeinum áratugum liðnum gleypa stærstan
hluta þeirra fjármuna sem settir eru heil-
brigðiskerfið eins og við þekkjum það í
dag. Þetta eru fjárfrekir sjúkdómar, lyfin
eru dýr og meðhöndlunin tekur í rauninni
aldrei enda, þar sem í flestum tilfellum er
ekki um lækningu að ræða heldur stöð-
uga meðferð,“ segir Guðmundur og bætir
því við að þrátt fyrir mikla og stöðuga
samfélagsumræðu um hollt mataræði og
alls kyns hreyfingu virðist þróunin halda
áfram. Auk þess eru upplýsingarnar svo
misvísandi að almenningur á í erfiðleik-
um að vita í hvorn fótinn hann á að stíga.
Málþingið Foodloose er opið öllum sem
áhuga hafa þó sjónum sé fyrst og fremst
beint að heilbrigðisstarfsfólki sem vill
„Við höfum áhuga á að fjalla um áhrif mataræðis á langvinna lífsstílssjúkdóma og vekja athygli á niðurstöðum nýlegra rannsókna og kenninga á þessu sviði. Því ákváðum við að fá
viðurkennda og þekkta fræði- og vísindamenn á þessu sviði til að tala á ráðstefnunni,“ segja læknarnir Axel F. Sigurðsson, Guðmundur Jóhannsson og Kjartan Hrafn Loftsson um
ráðstefnuna „Foodloose: Processing The Science of Sugar, Fat And The Modern Diet” sem haldin verður í Hörpu 26. maí í vor.