Morgunblaðið - 08.12.2016, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Fallegar
jólagjafir
Loðkragar, töskur, hanskar,
silkislæður, húfur, skart,
ponsjó, peysur, kjólar,
velúrgallar, bolir, buxur,
snyrtivörur, ilmir
og gjafakassar.
Verið
velkomin
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Sveitarfélagið Ölfus er með í kynning-
arferli nokkrar breytingar á aðal-
skipulagi, sem rekja má að mestu leyti
til aukinnar uppbyggingar í ferðaþjón-
ustu og fiskeldi. Þannig er fyrirhugað
að breyta lóðinni að Hafnarskeiði 65 í
hótel og afþreyingu fyrir ferðamenn,
reisa fiskeldisstöð á nýju iðnaðarsvæði
við Nesbraut, gera Raufarhólshelli að-
gengilegri fyrir ferðamenn og loks
stendur til að bora eftir neysluvatni
innan lands Reykja og Sogns.
Gunnsteinn Ómarsson bæjarstjóri
segist finna fyrir stórauknum áhuga á
uppbyggingu á ýmissi ferðatengdri
starfsemi í Ölfusi. Líkt og víðar á Suð-
urlandi hafi Þorlákshafnarbúar fundið
fyrir aukinni umferð erlendra ferða-
manna um bæinn. Þannig hafi verið
gríðarleg fjölgun gesta á tjaldsvæðinu
og í sundlaugina í sumar og rekur
Gunnsteinn þennan aukna straum
m.a. til lagningar Suðurstrandarveg-
ar, sem hafi verið mikil lyftistöng í
samgöngumálum. „Vonandi verður
áframhaldandi vöxtur í þessari grein
hér eins og víða annars staðar um
land,“ segir hann.
Lítið framboð á gistingu
Ýmis starfsemi hefur verið í Eims-
húsinu svonefnda við Hafnarskeið 65,
á hafnarsvæðinu, m.a. kolsýrufram-
leiðsla. Eigendur hússins hafa óskað
eftir því við sveitarfélagið að fá að gera
breytingar á lóðinni með því að koma
þar upp hóteli og tengdri starfsemi. Að
sögn Gunnsteins er í fyrsta áfanga
verið að tala um 14 herbergja hótel,
með möguleika á stækkun í framtíð-
inni.
Lítið framboð hefur verið á gistingu
fyrir ferðamenn sem vilja sækja Þor-
lákshöfn heim. Eitt gistiheimili hefur
verið starfandi og nýlega óskaði einn
íbúðareigandi heimildar til að hafa þar
Airbnb-gistingu. Þá hefur tjaldsvæðið
verið eftirsótt en að öðru leyti hefur
gisting verið af skornum skammti.
Eins og Gunnsteinn nefndi hér framar
þá er aukinn áhugi á uppbyggingu í
ferðaþjónustu á svæðinu. Bendir hann
þar m.a. á áform um 120 herbergja
hótel á Óseyrartanga, við hliðina á
veitingahúsinu Hafinu bláa. Eru þau
byggingaráform á lokastigi í skipu-
lagsferlinu.
Meira fiskeldi áformað og
fiskþurrkun Lýsis flutt til
Ölfus hefur auglýst breytingu á
aðalskipulaginu á svonefndum U-11
reit, þar sem grjótnáma var áður við
Nesbraut, sunnan við Þorlákshöfn.
Ætlunin er að breyta reitnum í iðnað-
arsvæði en fyrirtækið Tálkni hefur
sótt um leyfi fyrir fiskeldisstöð.
Það yrði enn ein viðbótin í fiskeldi á
þessu svæði því vestan Laxabrautar er
fyrirtækið Laxar ehf. að reisa seiða-
eldisstöð. Framkvæmdir á þeirri lóð
hófust sl. haust.
Einnig stendur til að flytja fisk-
þurrkunarstöð Lýsis hf. vestur fyrir
bæinn, á svæði sem var aðalskipulagt
sl. vor. Stöðin hefur verið á hafnar-
svæðinu, í seilingarfjarlægð frá íbúa-
byggð. Hafa íbúar einmitt kvartað
undan lyktarmengun frá þurrkuninni
en með flutningi segist Gunnsteinn
vonast til þess að sá vandi verði úr sög-
unni. Hann segir nýja staðsetningu
hafa verið valda með tilliti til ríkjandi
vindátta, einkum norðaustanáttar. Í
þeirri vindátt leggi lyktina þvert yfir
bæinn, þar sem Lýsi er nú til húsa.
Ásókn í Raufarhólshelli
Raufarhólshellir, í Skógarhlíðar-
brekkunni rétt við Þrengslaveginn, er
orðinn eftirsóttur áningarstaður
ferðamanna. Þar hafa landeigendur og
fjárfestar ákveðið að byggja upp að-
stöðu fyrir ferðamenn; bílaplan, mót-
tökuhús og snyrtingu. Af þeim sökum
þarf að gera breytingar á aðal-
skipulagi sveitarfélagsins. Að sögn
Gunnsteins er ætlunin að gera hellinn
aðgengilegri fyrir ferðamenn og bjóða
upp á skipulagðar ferðir þangað inn.
Með bættri aðstöðu er ætlunin að geta
tekið á móti allt að 50 þúsund gestum á
ári.
Til þessa hefur hellirinn staðið op-
inn, gestum og gangandi, og um-
gengnin verið upp og ofan. Kirkja sjö-
unda dags aðventista á landið en þar
hefur Hlíðardalsskóli verið til húsa og
síðar meðferðarheimilið Byrgið. Inn-
lendir fjárfestar hafa samið við aðvent-
ista um þessa uppbyggingu við hellinn.
Þörf fyrir meira vatn
Ein fyrirhuguð breyting á aðal-
skipulaginu nær til vatnsverndar-
svæðis innan lands Reykja og Sogns,
eins og áður segir. Þar er ætlunin að
bora eftir neysluvatni til að styrkja
vatnsveituna Berglindi og þjóna þann-
ig betur dreifbýlinu frá Eldhestum og
að Ingólfsfjalli.
Gunnsteinn segir það mikla upp-
byggingu hafa verið á svæðinu, eink-
um kringum Eldhesta, að þörf sé fyrir
meira vatn. Einnig mun sú hola nýtast
svonefndri Gljúfurárholtsbyggð, sem
tók að rísa fyrir hrunið 2008. Sveitarfé-
lagið tók það landsvæði nýverið yfir,
m.a. alla innviði eins og vatns- og frá-
veitu. Að sögn Gunnsteins mun ný
borhola styrkja frekari uppbyggingu
þarna í framtíðinni.
Uppgangur og fjölgun í Ölfusi
Sveitarfélagið Ölfus breytir aðalskipulagi vegna uppbyggingar í ferðaþjónustu og fiskeldi Ný
seiðaeldisstöð að rísa og annað fyrirtæki sækir um fiskeldisstöð Breytingar við Raufarhólshelli
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þorlákshöfn Sveitarfélagið Ölfus þarf að breyta aðalskipulagi vegna uppbyggingar í ferðaþjónustu og fiskeldi.
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Rúmlega 80 grunnskólakennarar á
höfuðborgarsvæðinu, sem sögðu
upp í kjaradeilu kennara fyrir 1.
desember, hafa ekki dregið upp-
sögn sína til baka í kjölfar þess að
samningar tókust á milli samninga-
nefndar grunnskólakennara og
sveitarfélaganna. Í Reykjanesbæ
sögðu um 40 grunnskólakennara
einnig upp, sem eru um 24% grunn-
skólakennara í öllu sveitarfélaginu.
Þar hafa engar uppsagnir verið
dregnar til baka.
Heimsækja kennara
Í vikunni munu bæjaryfirvöld í
Reykjanesbæ heimsækja alla sex
grunnskóla bæjarins og ræða við
kennara um hvernig best megi
haga vinnu við að bæta framkvæmd
vinnumats, ná sátt um starfsum-
hverfi kennara og létta álagi af
þeim. Þetta kemur fram á vefsíðu
Reykjanesbæjar.
Þeir átta kennarar við Réttar-
holtsskóla sem sögðu upp störfum
eftir að nýr kjarasamningur var
undirritaður hafa ekki dregið upp-
sagnir sínar til baka, að sögn skóla-
stjóra.
Atkvæðagreiðsla til mánudags
Grunnskólakennarar og Sam-
band íslenskra sveitarfélaga geta
nú kosið um nýjan kjarasamning.
Kjörstjórn hjá Kennarasambandinu
heldur utan um kosninguna, sem
fer fram á vefnum og geta grunn-
skólakennarar greitt atkvæði um
samninginn til klukkan 16 mánu-
daginn 12. desember.
Ekki dregið upp-
sagnir til baka
Óvissa um starfsemi skólanna
Úr skólastofu Á annað hundrað
kennara hafa sagt upp störfum.
Morgunblaðið/Eggert
„Það má segja að hér sé töluverður uppgangur og góð-
ærisbragur á ýmsu,“ segir Gunnsteinn Ómarsson
bæjarstjóri en á síðasta ári fjölgaði íbúum Ölfuss um
4% og komst sveitarfélagið í 22. sæti á lista þeirra
stærstu á landinu. Það ár varð meiri fjölgun í aðeins
einu öðru sveitarfélagi, Grindavík. Stefnir allt í svipaða
fjölgun í Ölfusi á þessu ári og reiknar Gunnsteinn með
að í fyrsta sinn fari íbúafjöldinn yfir 2.000 um komandi
áramót.
„Það eru ýmis jákvæð teikn á lofti. Fyrir rúmum
tveimur árum stóðu fjölmargar íbúðir auðar í Þorláks-
höfn, margar þeirra í eigu Íbúðalánasjóðs. Á síðasta ári og þessu fer
fjölgunin af stað og núna er orðinn hörgull á húsnæði, bæði á kaup- og
leigumarkaði. Við reiknum með frekari fólksfjölgun á allra næstu mán-
uðum og þá munu þær íbúðir fyllast sem enn eru á lausu eða eru þegar
seldar,“ segir Gunnsteinn.
Umsóknir hafa borist um byggingarlóðir en hann segir sveitarfélagið
hafa áhuga á að fá leigufélög inn á svæðið til að byggja fleiri leiguíbúðir,
skortur sé á smærra húsnæði.
Fara í fyrsta sinn yfir 2.000
ÍBÚUM FJÖLGAÐI UM 4% Í FYRRA OG STEFNIR Í SVIPAÐ Í ÁR
Gunnsteinn
Ómarsson