Læknablaðið - 01.09.2016, Qupperneq 32
400 LÆKNAblaðið 2016/102
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
„Það sem breytist er að vandamálum
á borð við blæðingar og sýkingar hefur
snarfækkað. Sjúklingarnir fá miklu síður
verki og þeir útskrifast fyrr, langflestir
fara heim daginn eftir aðgerð sem er mik-
ill munur. Þeir eru fljótari að jafna sig og
eru komnir mun fyrr til vinnu. Þetta sést
best þegar þeir koma í eftirlit nokkrum
dögum eftir aðgerð. Áður voru þeir gjarn-
an allir í keng en nú ganga þeir hnarreistir
inn.“
Engar hömlur á notkun þjarkans
– Gefur þjarkinn möguleika á að gera nýja
hluti sem ekki hefur verið hægt að gera?
„Ekki endilega nýja hluti. Sjúklingarn-
ir og sjúkdómarnir eru þeir sömu og
áður en við getum gert hlutina betur
og með minna inngripi og áverka fyrir
sjúklinginn. Við gerum nú orðið flestar
stærstu og flóknustu aðgerðirnar í þjark-
anum og ég get sagt það fullum fetum að
það eru ekki margar deildir við sjúkrahús
á Norðurlöndunum sem eru með jafn-
öflug teymi og mikla starfsemi hvað þetta
varðar eins og hér á Landspítalanum.
Þótt landið og spítalinn séu ekki stór er
samt hægt að gera hluti hér sem ekki
eru gerðir hvar sem er. Það er afskaplega
ánægjulegt.“
– Er hægt að beita þessari tækni hvar sem
er í líkamanum?
„Já, í raun er þetta bara tölvustýrður
rafeindahnífur sem hefur þann tilgang
fyrst og fremst að gera flóknari hluti á
betri hátt. Það eru því í sjálfu sér engar
hömlur á því á hvar honum er beitt, enda
eru gerðar aðgerðir með þjörkum í flestum
sérgreinum skurðlækninga. Í raun er þetta
áframhald á tækniþróun frá opnum að-
gerðum yfir í kviðsjáraðgerðir og áfram
í tölvustýrðar kviðsjáraðgerðir þar sem
nútímatölvutækni og háskerpuþrívíddar-
myndir nýtast. Ég á ekki von á öðru en
að þessi þróun haldi áfram á komandi
árum og áratugum. Ég geri ráð fyrir því
að þegar ég fer að nálgast eftirlaunaaldur
verði komin enn öflugri og sennilega allt
öðruvísi tækni til að gera hlutina. Við
sjáum þetta alls staðar, til dæmis í fluginu
og ekki síst í drónunum.
Tæknin eykur öryggi sjúklinga svo
fremi þeir sem nota tækið viti hvað þeir
eru að gera. „A fool with a tool is still a
fool“ er sagt á ensku og það gildir hér sem
annars staðar. Tækið gefur engan afslátt af
því að menn þurfa að vinna vel og vanda
sig.“
Snýst á endanum um starfsfólkið
– Sérð þú fram á að þjarkinn auki afköst skurð-
deilda spítalans?
„Nú erum við að gera hluti sem
eru svipaðir því sem gert er á stærstu
sjúkrahúsum í nágrannalöndum okkar
austan hafs og vestan. Þetta opnar ýmsa
möguleika, svo sem að sinna sjúklingum
í kringum okkur, til dæmis Færeyjum og
Grænlandi þar sem þessi tækni er ekki til.
Afköstin er hægt að auka og eitt tæki er
alveg nóg eins og er. Það er hægt að vinna
á vöktum við svona tæki ef starfsfólk sem
kann á þau er tiltækt. Það gæti þó breyst
með aukinni notkun og fleiri sérgreinum.
Það sem hamlar er helst skortur á legu-
rýmum fyrir sjúklinga, stærri spítali og
fleiri skurðstofur.
Þjarkinn krefst þess að sérhæft starfs-
fólk sé til staðar og það mun ekkert
breytast. Með því að hafa yfir að ráða
tækjum og búnaði sem er sambærilegur
við það sem gengur og gerist á stórum
sjúkrahúsum í nágrannalöndunum erum
við að skapa forsendur fyrir því að fólk
sem er að læra og vinna á þessum stöðum
komi hingað til Íslands. Það hefur þegar
gerst. Hingað hafa komið til starfa færir
skurðlæknar sem hafa unnið með þessa
tækni í útlöndum. Það skiptir sköpum því
á endanum snýst þetta um að hafa hæft
starfsfólk.
Þetta er grunnforsenda fyrir því að
hægt sé að láta skynsamlegt samfélag
virka hér á landi. Við þekkjum vandann
sem skapast þegar heilbrigðisstofnanir
á landsbyggðinni hverfa – þá fer fólkið,
barnafólkið fyrst af því þjónusta við það
hverfur. Það sama á við um allt landið
ef grunnstoðir heilbrigðiskerfisins virka
ekki. Það skiptir höfuðmáli að hér sé öflug
heilbrigðisþjónusta og hægt að gera alla
hluti, jafnvel þótt Ísland sé lítið. Ef við ger-
um það ekki fer fólk einfaldlega eitthvert
annað,“ sagði Rafn Hilmarsson.
Rafn sestur í „ökumannssætið“ sem er í næsta herbergi við sjálfa skurðstofuna. Stjórntæki þjarkans, hér fer vinnan fram.