Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.04.2016, Qupperneq 46

Læknablaðið - 01.04.2016, Qupperneq 46
206 LÆKNAblaðið 2016/102 Fámennt félag en góðmennt Elsa B. Valsdóttir elsava@landspitali.is skurðlæknir, lektor við læknadeild HÍ Formaður Félags íslenskra ristilskurðlækna Félag íslenskra ristilskurðlækna var stofnað 26. nóvember 2012. Stofnfélagar voru 5. Hvatamaðurinn að stofnun fé- lagsins var Tryggvi Björn Stefánsson og var hann fyrsti formaður þess. Tilgangur félagsins er þríþættur: að stuðla að sam- heldni, félagslegri og faglegri samvinnu félagsmanna; að miðla upplýsingum til félagsmanna og annarra um það er varðar ristilskurðlækningar og hlutverk þeirra; að stuðla að samvinnu við erlend fagfélög þar sem ristilskurðlæknar starfa. Í dag eru meðlimir í félaginu 6 tals- ins og starfa þeir allir á Landspítala við Hring braut. Vegna þess hve fá við erum er ekki mikið um sérhæfingu, allir þurfa að geta sinnt öllu. Þó er nokkur blæbrigða- munur í starfi þar sem sumir sinna fleiri sjúklingum með bólgusjúkdóma í görn, aðrir sinna fleiri grindarbotnsvanda- málum og enn aðrir hafa sérþekkingu í aðgerðum um endaþarm með smásjá (transanal endoscopic microsurgery, TEM). Það er einmitt þessi síðasttalda aðgerðar- tækni ásamt kviðsjárspegluninni sem hef- ur verið helsta framfaraskrefið í aðgerðum á ristli og endaþarmi síðastliðin ár. Að- gerðir með minniháttar inngripi (minimally invasive surgery) hafa átt erfiðara uppdrátt- ar í aðgerðum á neðri hluta meltingar- vegar en þeim efri um allan heim, án þess þó að á því sé nein einhlít skýring. Það er þó alveg óumdeilt og sannað í fjölda al- þjóðlegra rannsókna að kviðsjáraðgerðir á ristli eru jafnöruggar fyrir sjúklinginn og opnar aðgerðir, hvort sem litið er til fylgi- kvilla eða árangurs krabbameinsaðgerða. Það verða færri sárasýkingar og færri kviðslit, færri innlagnir vegna garnastíflu á grunni samvaxta, sjúklingurinn er fljót- ari á fætur og getur farið aftur til þátttöku í daglegu lífi fyrr. Það er því mikið fagn- aðarefni að sjá hversu hlutfall kviðsjárað- gerða á ristli á Landspítala hefur aukist og er það nú svo að meirihluti ristilaðgerða er gerður með minniháttar inngripi. Það er árangur sem jafnast á við það besta sem gerist erlendis á sérhæfðum deildum. Samvinna við erlend fagfélög hefur formlega verið mest við European Soci- ety of Coloproctology (ESCP). Þar sem félagið er landssamtök hefur það rétt á að tilnefna einn aðila til að sitja í stjórn ESCP og hafa þannig áhrif á stefnumótun þess. Félagsmenn eru allir meðlimir og sækja þing þess reglulega. Við höfum tekið þátt í tveimur alþjóðlegum rannsóknum með ESCP. Í fyrra lögðum við til sjúklinga í fjölsetrarannsókn um brottnám á hægri hluta ristils og í ár tökum við þátt í svip- aðri rannsókn á samanburði á aðferðum við lokun á lykkjustóma. Við stefnum að því að halda þessu rannsóknarsamstarfi áfram. Af öðrum samtökum má nefna nor- rænt samstarf og þátttöku í starfi Europe- an Association of Endoscopic Surgery (EAES) en það hefur verið meira á vegum einstakra meðlima en félagsins sjálfs. Heitasta málið framundan varðandi sjúkdóma í ristli og endaþarmi er fyrir- huguð skimun fyrir krabbameini. Þetta mál hefur verið allt of lengi í farvatninu og löngu kominn tími á aðgerðir. Alþingi ályktaði árið 2007 að hefja ætti skimun enda hafa allar rannsóknir, bæði austan- hafs og vestan, sýnt að það er ávinningur af því að skima. Ráðgjafahópur heilbrigð- isráðherra skilaði sinni skýrslu 2008 en síðan hefur lítið gerst. Krabbamein í ristli og endaþarmi er 8,5% allra greindra ill- kynja æxla í heiminum. Ísland telst vera á há-áhættusvæði fyrir þennan sjúkdóm en munur á nýgengi milli há-áhættu og lág- áhættusvæða er allt að 20-faldur. Munurinn er fyrst og fremst landfræði- legur þar sem vestræn ríki falla undir há-áhættusvæði. Meðal annarra áhættu- þátta en búsetu eru hækkandi aldur, fjölskyldusaga, saga um bólgusjúkdóma í ristli, offita og hreyfingarleysi. Matar- æði hefur oft verið tengt við krabbamein í ristli og endaþarmi og þá sérstaklega mikil neysla á fitu og rauðu kjöti og lítil neysla á trefjum en þetta er erfitt að sanna. Það sem er svo hættulegt við þetta krabbamein er að einkenni koma seint og oft er sjúkdómurinn það langt genginn þegar einkenni koma fram að lækning er ekki möguleg. Krabbamein í ristli og endaþarmi uppfyllir hins vegar öll skilyrði sem sjúkdómur sem hentar fyrir skimun: sjúkdómurinn er algengur, þetta er þriðja algengasta krabbameinið í báðum kynjum en árlega greinast um 135 einstaklingar með sjúkdóminn á Íslandi og 55 deyja og nýgengið fer vaxandi; það er til einföld og örugg greiningaraðferð; hann hefur forstig í formi sepa þannig að hægt er að koma í veg fyrir sjúkdóminn með því að finna sepana og fjarlægja þá; það er til góð meðferð við krabbameininu og margar rannsóknir í mörgum löndum hafa sýnt að skimun bætir lifun og að kostnaður við skimun er lægri en kostnaður við meðferð. Krabbameinsfélag Íslands hefur nú tekið þetta mál upp á sína arma, hefur unnið töluverða undirbúningsvinnu og hyggst hefja skimun á næstunni og er það vel. Ristilskurðlæknafélagið hefur gert sitt til að hvetja heilbrigðisyfirvöld til að standa vel og vandlega að þessu verkefni. Félag íslenskra ristilskurðlækna

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.