Morgunblaðið - 08.12.2016, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016
Axel Jóhann Axelsson skrifar:
Kastljós RÚVhefur farið
mikinn að und-
anförnu, t.d. með
aftöku eins stærsta
eggjabús landsins
og í framhaldinu
virðist hafa átt að
ganga frá nokkrum
hæstaréttardómurum ærulausum
og þá ekki síst forseta réttarins.
Einhver sem hlýtur að hafa hags-
muni af því að gera tortryggilega
dóma vegna ýmissa mála sem
tengjast Glitni og slitabúi hans
virðist hafa lekið skjölum um fjár-
mál dómaranna fyrir hrun og látið
líta út fyrir að þeir væru vanhæfir
til að kveða upp dóma í málum
tengdum hrunverjum Glitnis.
Kastljós hefur greinilega fariðfram af meira kappi en
forsjá í þessu máli, enda hefur for-
seti Hæstaréttar lagt fram gögn
sem sýna fram á að upphlaup
Kastljóss vegna málsins hefur ver-
ið unnið af óvandvirkni og af
hreinni æsifréttamennsku. Eins
og venjulega stendur ekkert á
hörðum viðbrögðum frá dómstóli
götunnar, sem umsvifalaust tekur
undir falska niðurstöðu Kastljóss-
ins og er algerlega tilbúinn til að
dæma æruna af hæstaréttardóm-
urunum og fróðlegt verður að
fylgjast með því hvort sönn-
unargögn um sakleysi sakborn-
inga koma til með að breyta þeirri
niðurstöðu.
Það er merkilegt að sjá hve auð-
velt virðist vera að gera dómstóla
landsins tortryggilega af þeim
sem dóma hafa fengið á sig vegna
ýmissa sakamála, eða einhverra
huldumanna sem þeim tengjast.“
Minna má á, að fyrir hálfu árivoru sömu „arkitektar“ á
ferð þegar forsætisráðherrann
var felldur.
Axel Jóhann
Axelsson
Kunnuglegur
óhugnaður
STAKSTEINAR
Láttu okkur ráða
Elja starfsmannaþjónusta 4 150 140 elja.is elja@elja.is
Þarftu að ráða
öryggisvörð?
Austurveri, Háaleitisbraut 68 • sími 568 4240
Hágæða leðurskór frá
Stærðir
34-47
ERIS
Verð: 19.999
MARS m/stáltá
Verð: 21.999
SATURN
Verð: 15.999
Veður víða um heim 7.12., kl. 18.00
Reykjavík 7 súld
Bolungarvík 5 alskýjað
Akureyri 2 alskýjað
Nuuk -5 skýjað
Þórshöfn 9 þoka
Ósló 1 rigning
Kaupmannahöfn 4 súld
Stokkhólmur 2 rigning
Helsinki 0 snjókoma
Lúxemborg 1 þoka
Brussel 9 heiðskírt
Dublin 14 skýjað
Glasgow 14 skúrir
London 11 þoka
París 8 heiðskírt
Amsterdam 8 þoka
Hamborg 5 heiðskírt
Berlín 2 rigning
Vín -1 þoka
Moskva -11 heiðskírt
Algarve 18 heiðskírt
Madríd 13 heiðskírt
Barcelona 15 heiðskírt
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 16 heiðskírt
Aþena 11 skýjað
Winnipeg -5 snjókoma
Montreal 0 súld
New York 4 súld
Chicago -2 skýjað
Orlando 19 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
8. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:05 15:36
ÍSAFJÖRÐUR 11:46 15:05
SIGLUFJÖRÐUR 11:31 14:46
DJÚPIVOGUR 10:43 14:57
Fjármálaeftirlitið (FME) kveðst al-
mennt ekki geta gefið upplýsingar
um aðgerðir sínar eða skoðanir, fyrr
en að málalokum. Það sé í samræmi
við gagnsæisstefnu stofnunarinnar.
Fjármálaeftirlitið mun því ekki tjá
sig um mál hæstaréttardómara sem
hafa verið í fréttum vegna hluta-
bréfaviðskipta fyrir hrun.
Í skriflegu svari Sigurðar Val-
geirssonar, upplýsingafulltrúa
FME, benti hann á 58. grein laga um
fjármálafyrirtæki (161/2002). Þar
segir að „stjórnarmenn fjármálafyr-
irtækis, framkvæmdastjórar, endur-
skoðendur, starfsmenn og hverjir
þeir sem taka að sér verk í þágu fyr-
irtækisins eru bundnir þagnar-
skyldu um allt það sem þeir fá vitn-
eskju um við framkvæmd starfa síns
og varðar við-
skipta- eða einka-
málefni viðskipta-
manna þess, nema
skylt sé að veita
upplýsingar sam-
kvæmt lögum.
Þagnarskyldan
helst þótt látið sé af
starfi.“
Í næstu máls-
grein segir að „sá
sem veitir viðtöku upplýsingum af
því tagi sem um getur í 1. mgr. er
bundinn þagnarskyldu með sama
hætti og þar greinir. Sá aðili sem
veitir upplýsingar skal áminna við-
takanda um þagnarskylduna.“ Brot
á 58. greininni varðar sektum eða
fangelsi allt að tveimur árum.
Fjármálaeftirlitið
tjáir sig ekki
FME Minnir á
þagnarskyldu.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Ólafur Ingi Jónsson, forvörður á
Listasafni Íslands, segir óumdeilt
að uppboðsfyrirtækið Bruun
Rasmussen hafi
haft vitneskju
um að verk
Svavars Guðna-
sonar sem boðið
var upp í fyrra-
dag hafi verið
falsað. Ólafur
var viðstaddur
uppboð á verk-
inu og segir um
augljósa fölsun
að ræða. Verkið
var slegið á 30 þúsund danskar
krónur. „Það er algjörlega óum-
deilt að fyrirtækið Bruun Rasm-
ussen seldi verkið, vitandi að það
væri falsað,“ segir Ólafur. Verkið
er annað tveggja sem sögð voru
eftir Svavar en gerð voru upptæk
af lögreglu skömmu áður en til
stóð að bjóða þau upp fyrir tveim-
ur árum þar sem grunur lék á
fölsun.
Rannsókn málsins dagaði uppi
m.a. vegna þess að engin sala fór
fram. Verkið fór því að nýju til
fyrri eiganda. „Uppboðshúsið hef-
ur allar upplýsingar um að verkið
sé falsað,“ segir Ólafur, sem seg-
ist hafa gert skýrslu um málið
fyrir dönsku lögregluna áður en
rannsókn málsins var hætt. Þeirri
skýrslu hafi hann ítrekað komið á
framfæri, þótt hann hafi ekki gert
það við uppboðshúsið sérstaklega.
„Það eina sem hægt er að gera
er að óska eftir því að málið verði
rannsakað að nýju. Að öðru leyti
ætla ég ekki að hafa frekari af-
skipti af þessu máli,“ segir Ólaf-
ur.
Segir uppboðshús
hafa vitað um fölsun
Gerði skýrslu um fölsun verkanna
Ólafur Ingi
Jónsson