Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.09.2016, Síða 7

Læknablaðið - 01.09.2016, Síða 7
Niðurstöður gagnreyndra rannsókna styrktar af klínískri reynslu Nú einnig við segamyndun í djúp bláæðum (DVT) Rannsókn á sjúklingum með DVT, XALIA, sýnir að klínísk reynsla endurspeglar niðurstöður skráningarrannsóknar á Xarelto1. Rannsóknin XANTUS hafði sýnt fram á hið sama hjá sjúklingum með gáttatif án lokusjúkdóms2. XALIA er fyrsta rannsókn sinnar tegundar á NOACa við segamyndun í djúpbláæðum. Hún er stór, framsýn áhorfsrannsókn þar sem fleiri en 5.000 sjúklingum með DVT var fylgt eftir1,b. Xarelto – til inntöku Eitt lyf frá fyrsta degi3 a NOAC = novel oral anticoagulant b Meðferð við segamyndun í djúpbláæðum (DVT) og segareki í lungum (PE) og til að fyrirbyggja endurtekna segamyndun í djúpbláæðum og segarek í lungum hjá fullorðnum Heimildir: 1. Ageno W., Mantovani L., Haas S. et al; www.thelancet.com/haematology Published online December 7, 2015. 2. Camm A.J., Amarenco P., Haas S. et al; European Heart Journal, doi:10.1093/eurheartj/ehv466 3. Samantekt á eiginleikum lyfs fyrir Xarelto L.IS.MKT.03.2016.0107 LÆKNAblaðið 2016/102 375 R I T S T J Ó R N A R G R E I Nhttp://dx.doi.org/10.17992/lbl.2016.09.93 Góð heilsa er gulli betri. Án góðrar heilsu er erfitt að njóta lífsins til fulls. Fyrir síð- ustu kosningar voru heilbrigðismál í sviðs- ljósinu og eitt af meginstefnumálum flestra flokka. Eftir kosningar hefur sumum þótt skorta á að efndir fylgdu að fullu gefnum fyrirheitum. Það er nauðsynlegt að geta litið fram á veg þegar kemur að skipulagi heilbrigð- iskerfisins og úthlutun fjármuna til þess rekstrar. Óstöðugleiki og illa ígrundaðar skyndiákvarðanir hæfa illa. Við þekkj- um það því miður of vel hvernig nýjar og óvæntar kröfur um sparnað og niðurskurð dundu á heilbrigðiskerfinu ár hvert í kjöl- far bankahrunsins. Slíka óvissutíma viljum við ekki sjá aftur. Um miðjan ágúst samþykkti ríkisstjórn- armeirihluti Sjálfstæðis- og Framsóknar- flokks á Alþingi nýja ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2017 til 2021. Stjórnarandstöðu- flokkarnir voru einhuga í andstöðu sinni við hina nýju áætlun. Þótt ríkisfjármála- áætlun sé ekki ígildi fjárlaga er hún vissu- lega leiðarljós um það hvert stefna skuli á næstu árum. Þegar framtíðarstefna er mótuð í mikilvægum málaflokkum, svo sem heilbrigðismálum, er nauðsynlegt að um hana sé breitt samkomulag milli ólíkra stjórnmálaafla. Það er ekki nóg að krefjast aukinnar skilvirkni með kröfum um aukin afköst heilbrigðisstarfsmanna, það þarf að auka raunfjárframlög til heilbrigðismála. Með öðrum orðum þarf að setja heilbrigðismálin framar í forgangsröðina þegar skatttekjum ríkissjóðs er skipt. Það er almennur vilji Ís- lendinga að hlutfallslega meiri fjármunum verði varið til heilbrigðismála. Íslendingar hafa undanfarin ár varið liðlega 8,5% af vergri landsframleiðslu (VLF) til heilbrigð- ismála. Kári Stefánsson læknir gekkst fyrir undirskriftasöfnun þar sem mælst var til þess að 11% af VLF færu til heilbrigðismála. Undir þessa áskorun skrifuðu 87.000 kosn- ingabærir Íslendingar. Íslenskt heilbrigðiskerfi stendur frammi fyrir mörgum áskorunum á komandi árum. Þeirra á meðal eru breytt aldurs- samsetning íslensku þjóðarinnar með hlut- fallslegri fjölgun aldraðra, aukin þjónustu- þörf, vaxandi óskir almennings um gott aðgengi og örugga heilbrigðisþjónustu. Nýjar læknismeðferðir sem geta verið afar kostnaðarsamar hafa komið fram, auk þess sem við búum við samkeppni frá útlöndum um hæfasta starfsfólkið. Þessu til viðbótar er nauðsynlegt að lækka kostnað sjúklinga við að nýta sér þjónustu heilbrigðiskerfis- ins. Nú borga sjúklingar úr eigin vasa 18% af þeim heildarfjármunum sem varið er til heilbrigðismála. Alvarleg veikindi eru högg fyrir hvern sem fyrir slíku verður og ótækt er að þungur fjárhagslegur baggi leggist þar á ofan. Eins og að framan greinir hefur verið samþykkt ný ríkisfjármálaáætlun til næstu 5 ára. Vissulega má lesa ýmislegt jákvætt út úr henni. Nokkur atriði má tiltaka: • Byggingarframkvæmdir við meðferð- arkjarna Landspítala verði boðnar út árið 2018 og framkvæmdir verða komnar á skrið frá og með árinu 2019. • Bætt verður aðstaða við sjúkrahúsið á Akureyri með nýrri legudeild. • 1,8% af veltu verður ætluð til viðhalds og tækjakaupa. • Heilsugæslan verður styrkt og efld sem fyrsti viðkomustaður innan heil- brigðisþjónustunnar. Þegar útgjaldarammi ríkisfjármálaáætl- unar er skoðaður verður maður hins vegar eilítið hugsi. Að neðan má sjá skiptingu heilbrigðisútgjalda eftir útgjaldasviðum og hvernig gert er ráð fyrir að útgjöldin þróist á næstu 5 árum. Allar tölur í töflunni eru á verðlagi ársins 2016 (í milljónum króna). Þannig má sjá að árið 2017 er gert ráð fyrir að liðlega 176 milljarðar af tæplega 600 (29,5%) fari til allra heilbrigðismála borið saman við liðlega 200 af 661 milljarði árið 2021 (30,3%). Áætlað er að flestir liðir tengdir heil- brigðisþjónustu standi hlutfallslega í stað nema sjúkrahúsaþjónusta (liður 23). Hækk- un á þeim lið skýrist hins vegar líklega að mestu af fjárfestingum í hönnun og ný- byggingum fyrir Landspítalann við Hring- braut. Það eru því ákveðin vonbrigði að meiri áhersla sé ekki lögð á heilbrigðiskerf- ið og að því skuli ekki vera forgangsraðað umfram annan ríkisrekstur. Verkefnin eru stór framundan og það þarf augljóslega meira fjármagn til að kljást við þau. Almenningur vill að heilbrigðiskerfi okkar standi í fremstu röð hvað varðar þjónustu, gæði og öryggi, það hafa skoð- anakannanir ótvírætt sýnt á undanförnum árum. Heilbrigðismálin voru eitt af hita- málum síðustu kosninga og nauðsynlegt er að þau verði eitt aðalmál komandi kosn- inga. Vissulega hefur okkur miðað fram á veg undanfarin ár. En betur má ef duga skal, enda fjöldamörg verk óunnin. Heimild Fjármála- og efnahagsráðuneytið: Opinber fjármál 2017-2021. Fjármálastefna og fjármálaáætlun. fjarmalaraduneyti.is/ media/frettatengt2016/Opinber-fjarmal-2017-2021.pdf In the eve of general election Þorbjörn Jónsson MD, PhD, Consultant in Immunology and Transfusion Medicine Landspitali University Hospital, Reykjavík thorbjor@landspitali.is Í aðdraganda kosninga Þorbjörn Jónsson sérfræðingur í ónæmisfræði og blóðgjafarfræði Formaður Læknafélags Íslands Málefnasvið 2017 2021 23 – Sjúkrahúsaþjónusta 77.171 91.610 24 – Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa 38.866 42.338 25 – Hjúkrunarþjónusta og endurhæfingarþjónusta 42.106 46.495 26 – Lyf og lækningavörur 18.426 20.277 Samtals til heilbrigðismála 176.569 200.720 Samtals frumgjöld innan ramma 598.852 661.834

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.