Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.09.2016, Qupperneq 10

Læknablaðið - 01.09.2016, Qupperneq 10
378 LÆKNAblaðið 2016/102 Inngangur Rannsóknir síðastliðinna 20 ára, bæði meðal manna og dýra, benda til þess að umhverfi fósturs í móðurkviði geti haft umtalsverð áhrif á heilsu afkvæmisins allt fram á fullorðinsár.1 Næringarástand fyrir og á með- göngu getur ekki aðeins haft áhrif á heilsu móðurinn- ar heldur einnig á þroska, vöxt og heilsu barnsins til skemmri og lengri tíma.2-4 Mataræði mismunandi samfélagshópa hefur verið rannsakað hérlendis undanfarin ár.5,6 Þekkingin hefur meðal annars nýst við stefnumótun í lýðheilsumálum. Mataræði barnshafandi kvenna hefur verið rannsakað þrisvar sinnum síðastliðin 15 ár.7-9 Tíðnispurningalisti var notaður til að kanna mataræði í öllum þessum rann- sóknum. Þrátt fyrir að reynslan af notkun slíks spurn- ingalista sé góð í stórum faraldsfræðilegum rannsókn- um þar sem ætlunin er að flokka einstaklinga í hópa eftir fæðuvali og tengja við heilsufarsþætti10-13 hentar þessi aðferðafræði illa ef markmiðið er að magngreina neyslu matvæla og einstakra næringarefna. Nákvæm- ar upplýsingar um neyslu matvælategunda eru meðal annars mikilvægar við að meta hættu á of mikilli eða lítilli neyslu næringarefna miðað við ráðleggingar.14 Markmið rannsóknarinnar var að kanna fæðuval og næringargildi fæðu meðal barnshafandi kvenna á höfuðborgarsvæðinu, með áherslu á næringarefni sem er talið að geti tengst fósturþroska. Notuð var vigtuð skráning alls matar og drykkjar sem konurnar neyttu í fjóra samfellda daga, sem er ein nákvæmasta aðferð sem völ er á við könnun á mataræði einstaklinga.10 Tilgangur: Næringarástand fyrir og á meðgöngu getur haft áhrif á þroska, vöxt og heilsu barnsins til skemmri og lengri tíma. Markmið rannsóknar- innar var að rannsaka næringargildi fæðu hjá barnshafandi konum á höfuðborgarsvæðinu og að kanna hvort mataræði kvenna í kjörþyngd fyrir þungun væri frábrugðið því sem er hjá konum sem voru yfir kjörþyngd. Efniviður/aðferðir: Þátttakendur voru konur á aldrinum 18-40 ára (n=183), sem höfðu búsetu á höfuðborgarsvæðinu. Mataræði var kannað með fjögurra daga vigtaðri skráningu í 19.-24. viku meðgöngu (n=98 með líkamsþyngdarstuðull (LÞS) <25 kg/m2); n=46 með LÞS 25-29,9 kg/m2 og n=39 með LÞS ≥30 kg/m2). Niðurstöður: Einungis 20% kvennanna náðu lágmarksviðmiðum trefjaneyslu sem eru 25 g á dag. Viðbættur sykur veitti að jafnaði 12% (SF ± 5%) af heildarorku fæðisins. Um fjórðungur kvennanna gæti hafa átt á hættu að fullnægja ekki þörf fyrir joð, D-vítamín og DHA (dókósahexen- sýru ). Ofneysla vítamína og steinefna (úr fæði og bætiefnum) sást ekki. Miðgildi neyslu á mjólk og mjólkurvörum (346 g/dag miðað við 258 g/dag, p<0,05), gos- og svaladrykkjum (200 g/dag miðað við 122 g/dag, p<0,05) og kartöfluflögum og poppi (13 g/dag miðað við 0 g/dag, p<0,05) var hærra meðal kvenna með LÞS ≥30 kg/m2 fyrir þungun heldur en kvenna sem voru í kjörþyngd fyrir þungun. Ályktanir: Huga þarf betur að fæðuvali kvenna fyrir og á meðgöngu, ekki síst meðal kvenna yfir kjörþyngd. Hluti barnshafandi kvenna fullnægir ekki þörf fyrir næringarefni á borð við joð, D-vítamín og DHA, sem öll gegna lykilhlutverki við fósturþroska. ÁGRIP Undirmarkmið rannsóknarinnar var að kanna hvort mataræði kvenna í kjörþyngd fyrir meðgöngu væri frá- brugðið mataræði kvenna sem voru of þungar eða of feitar fyrir meðgöngu. Efniviður og aðferðir Þátttakendur voru íslenskar konur á aldrinum 18-40 ára með búsetu á höfuðborgarsvæðinu. Gagnanna var afl- að í rannsókninni Göngum dálítið meira (GDM) sem fór fram á kvennadeild Landspítala í samstarfi við Rann- sóknastofu í næringarfræði frá apríl 2012 fram í október 2013.15 Konum var boðin þátttaka í rannsókninni við 20 vikna ómskoðun á fósturgreiningadeild kvennadeildar Landspítala. Upphafleg þátttökuskilyrði voru auk bú- setu og aldurs, reykleysi á meðgöngu, engin fjölskyldu- saga um sykursýki eða meðgöngusykursýki, fyrsta til þriðja meðganga og líkamsþyngdarstuðull (LÞS) á bilinu 18,5-24,9 kg/m2 (kjörþyngd) eða LÞS 30-<40 kg/m2 (offita). Markmiðið var að skrá að minnsta kosti 100 konur í kjör- þyngd og 100 konur með LÞS 30-<40 kg/m2 til þátttöku. Sex mánuðum eftir upphaf rannsóknar var ákveðið að bjóða til þátttöku konum sem flokkast í ofþyngd (LÞS 25-29,9 kg/m2), þar sem hægt gekk að skrá konur með LÞS 30-<40 kg/m2 sem fullnægðu skilyrðum um þátt- töku. Í heildina var leitað eftir samþykki 273 kvenna, þar af neituðu 56 (kjörþyngd n=43; ofþyngd n=1; offita n=12) þátttöku, auk þess sem 34 konur skiluðu ekki matardag- bókum. Því voru niðurstöður fyrir 183 konur (67%) sem Greinin barst 25. janúar 2016, samþykkt til birtingar 8. júlí 2016. Höfundar hafa útfyllt eyðublað um hagsmunatengsl. Fæðuval og næring kvenna á meðgöngu með tilliti til líkamsþyngdar Ingibjörg Gunnarsdóttir1,2 næringarfræðingur, Ellen Alma Tryggvadóttir1,2 næringarfræðingur, Bryndís Eva Birgisdóttir1,2 næringarfræðingur, Þórhallur Ingi Halldórsson1,2 faraldsfræðingur, Helga Medek3 læknir, Reynir Tómas Geirsson3,4 læknir 1Rannsóknastofu í næringarfræði við Landspítala og Háskóla Íslands, 2matvæla- og næringarfræðideild, heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands, 3kvennadeild, kvenna- og barnasviði Landspítala, 4læknadeild Háskóla Íslands. Fyrirspurnir: Ingibjörg Gunnarsdóttir, ingigun@hi.is http://dx.doi.org/10.17992/lbl.2016.09.95R A N N S Ó K N

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.