Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.09.2016, Síða 40

Læknablaðið - 01.09.2016, Síða 40
408 LÆKNAblaðið 2016/102 Frá Ólafsvík gengu þeir á Snæfellsjökul, Bright, Holland og Ólafur Loftsson ásamt tveimur fylgdarmönnum sem aldrei höfðu á jökulinn komið. Þeir komust á einn af þremur tindum á toppnum en þurftu að feta sig eftir mjórri snjóbrú yfir djúpa sprungu og „hef aldrei í slíkan háska kom- ist“ segir Henry í dagbók sinni. Frá Ólafsvík var haldið til Grundar- fjarðar um hrikalega slóð í Búlandshöfða. Þeir koma þar steinasafni sínu í skip til Reykjavíkur. Þegar til Stykkishólms kemur kynnast þeir Oddi Hjaltalín lækni, syni Saurbæjarprestsins. Oddur fylgdi þeim að Drápuhlíðarfjalli en þaðan var för haldið áfram inn Skóga- strönd með gistingu á Narfeyri og í Snóks- dal. Síðan var farið yfir Bröttubrekku og gist að Hvammi í Norðurárdal. Næsta dag fylgdi Hvammsbóndi þeim að Síðumúla en þar hittu þeir sýslumann sem varð þeim samferða yfir Hvítá að Hvanneyri. Margir gistu að Hvanneyri þá nótt og þótti Englendingunum nóg um hvernig konum og körlum var hrúgað saman í herbergi. Daginn eftir fóru Mackensie og Hol- land að Reykholti og skoðuðu hveri þar í grenndinni. Þótti þeim mest koma til Deildartunguhvers. Daginn eftir var farið að Innrahólmi. Reið Stefán amtmaður á leið og gaf Mac- kensie frábæran reiðhest sinn að skilnaði. Að Innrahólmi var þeim vel tekið en um kvöldið var þeim síðan róið til Reykja- víkur og höfðu þá verið mánuð í burtu. Austur yfir Fjall Eftir vikudvöl í Reykjavík þar sem fátt bar til tíðinda nema hvað yfir stóð aðalkaup- tíðin í höfuðstaðnum, voru ferðalangarnir búnir til ferðar um Suðurland. Í för með þeim að Geysi slógust nokkrir kunningjar þeirra. Fyrst var haldið til Þingvalla. Holland lýsir Almannagjá og aftökustöðum en er annars fremur fámáll um staðinn og sögu hans. Hann segir kirkjuna þá næsthrörleg- ustu er þeir gistu á ferðum sínum. Þeir halda síðan í Skálholt sem Holland finnst fegursta bæjarstæði sem hann leit á Íslandi. Þótt biskupsstóllinn væri fluttur til Reykjavíkur stóð þó kirkjan þar enn og þar var sofið. Frá Skálholti er farið að Geysi og dvalið þar í tvær nætur. Geysir gýs nokkrum sinnum fyrir þá og „Nýi Geysir“ sem sennilega er Strokkur gýs einnig hressi- lega rétt við tjaldskör þeirra. Næst var haldið áleiðis að Heklu, ferjað yfir Hvítá og Þjórsá. Gist er á tveimur stöð- um áður en komið er í Næfurholt 1. ágúst. Frá Næfurholti er farið í tvær dags- ferðir. Hin fyrri er inn á Dómadal og hugsanlega allt inn í Hrafntinnuhraun þar sem þeir sannfærast um að hrafntinna sé til orðin við eldgos. Sú ferð tók nærri sólarhring. Daginn eftir ganga þeir á Heklu. Holland segir í endurminningum sínum að hann sé sennilega eini maður- inn í heimi sem hafi staðið á tindi Heklu, Vesúvíusar og Etnu. Frá Næfurholti er farið að Hlíðarenda stystu leið en þar áttu þeir heimboð hjá Vigfúsi Thorarensen sýslumanni. Héðan er mikilfenglegt útsýni. Skemmtileg er lýsing Hollands af samskiptum við drukkinn prest og messuhaldi hans. Þeim félögum bárust nú boð um að þeir yrðu að hraða sér til Reykjavíkur til að ná fari með skipinu Flora. Þeir hættu því við frekara ferðalag austur á bóginn og fóru frá Hlíðarenda að Odda og gistu þar en riðu þaðan alla leið til Reykjavíkur með stuttri viðkomu á Eyrarbakka. Flora fór þó ekki fyrr en hálfum mánuði seinna. Var þeim haldið kveðjusamsæti og mættu þar allir fyrirmenn, enskir jafnt sem danskir og íslenskir. Þeir félagar komust heilir heim þrátt fyrir erfiða siglingu og mikla sjóveiki. Sjúkdómar Íslendinga Hér skal drepið á nokkur atriði úr ritgerð Henrys Hollands um sjúkdóma á Íslandi en hana er að finna sem viðauka við ferða- söguna í bók Mackensies. Hann byrjar á að ræða strjálbýlið og erfiðleika við að halda uppi heilbrigðis- þjónustu. Auk landlæknis séu 5 læknar dreifðir um landið. Hver og einn þeirra þjóni stóru landsvæði og gegni nær óyfir- stíganlegu hlutverki. Í landinu séu þrjú sjúkrahús er öll annist holdsveika. Þau séu fjármögnuð með því að hver fiskibátur á landinu gefi einn hlut veiði einn dag á ári, þó aldrei færri en fimm fiska. Hann ræðir um skyrbjúg vegna lítils grænmetisáts. Hann talar um holdsveiki sem lengi hafi verið landlæg og engin úrræði að gagni önnur en einangrun sjúklinga. Þá ræðir hann um bólusótt sem herjað hafi með löngum millibilum og þar af leið- andi miklu mannfalli. Hann fjallar um far- aldurinn 1707 er banaði meira en fjórðungi landsmanna. Hann nefnir kúabóluefni sem þeir gáfu og kom bólusetningum aft- ur af stað. Loks ræðir hann ginklofavanda- málið í Vestmannaeyjum og skín í gegn það ráðaleysi sem menn búa við meðan engin skýring fæst á því. Heimildir Holland H. Dagbók í Íslandsferð 1810. Almenna Bókafélagið, Reykjavík 1960. Mackensie GS. Travels in the island of Iceland, during the summer of the year MDCCCX. Edinburgh 1811. Holland H. Recollections of past life. D. Appleton and Company, New York 1872. Eyjafjallajökull frá Hlíðarenda Ö L D U N G A D E I L D Læknafélag Akureyrar heldur haustþing laugardaginn 15. október í sal Menntaskólans á Akureyri Kvensjúkdómar og fæðingahjálp á 21. öldinni 08:30-09:00 Skráning 09:00-09:10 Setning: Valur Þór Marteinsson formaður LA 09:10-09:30 Ógleði og uppköst á meðgöngu. Valur Guðmundsson læknir 09:30-09:50 Meðgöngusykursýki. Málfríður Þórðardóttir ljósmóðir 09:50-10:10 Viðhorf til fæðinga: til þess eru vítin að varast þau. Sigfríður Inga Karlsdóttir ljósmóðir 10:10-10:45 Fyrirspurnir og kaffihlé 10:45-11:05 Óvæntar fæðingar, er hægt að spá fyrir hvað konur fæða fljótt. Björn Gunnarsson læknir 11:05-11:25 Áhrifaþættir heimafæðinga á Íslandi: heilsufarslegar frábendingar og viðhorf kvenna. Berglind Hálfdánsdóttir ljósmóðir 11:25-11:45 Framköllun fæðinga og áhrif á tíðni keisaraskurða. Alexander Smárason læknir 11:45-12:45 Fyrirspurnir og matarhlé 12:45-13:05 BRCA gena breytingar. Þórunn Rafnar erfðafræðingur 13:05-13:25 Hormónameðferð eftir tíðahvörf. Orri Ingþórsson læknir 13:25-13:45 Grindarbotnsþjálfun til styrkingar í þvagleka og til slökunar við kynlífsvandamál og hægðavandamál. Soffía Einarsdóttir sjúkraþjálfari 13:45-14:05 Vandamál í neðri þvagvegum kvenna. Jóhannes Heimir Jónsson læknir 14:05-14:35 Fyrirspurnir og kaffihlé 14:35-14:55 Inngrips röntgen og kvensjúkdómalækningar. Hjalti Már Þórisson læknir 14:55-15:15 Treatment of uterine fibroids – current and new perspectives (Meðferð á vöðvahnútum í legi – reyndar leiðir og nýir valkostir). Kirsten Hald læknir 15:15-15:35 Konur og kynlíf í Íslendingasögum. Óttar Guðmundsson læknir 15:35-16:00 Fyrirspurnir og þingslit Þátttökugjald er 7000 kr. og 3000 kr. fyrir nema. Skráning á haustthing2016@gmail.com

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.