Læknablaðið - 01.09.2016, Side 18
386 LÆKNAblaðið 2016/102
Y F I R L I T S G R E I N
ið stöðugur, komið í köstum og verið öðrum megin eða báðum
megin í höfðinu, og líkist gjarnan mígrenihöfuðverk.13
Staðbundin taugaeinkenni
Staðbundin taugaeinkenni eins og helftarlömun, máltruflun, skyn-
eða sjónsviðsbrottfall koma fyrir. Einkenni ráðast af staðsetningu
flækjunnar. Í æðaflækjunni þar sem slagæðablóð á greiðan aðgang
að bláæðakerfinu getur orðið blóðþurrð í aðliggjandi heilavef (cer-
ebral steal syndrome).14 Blóðþurrðin getur leitt til einkenna skamm-
vinnrar heilablóðþurrðar eða heiladreps. Einnig getur æðaflækjan
með fyrirferð sinni valdið staðbundnum brottfallseinkennum.
Blásturshljóð
Einstaklingar geta heyrt hljóð í höfði sem þeir lýsa oft sem púlser-
andi í takt við æðasláttinn. Hljóðinu er lýst inni í höfðinu eða nær
öðru hvoru eyranu. Slíkt getur verið vísbending um æðaflækju.
Myndrannsóknir
Hægt er að greina æðaflækjur með tölvusneiðmyndaæðarann-
sókn, segulómskoðun (SÓ) og SÓ-æðarannsókn og hefðbundinni
æðamyndatöku (conventional catheter angiography) (mynd 1). Hefð-
bundin tölvusneiðmynd er næm til greiningar á bráðri heilablæð-
ingu en varpar ekki fullnægjandi ljósi á æðaflækjuna sjálfa. Leggja
verður áherslu á að hefðbundin tölvusneiðmynd útilokar ekki
æðaflækju. Tölvusneiðmyndaæðarannsókn sýnir æðaflækjur með
Mynd 1b. TS æðamynd sýnir æðaflækjuna með stóru hreiðri (nidus) (3,5 cm í stærsta
þvermál, löng hvít ör). Sjá má tvær nærandi slagæðar (grannar svartar örvar). Einnig
má sjá tvær stórar fráflæðisbláæðar (stuttar hvítar örvar).
Mynd 1a. Tölvusneiðmynd sem sýnir blóð í hægra hliðarheilahólfi (löng ör) og þriðja
heilahólfi (stutt ör). Í hægra heilahveli sést háþéttnibreyting sem vekur grun um æða-
flækju (grannar örvar).
Klínísk einkenni
Algengast er að sjúklingar með æðaflækju í heila leiti læknis
vegna eftirfarandi: 1) heilavefsblæðingar, 2) floga, 3) staðbundinna
taugaeinkenna, 4) höfuðverkjar og 5) blásturshljóðs í höfði (bruit).
Heilavefsblæðing
Heilavefsblæðing er algengasta upphafseinkennið (42-72%), ásamt
flogum.9,10 Blæðingarnar verða einkum á aldrinum 20 til 40 ára.9
Þær valda um 2% af öllum heilablóðföllum.11,12 Heilavefsblæð-
ingin er oftast staðbundin þó að blæðing inn í heilahólf eða inn-
anskúmsblæðing komi fyrir. Einkennin ráðast af staðsetningu
og umfangi blæðingarinnar. Brottfallseinkenni ásamt höfuðverk
koma skyndilega eins og við aðrar tegundir heilavefsblæðinga.
Flog
Flog er fyrsta einkenni hjá 28-67% einstaklinga. Hjá helmingi
þeirra verður flogið innan við þrítugt. Þessi hópur veikist að jafn-
aði fyrr en þeir sem blæða. Athyglisvert er að flog eru tvöfalt al-
gengari en blæðingar þegar æðaflækjur eru stórar.
Höfuðverkur
Höfuðverkur vegna æðaflækju kemur fyrir hjá 5-35% þessara
einstaklinga. Verkurinn er yfirleitt ósértækur. Hann getur ver-