Læknablaðið - 01.09.2016, Side 10
378 LÆKNAblaðið 2016/102
Inngangur
Rannsóknir síðastliðinna 20 ára, bæði meðal manna og
dýra, benda til þess að umhverfi fósturs í móðurkviði
geti haft umtalsverð áhrif á heilsu afkvæmisins allt
fram á fullorðinsár.1 Næringarástand fyrir og á með-
göngu getur ekki aðeins haft áhrif á heilsu móðurinn-
ar heldur einnig á þroska, vöxt og heilsu barnsins til
skemmri og lengri tíma.2-4
Mataræði mismunandi samfélagshópa hefur verið
rannsakað hérlendis undanfarin ár.5,6 Þekkingin hefur
meðal annars nýst við stefnumótun í lýðheilsumálum.
Mataræði barnshafandi kvenna hefur verið rannsakað
þrisvar sinnum síðastliðin 15 ár.7-9 Tíðnispurningalisti
var notaður til að kanna mataræði í öllum þessum rann-
sóknum. Þrátt fyrir að reynslan af notkun slíks spurn-
ingalista sé góð í stórum faraldsfræðilegum rannsókn-
um þar sem ætlunin er að flokka einstaklinga í hópa
eftir fæðuvali og tengja við heilsufarsþætti10-13 hentar
þessi aðferðafræði illa ef markmiðið er að magngreina
neyslu matvæla og einstakra næringarefna. Nákvæm-
ar upplýsingar um neyslu matvælategunda eru meðal
annars mikilvægar við að meta hættu á of mikilli eða
lítilli neyslu næringarefna miðað við ráðleggingar.14
Markmið rannsóknarinnar var að kanna fæðuval
og næringargildi fæðu meðal barnshafandi kvenna á
höfuðborgarsvæðinu, með áherslu á næringarefni sem
er talið að geti tengst fósturþroska. Notuð var vigtuð
skráning alls matar og drykkjar sem konurnar neyttu
í fjóra samfellda daga, sem er ein nákvæmasta aðferð
sem völ er á við könnun á mataræði einstaklinga.10
Tilgangur: Næringarástand fyrir og á meðgöngu getur haft áhrif á þroska,
vöxt og heilsu barnsins til skemmri og lengri tíma. Markmið rannsóknar-
innar var að rannsaka næringargildi fæðu hjá barnshafandi konum á
höfuðborgarsvæðinu og að kanna hvort mataræði kvenna í kjörþyngd fyrir
þungun væri frábrugðið því sem er hjá konum sem voru yfir kjörþyngd.
Efniviður/aðferðir: Þátttakendur voru konur á aldrinum 18-40 ára
(n=183), sem höfðu búsetu á höfuðborgarsvæðinu. Mataræði var kannað
með fjögurra daga vigtaðri skráningu í 19.-24. viku meðgöngu (n=98 með
líkamsþyngdarstuðull (LÞS) <25 kg/m2); n=46 með LÞS 25-29,9 kg/m2 og
n=39 með LÞS ≥30 kg/m2).
Niðurstöður: Einungis 20% kvennanna náðu lágmarksviðmiðum
trefjaneyslu sem eru 25 g á dag. Viðbættur sykur veitti að jafnaði 12% (SF
± 5%) af heildarorku fæðisins. Um fjórðungur kvennanna gæti hafa átt á
hættu að fullnægja ekki þörf fyrir joð, D-vítamín og DHA (dókósahexen-
sýru ). Ofneysla vítamína og steinefna (úr fæði og bætiefnum) sást ekki.
Miðgildi neyslu á mjólk og mjólkurvörum (346 g/dag miðað við 258 g/dag,
p<0,05), gos- og svaladrykkjum (200 g/dag miðað við 122 g/dag, p<0,05)
og kartöfluflögum og poppi (13 g/dag miðað við 0 g/dag, p<0,05) var
hærra meðal kvenna með LÞS ≥30 kg/m2 fyrir þungun heldur en kvenna
sem voru í kjörþyngd fyrir þungun.
Ályktanir: Huga þarf betur að fæðuvali kvenna fyrir og á meðgöngu, ekki
síst meðal kvenna yfir kjörþyngd. Hluti barnshafandi kvenna fullnægir ekki
þörf fyrir næringarefni á borð við joð, D-vítamín og DHA, sem öll gegna
lykilhlutverki við fósturþroska.
ÁGRIP
Undirmarkmið rannsóknarinnar var að kanna hvort
mataræði kvenna í kjörþyngd fyrir meðgöngu væri frá-
brugðið mataræði kvenna sem voru of þungar eða of
feitar fyrir meðgöngu.
Efniviður og aðferðir
Þátttakendur voru íslenskar konur á aldrinum 18-40 ára
með búsetu á höfuðborgarsvæðinu. Gagnanna var afl-
að í rannsókninni Göngum dálítið meira (GDM) sem fór
fram á kvennadeild Landspítala í samstarfi við Rann-
sóknastofu í næringarfræði frá apríl 2012 fram í október
2013.15 Konum var boðin þátttaka í rannsókninni við 20
vikna ómskoðun á fósturgreiningadeild kvennadeildar
Landspítala. Upphafleg þátttökuskilyrði voru auk bú-
setu og aldurs, reykleysi á meðgöngu, engin fjölskyldu-
saga um sykursýki eða meðgöngusykursýki, fyrsta til
þriðja meðganga og líkamsþyngdarstuðull (LÞS) á bilinu
18,5-24,9 kg/m2 (kjörþyngd) eða LÞS 30-<40 kg/m2 (offita).
Markmiðið var að skrá að minnsta kosti 100 konur í kjör-
þyngd og 100 konur með LÞS 30-<40 kg/m2 til þátttöku.
Sex mánuðum eftir upphaf rannsóknar var ákveðið að
bjóða til þátttöku konum sem flokkast í ofþyngd (LÞS
25-29,9 kg/m2), þar sem hægt gekk að skrá konur með
LÞS 30-<40 kg/m2 sem fullnægðu skilyrðum um þátt-
töku. Í heildina var leitað eftir samþykki 273 kvenna, þar
af neituðu 56 (kjörþyngd n=43; ofþyngd n=1; offita n=12)
þátttöku, auk þess sem 34 konur skiluðu ekki matardag-
bókum. Því voru niðurstöður fyrir 183 konur (67%) sem
Greinin barst
25. janúar 2016,
samþykkt til birtingar
8. júlí 2016.
Höfundar hafa
útfyllt eyðublað um
hagsmunatengsl.
Fæðuval og næring kvenna á meðgöngu
með tilliti til líkamsþyngdar
Ingibjörg Gunnarsdóttir1,2 næringarfræðingur, Ellen Alma Tryggvadóttir1,2 næringarfræðingur, Bryndís Eva Birgisdóttir1,2 næringarfræðingur,
Þórhallur Ingi Halldórsson1,2 faraldsfræðingur, Helga Medek3 læknir, Reynir Tómas Geirsson3,4 læknir
1Rannsóknastofu í
næringarfræði við
Landspítala og Háskóla
Íslands, 2matvæla- og
næringarfræðideild,
heilbrigðisvísindasviði
Háskóla Íslands,
3kvennadeild, kvenna- og
barnasviði Landspítala,
4læknadeild Háskóla
Íslands.
Fyrirspurnir: Ingibjörg Gunnarsdóttir, ingigun@hi.is
http://dx.doi.org/10.17992/lbl.2016.09.95R A N N S Ó K N