Læknablaðið - 01.09.2016, Blaðsíða 4
372 LÆKNAblaðið 2016/102
F R Æ Ð I G R E I N A R
9. tölublað, 102. árgangur, 2016
375
Þorbjörn Jónsson
Í aðdraganda
kosninga
Heilbrigðismálin voru
eitt af hitamálum síðustu
kosninga og nauðsynlegt
er að þau verði eitt aðal-
mál komandi kosninga.
Vissulega hefur okkur
miðað fram á veg en
betur má ef duga skal,
fjöldamörg verk eru
óunnin.
378
Ingibjörg Gunnarsdóttir, Ellen Alma Tryggvadóttir, Bryndís Eva Birgisdóttir,
Þórhallur Ingi Halldórsson, Helga Medek, Reynir Tómas Geirsson
Fæðuval og næring kvenna á meðgöngu með tilliti
til líkamsþyngdar
Næringarástand á meðgöngu getur haft áhrif á þroska, vöxt og heilsu barnsins.
Markmið rannsóknarinnar var að rannsaka næringargildi fæðu hjá barnshafandi kon-
um á höfuðborgarsvæðinu og kanna hvort mataræði kvenna í kjörþyngd fyrir þungun
væri frábrugðið því sem er hjá konum sem voru yfir kjörþyngd.
Huga þarf að fæðuvali kvenna á meðgöngu, ekki síst meðal kvenna yfir kjör-
þyngd. Hluti barnshafandi kvenna fullnægir ekki þörf fyrir næringarefni á borð við joð,
D-vítamín og DHA, sem öll gegna lykilhlutverki við fósturþroska.
385
Ólafur Sveinsson, Ingvar Ólafsson, Einar Már Valdimarsson
Æðaflækjur í heila - yfirlitsgrein
Æðaflækjur í heila eru sjaldgæfar en geta valdið alvarlegum heilablæðingum, varan-
legri fötlun og dauða. Auk þessa geta þær valdið, staðbundnum taugaeinkennum,
flogum og höfuðverk. Meðferð æðaflækja er vandasöm. Algengust er skurðaðgerð
þar sem leitast er við að loka nærandi slagæðum. Einnig er notuð þrívíddarmiðuð
geislameðferð eða innanæðarlokun. Velja þarf rétta meðferð fyrir hvert tilfelli og oft
þarf að beita fleiru en einu meðferðarformi til að loka æðaflækjunni. Nýlegar rann-
sóknir benda til þess að ekki eigi að grípa til aðgerðar þegar æðaflækjur hafa ekki
blætt.
393
Eyþór Örn Jónsson, Hera Jóhannesdóttir, Anna Stefánsdóttir
Sýking í gervilið í hné eftir endurteknar liðástungur
Áttræður karlmaður fékk sýkingu í gervilið í hné eftir endurteknar liðástungur. Stungið
var á liðnum vegna liðblæðinga í kjölfar áverka á sin fjórhöfðavöðva læris en áverkinn
greindist þó ekki í upphafi. Til að uppræta sýkinguna reyndist nauðsynlegt að fram-
kvæma staurliðsaðgerð. Tilfellið undirstrikar að gerviliðir eru næmir fyrir sýkingum.
Ígrunda þarf ákvörðun um að stinga á gervilið.
377
Arna Guðmundsdóttir
Loforð og efndir
Ég þekki engan Íslending
og ennþá síður lækni
sem vill hverfa frá því
sterka kerfi almanna-
trygginga og jöfnuði sem
einkennir íslenska heil-
brigðisþjónustu. Ég þekki
hins vegar marga sem
telja ólík rekstrarform
undir sameiginlegum
hatti almannatrygginga
og ríkisrekinnar heil-
brigðisþjónustu af hinu
góða.
L E I Ð A R A R