Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.09.2016, Qupperneq 4

Læknablaðið - 01.09.2016, Qupperneq 4
372 LÆKNAblaðið 2016/102 F R Æ Ð I G R E I N A R 9. tölublað, 102. árgangur, 2016 375 Þorbjörn Jónsson Í aðdraganda kosninga Heilbrigðismálin voru eitt af hitamálum síðustu kosninga og nauðsynlegt er að þau verði eitt aðal- mál komandi kosninga. Vissulega hefur okkur miðað fram á veg en betur má ef duga skal, fjöldamörg verk eru óunnin. 378 Ingibjörg Gunnarsdóttir, Ellen Alma Tryggvadóttir, Bryndís Eva Birgisdóttir, Þórhallur Ingi Halldórsson, Helga Medek, Reynir Tómas Geirsson Fæðuval og næring kvenna á meðgöngu með tilliti til líkamsþyngdar Næringarástand á meðgöngu getur haft áhrif á þroska, vöxt og heilsu barnsins. Markmið rannsóknarinnar var að rannsaka næringargildi fæðu hjá barnshafandi kon- um á höfuðborgarsvæðinu og kanna hvort mataræði kvenna í kjörþyngd fyrir þungun væri frábrugðið því sem er hjá konum sem voru yfir kjörþyngd. Huga þarf að fæðuvali kvenna á meðgöngu, ekki síst meðal kvenna yfir kjör- þyngd. Hluti barnshafandi kvenna fullnægir ekki þörf fyrir næringarefni á borð við joð, D-vítamín og DHA, sem öll gegna lykilhlutverki við fósturþroska. 385 Ólafur Sveinsson, Ingvar Ólafsson, Einar Már Valdimarsson Æðaflækjur í heila - yfirlitsgrein Æðaflækjur í heila eru sjaldgæfar en geta valdið alvarlegum heilablæðingum, varan- legri fötlun og dauða. Auk þessa geta þær valdið, staðbundnum taugaeinkennum, flogum og höfuðverk. Meðferð æðaflækja er vandasöm. Algengust er skurðaðgerð þar sem leitast er við að loka nærandi slagæðum. Einnig er notuð þrívíddarmiðuð geislameðferð eða innanæðarlokun. Velja þarf rétta meðferð fyrir hvert tilfelli og oft þarf að beita fleiru en einu meðferðarformi til að loka æðaflækjunni. Nýlegar rann- sóknir benda til þess að ekki eigi að grípa til aðgerðar þegar æðaflækjur hafa ekki blætt. 393 Eyþór Örn Jónsson, Hera Jóhannesdóttir, Anna Stefánsdóttir Sýking í gervilið í hné eftir endurteknar liðástungur Áttræður karlmaður fékk sýkingu í gervilið í hné eftir endurteknar liðástungur. Stungið var á liðnum vegna liðblæðinga í kjölfar áverka á sin fjórhöfðavöðva læris en áverkinn greindist þó ekki í upphafi. Til að uppræta sýkinguna reyndist nauðsynlegt að fram- kvæma staurliðsaðgerð. Tilfellið undirstrikar að gerviliðir eru næmir fyrir sýkingum. Ígrunda þarf ákvörðun um að stinga á gervilið. 377 Arna Guðmundsdóttir Loforð og efndir Ég þekki engan Íslending og ennþá síður lækni sem vill hverfa frá því sterka kerfi almanna- trygginga og jöfnuði sem einkennir íslenska heil- brigðisþjónustu. Ég þekki hins vegar marga sem telja ólík rekstrarform undir sameiginlegum hatti almannatrygginga og ríkisrekinnar heil- brigðisþjónustu af hinu góða. L E I Ð A R A R

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.