Morgunblaðið - 08.12.2016, Síða 1
F I M M T U D A G U R 8. D E S E M B E R 2 0 1 6
Stofnað 1913 288. tölublað 104. árgangur
HLJÓMSVEITAR-
ÁRIN ERU
AÐALSKÓLINN
MEÐ METNAÐ
FYRIR HÁUM
HÆLUM
AÐ GEFA SÉR
FRELSI TIL
AÐ SKRIFA
VIÐSKIPTAMOGGINN MARION PAUW 14KJARTAN SVEINSSON 88
Jóladagatalið er á
jolamjolk.is
dagar til jóla
16
- Reykjavík | Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
GÆÐA VÍNGLÖS TVENNUTILBOÐSJÚKRAÞJÁLFARI
21.60020%KYNNINGAR AFSLÁTTUR20%AFSLÁTTUR
FUSSENEGGER
Kristín Gísladóttir
sjúkraþjálfari aðstoðar við
val á rúmdýnum.
Sí
DÚNSÆNG OG KODDIÍ DAG 16-18SÆNGURFATNAÐUR
Hlutur 10.000 króna seðilsins fer
vaxandi í heildarverðmæti seðla í
umferð og nemur nú um 43%, að því
er fram kemur í ritinu Fjármála-
innviðir sem Seðlabankinn gaf út í
gær. Hlutfall 5.000 króna seðilsins
hefur minnkað úr 86% í 44% síðan
10.000 króna seðillinn fór í umferð
2013. Notkun reiðufjár á Íslandi
hefur aukist með vaxandi ferða-
mannastraumi og er nú orðin hlut-
fallslega meiri hér en í Svíþjóð og
Noregi. »ViðskiptaMogginn
Tíu þúsund króna
seðillinn sækir á
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Um það bil 820 einstaklingar eru í
dag hælisleitendur á Íslandi, en
vegna skorts á húsnæði hefur Út-
lendingastofnun neyðst til að hýsa
hluta þessa fólks á hótelum í
Reykjanesbæ og á höfuðborgar-
svæðinu.
Í skriflegu svari Útlendingastofn-
unar til Morgunblaðsins kemur m.a.
fram að fjöldi hælisleitenda sem nú
gista á hótelum sé um 240 og er
kostnaður fyrir hvert hótelherbergi
um 15.000 krónur nóttin. Í sumum
tilfellum gista fleiri en einn einstak-
lingur í hverju herbergi, t.a.m. þeg-
ar um er að ræða barnafjölskyldur.
„Þessi fjöldi sem nú gistir á hótelum
hefur aldrei verið meiri, en við höf-
um þó séð svipaðan fjölda áður,“
segir Þórhildur Ósk Hagalín, upp-
lýsingafulltrúi Útlendingastofnunar,
í samtali við Morgunblaðið.
Fleiri fara inn
en út úr kerfinu
„Þetta eru dýrustu úrræðin sem
við höfum og um leið og pláss losnar
annars staðar tökum við fólk út af
hótelum. Álagið er hins vegar mjög
mikið og það hafa komið dagar þar
sem um 40 manns óska eftir hæli, en
undanfarna þrjá mánuði hefur það
verið þannig að fleira fólk kemur inn
í kerfið en fer út úr því,“ segir hún.
Þeir hælisleitendur sem ekki gista
á hótelum eru vistaðir í húsnæði í
Reykjavík, Hafnarfirði og á Kjalar-
nesi. Alls leigir Útlendingastofnun
húsnæði á 13 stöðum á höfuðborgar-
svæðinu og er leigukostnaður, sam-
kvæmt skriflegu svari stofnunarinn-
ar, um 36 milljónir á mánuði. Við
þessa upphæð bætist hótelkostnað-
ur sem skiptir mörgum tugum millj-
óna á mánuði.
Alls hafa yfir 1.000 hælisleitendur
komið hingað til lands á þessu ári,
langflestir frá Makedóníu og Alban-
íu, en lönd þessi eru bæði skilgreind
sem örugg og ríkir þar því hvorki
stríðsástand né neyð.
Tugir milljóna í uppihald
Um 820 hælisleitendur eru nú á Íslandi og gista 240 þeirra á hótelum Hvert
hótelherbergi kostar ríkið um 15.000 krónur Um 36 milljónir fara í húsaleigu
Þjóðernin
» Samkvæmt tölum Útlend-
ingastofnunar eru flestir
hælisleitendur sem hingað
hafa komið frá Makedóníu, eða
402 í ár.
» Næstir á eftir eru Albanar,
eða alls 221 einstaklingur.
» Írakar eru þriðji fjölmenn-
asti hópurinn, alls 64.
» Þá eru Georgíumenn 39 og
Sýrlendingar 37.
Jólin nálgast og í önnum aðventunnar er gott að geta fundið stund til að
slaka á og njóta lífsins. Skautasvellið á Ingólfstorgi í miðbæ Reykjavíkur
býður upp á skemmtilega afþreyingu fyrir yngri jafnt sem eldri og jólaljós,
kúlur og fleiri fallegar skreytingar setja hátíðlegan blæ á umhverfið. Mið-
að við veðurspá er hins vegar ekki líklegt að frysti á Tjörninni á næstunni
svo þar verði hægt að renna sér.
Morgunblaðið/RAX
Slakað á í önnum aðventunnar
Skoða þarf gæði
kennaranámsins
eftir að það var
lengt í fimm ár.
Menntun kennara
þarf að vera
markvissari og
gerðar meiri
kröfur til kennara
varðandi kunnáttu í stærðfræði,
náttúrufræði og íslensku. „Ég tel að
það megi auka til muna kröfurnar í
kennaranáminu og að fleiri myndu
sækja í það ef svo yrði,“ segir Mey-
vant Þórólfsson, dósent við mennta-
vísindasvið Háskóla Íslands. »48
Meiri kröfur til
kunnáttu kennara