Morgunblaðið - 08.12.2016, Side 14

Morgunblaðið - 08.12.2016, Side 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016 ÖFLUG LAUSN VIÐ HÁLSBÓLGU! Bólgueyðandi og verkjastillandi munnsogstafla við særindum í hálsi Nýtt www.apotekarinn.is - lægra verð Strefen 8,75 mg munnsogstöflur og Strefen Orange 8,75 mg Sukkerfri, munnsogstöflur. Innihalda flurbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga tímabundið úr særindum í hálsi hjá fullorðnum og börnum eldir en 12 ára. Sjúga skal eina munnsogstöflu rólega og láta leysast upp í munni á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, mest 5 töflur á sólahring. Ekki er ráðlagt að nota lyfið lengur en í 3 sólarhringa. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Ljósmynd/Bjarni Þorsteinsson Verðlaunahafar Ragna Sigurðar- dóttir og Marion Pauw með Ísnál- ina. Ragna þýddi bókina Konan í myrkrinu eftir Pauw. Díana Rós A. Rivera dianarosarivera@gmail.com Veröld gaf í sumar út vinsæl-ustu skáldsögu hollenskarithöfundarins MarionPauw, Konuna í myrkrinu, í íslenskri þýðingu Rögnu Sigurðar- dóttur, en bókin hlaut verðlaunin Ís- nálina á glæpasagnahátíðinni Ice- land Noir á dögunum fyrir bestu þýddu glæpasöguna á Íslandi árið 2016. Fyrir Konuna í myrkrinu, eða Daglicht eins og hún heitir á frum- málinu, fékk Marion Pauw verðlaun- in Gullnu snöruna í heimalandi sínu, en bókin hefur selst í yfir 200.000 eintökum í Evrópu. Gerð hefur verið mynd byggð á bókinni í Hollandi sem hefur hlotið fjölda verðlauna auk þess sem stórmynd eftir sögunni er í burðarliðnum Bandaríkjunum. Marion Pauw hikar ekki þegar hún er spurð að því hvort skrif séu ær hennar og kýr. „Jú, svo sannar- lega. Þannig hefur það alltaf verið. Ég vann áður í auglýsingabrans- anum og samdi mikið af auglýsinga- texta en fyrir 12 árum kom fyrsta skáldsagan mín út og eftir það varð ekki aftur snúið.“ Marion lýsir því að sköpunin gefi henni þá tilfinningu að hún hafi stjórn á hlutunum, tilfinningu sem sjaldan fæst í daglegu lífi. „Það er hvorki hægt að stjórna veðrinu né fólki, því sem það gerir eða segir eða upplifir, en rithöfundur hefur vald til þess að stjórna öllu og öllum.“ Hún segir skrifin afslappandi og að við þau komist hún nánast í nokk- urs konar dáleiðsluástand þar sem orðin streymi fram áreynslulaust og áður en hún viti af sér séu jafnvel nokkrar klukkustundir liðnar. Mikilvægast af öllu við skrifin segir hún að sé að setja sér engin mörk, takmarka sig ekki á nokkurn hátt. „Um leið þú ferð að vera of sjálfsgagnrýnin eða hafa áhyggjur af því að hvað öðru fólki finnst um text- ann stöðvast flæðið. Þetta er spurn- ing um að gefa sér frelsi til þess að skrifa allt sem kemur upp í hugann án þess að velta útkomunni fyrir sér. Þótt skáldsagan þín verði vinsæl þýðir það ekki endilega að þú sért á einhvern hátt betri eða færari en aðrir rithöfundar og að sama skapi ertu ekki verri en þeir á nokkurn hátt ef hún verður það ekki,“ segir hún og bætir við að vinsældir snúist fyrst og fremst um að vera á réttum stað á réttum tíma, með rétta titilinn. „Þetta er ekkert annað en spurning um heppni. Þú hefur ekki stjórn á ytri aðstæðum og ættir því ekki að eyða tíma í að hafa áhyggjur af þeim.“ Ekki hver heldur hvers vegna Konan í myrkrinu fjallar um lögfræðinginn Írisi og Ray, sem er ekki eins og fólk er flest og er lok- aður inni á stofnun fyrir hrottalegt morð á ungri konu og dóttur hennar. Leiðir þeirra liggja saman sem það hrindir af stað atburðarás sem gjör- breytir lífi þeirra. Marion segir að skáldsagan sé í raun frekar sálfræðitryllir en glæpa- saga. „Bækurnar mínar eru ekki um það hver framdi glæpinn heldur hvernig fólk komst á þann stað sem það er á í lífinu, hvað gerðist.“ Í bók- inni tala sögupersónur til skiptis, sem gefur lesendum innsýn í huga þeirra, og hefur Marion hlotið mikið lof fyrir það hversu vel henni tekst að lýsa hugarheimi Rays, sem er ein- hverfur. „Mér finnst gæta mikils misskilnings þegar kemur að ein- hverfu. Ég held að einhverft fólk upplifi sig oft ekki öruggt og finni því upp aðferðir sem hjálpa því að finna til öryggis, hvort sem það er með því að loka sig af frá umheiminn eða róa fram í gráðið. Lykillinn að því að hjálpa einhverfu fólki er að hjálpa því að upplifa sig öruggt með sjálft sig og svo smám saman í umheim- inum.“ Hún segir að sífellt sé reynt að steypa fólk í sama mót í samfélagi okkar, troða okkur öllum í sama hólf- ið, hvort sem við eigum heima þar eða ekki. „Þetta er eins og að reyna að troða hringlaga kubbi í gegnum ferkantað gat. Það er hreinlega ekki hægt.“ Huginn hvíldur Spurð hvort hún telji að fólk lesi almennt minna nú en fyrir áratug segir Marion að það sé ekki spurn- ing, nú til dags eyði fólk umtalsvert meiri tíma í að horfa á lítinn skjá en í að lesa. „Einbeiting fólks hefur minnkað svo mikið og áreitið er miklu meira en áður. Þetta er óheil- brigt. Íslendingar eru heppnir því að þeir búa að því að geta komist út í náttúruna með lítill fyrirhöfn, hún er allt um kring. Það er svo mikilvægt að komast út í náttúruna til að hvíla hugann, hann hreinlega ofhitnar í öllu upplýsingaflæðinu sem fylgir nútímanum,“ segir hún og heldur áfram: „Lestur er leið hugleiðslu og slökunar. Þegar fólk les er það inni í annarri sögu en sinni eigin, hluti af öðrum heimi, og athyglin er á einn hlut en ekki út og suður. Þar að auki víkkar lestur sjóndeildarhring fólks og heimssýn, uppfræðir það um hluti sem það vissi ekkert um. Ég veit ekkert betra en að lesa,“ segir Mar- ion Pauw að lokum. Að gefa sér frelsi til að skrifa Hollenski rithöfundurinn Marion Pauw hlaut á dögum verðlaunin Ísnálina fyrir bestu þýddu glæpa- söguna á Íslandi árið 2016. Hún skrifar til þess að upplifa það að hún hafi stjórn á hlutunum, tilfinn- ingu sem hún segist sjaldan finna í daglegu lífi. Metsöluhöfundur Marion Pauw starfaði við auglýsingagerð áður en hún sneri sér að skáldsagnaritun með góðum árangri. „Bækurnar mínar eru ekki um það hver framdi glæpinn heldur hvernig fólk komst á þann stað sem það er á í lífinu, hvað gerðist.“ Gunnar Þór Bjarnason, höf- undur stórvirkis- ins Stríðið mikla 1914-1918, segir frá bók sinni í fyrirlestrasal Nor- ræna hússins kl. 20 í kvöld, fimmtu- daginn 8. desem- ber. Gunnar fræðir gesti um þennan afdrifaríkasta atburð 20. aldar og áhrif hans á Íslendinga. Samhliða sýnir hann myndir sem prýða bókina og ræðir miðlun söguefnis. Aðdragandi fyrri heimsstyrjaldar- innar minnir í ýmsu á nútímann en eftir langt tímabil friðar og hagsæld- ar áttu margir bágt með að trúa því að stórstyrjöld gæti skollið á milli helstu menningarþjóða Evrópu. Norræna húsið Gunnar Þór Bjarnason Stríðið mikla Opnunarhóf verður haldið í endur- bættri og breyttri búð Rauða kross- ins í Mjódd kl. 17-19 í dag, fimmtu- daginn 8. desember. Margrét Arnardóttir mætir með harmonikkuna, veitingar verða í boði og búðin stútfull af ýmsum gersem- um. Auk fatnaðar á alla fjölskylduna fæst vefnaðarvara, tölur, prjónar, dúkar, bækur og sitthvað fleira. Hægt að gera góð kaup og styrkja gott mál- efni í leiðinni. Rauða kross búðin í Mjódd Blásið til opnunarhófs Góð kaup Hægt er að gera góð kaup og styrkja gott málefni í leiðinni. Bóklestur verður kl. 20.30 í kvöld á Kaffi Langbrók í Fljótshlíð. Óskar Magnússon les úr nýútkominni bók sinni, Verjand- anum, Sváfnir Sveinbjarnarson les úr bókinni Á meðan straum- arnir sungu og Magnús Halldórsson les eigið efni. Hjónabandið verður með lifandi tónlist, kaffi og vöfflur og notaleg stemning. Bóklestur á Kaffi Langbrók í kvöld Óskar Magnússon
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.