Morgunblaðið - 08.12.2016, Qupperneq 22
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016
MSÓKN
Þú finnur jólagjöfina
hjá okkur
Suðurlandsbraut 24 108 Reykjavík 554 6969
lur@lur.is www.lur.is
Hvíldarstólar og -sófar
í miklu úrvali
PILLOWISE
heilsukoddar fyrir alla
Glamour Thermoskönnur
KUBIKOFF
Ruggustólar
TRIPODE lampar
Sweet home hnífaparasett fyrir börn
JACOB stóll frá Calia Italia
li
Gæðarúm frá Belgíu
FRÁBÆRT ÚRVAL AF RÚMUM,
SÓFUM OG HVÍLDARSTÓLUM
LÁTTU ÞÉR
LÍÐA VEL
Opið
alla d
aga
fram
að jó
lum
Velkom
in í he
imsók
n!
Áttu
von
á ges
tum?
CALIA
svefns
ófi
NÝTT
Náttb
orð frá
Arte-M
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Hér er gamall draumur að ræt-
ast, sem ég hef átt síðan ég byrjaði
að vinna við golfvöllinn í Stykk-
ishólmi 14 ára gamall,“ segir Ágúst
Jensson, framkvæmdastjóri Golf-
klúbbs Akureyrar, en hann hefur
verið ráðinn aðstoðarvallarstjóri á
golfvellinum í St. Leon-Rot í
Þýskalandi, skammt frá Heid-
elberg.
Staða Ágústs hjá GA hefur verið
auglýst laus til umsóknar en hann
flytur til Þýskalands ásamt fjöl-
skyldu sinni á nýju ári og hefur
störf í febrúar næstkomandi.
„Við höldum jólin hérna á Ak-
ureyri og síðan förum við á fullt að
pakka niður,“ segir Ágúst en fá
fordæmi, ef nokkur, eru fyrir því
að Íslendingur fari utan í vallar-
stjórn á golfvelli erlendis en fjöl-
margir Íslendingar hafa starfað
tímabundið erlendis að loknu námu
í golfvallarfræðum og -umhirðu.
Meðal 60 umsækjenda
Ágúst segist hafa séð stöðuna
auglýsta og ákveðið í samráði við
fjölskylduna að sækja um. Síðan
hafi það komið skemmtilega á
óvart að hafa verið ráðinn en
Ágúst var meðal um 60 umsækj-
enda. Fjölmörg stórmót hafa verið
haldin á vellinum í St. Leon-Rot,
t.d. í Evrópumótaröð karla og
kvenna og Solheim Cup fór þar
fram árið 2015, sem er árleg liða-
keppni fremstu kvenkylfinga Evr-
ópu og Bandaríkjanna.
Á svæðinu eru tveir 18 holu
keppnisvellir, einn 9 holu, 5 holu
æfingavöllur, æfingasvæði með 150
básum og glæsileg inniaðstaða.
Þess má geta til fróðleiks að
sami eigandi, auðkýfingurinn Diet-
mar Hopp, er að golfvöllunum og
Íslendingaliðinu Rhein-Neckar Lö-
wen í þýska handboltanum, þar
sem Guðjón Valur Sigurðsson og
Alexander Petersson eru meðal
leikmanna. Stefán Rafn Sig-
urmannsson lék einnig með liðinu
þar til síðasta sumar og var fasta-
gestur á golfvellinum.
„Það er bara heiður fyrir mann
að hafa fengið starfið og fá að
vinna við bestu aðstæður allt árið
um kring. Þarna er allt til alls,“
segir Ágúst, sem ásamt fjölskyldu
sinni hefur farið utan til Þýska-
lands til að skoða aðstæður og leist
þeim mjög vel á. Ágúst og eig-
inkona hans, Dagbjört Víglunds-
dóttir, eiga tvær dætur, 6 og 10
ára, og er öll fjölskyldan komin á
kaf í golfíþróttina.
„Við sjáum einmitt fram á að
geta spilað mikið golf þarna úti. Í
þessum klúbbi fer fram gríðarlega
öflugt barna- og unglingastarf
þannig að dætur okkar munu njóta
góðs af dvölinni,“ segir hann.
Klúbburinn hefur boðist til að út-
vega Dagbjörtu atvinnu en einnig
kemur til greina að nota tækifærið
og fara í frekara nám, en Dagbjört
er viðskiptafræðingur að mennt.
„Á þessu svæði er fjöldi góðra há-
skóla þannig að möguleikarnir í
stöðunni eru margir, þetta skýrist
betur þegar við erum komin út.“
Við umsóknarferlið naut Ágúst
ráðgjafar og góðrar aðstoðar frá
Brynjari Eldon, golfkennara og
framkvæmdastjóra Golfsambands
Íslands, en hann hefur starfað
lengi í Þýskalandi og þekkir þar
vel til aðstæðna.
Byrjaði í Hólminum 14 ára
Ágúst hefur verið framkvæmda-
stjóri GA undanfarin þrjú ár. Þar
áður var hann vallarstjóri á
Korpuvelli fyrir Golfklúbb Reykja-
víkur en ferilinn byrjaði hann 14
ára gamall, árið 1991, sem starfs-
maður Víkurvallar hjá Golf-
klúbbnum Mostra í Stykkishólmi.
Ágúst ólst upp í Hólminum en fór í
framhaldsskóla í Reykjavík. Á
þeim árum, kringum 1996, bauðst
honum starf hjá GR, sem hann
þáði og árið 2002 var hann orðinn
vallarstjóri í Korpunni. Ágúst
lærði golfvallarumhirðu í Skot-
landi, starfaði í tæpt ár við hinn
fræga Gleneagles-golfvöll í Skot-
landi og vann sem sjálfboðaliði á
Ryder-Cup keppninni á þeim velli
árið 2014.
Spennandi verkefni
Hann segir forsvarsmenn GA
hafa sýnt því góðan skilning að
hann hafi sótt um starfið í Þýska-
landi. Fjölskyldan muni sakna Ak-
ureyrar, enda hafi henni liðið mjög
vel í bænum.
„Þó að mann hafi lengi dreymt
um að komast í svona starf þá var
það ekki endilega á dagskránni að
fara út akkúrat núna. En maður
ákvað að prófa að sækja um og átti
hreint ekki von á að það tækist
svona í fyrstu tilraun. Það var ekki
annað hægt en að grípa tækifærið.
Þetta er mjög spennandi verkefni
framundan, nú er bara að fara að
læra þýskuna,“ segir Ágúst að
endingu en ráðningarsamningur
hans við golfklúbbinn er til tveggja
ára, með möguleika á framleng-
ingu ef vel gengur.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Golffjölskylda Ágúst Jensson og Dagbjört Víglundsdóttir á Jaðarsvelli ásamt dætrum sínum, Rakel Dórótheu, 10
ára, og Arndísi, 6 ára. Öll eru þau á kafi í golfíþróttinni og hlakka til að flytjast til Þýskalands á nýju ári.
Gamall draumur vall-
arstjórans að rætast
Ráðinn í vallarstjórn á þekktum golfvelli í Þýskalandi
Ólafur Þór Ágústsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs-
ins Keilis, hefur í bráðum fjögur ár verið formaður
samtaka golfvallarstarfsmanna í Evrópu (FEGGA) og
var meðal fyrstu Íslendinga sem menntuðu sig er-
lendis í golfvallarumhirðu á sínum tíma, er hann nam í
Skotlandi. Ólafur starfaði einnig á Hameln-golfvell-
inum í Þýskalandi um hálfs árs skeið.
Ólafur segir ráðningu Ágústs til Þýskalands mikið
fagnaðarefni og sýni vel hve mikið Íslendingar séu
farnir að láta að sér kveða í golfheiminum, hvort sem
það séu góðir kylfingar eins og Ólafía Þórunn eða vall-
arstjórar. Þá eigi Íslendingar einnig fulltrúa í stjórn
Evrópska golfsambandsins, Hauk Örn Birgisson.
„Það er betur tekið eftir okkur en áður. Talsverður hópur manna hefur
menntað sig í golfvallarfræðum. Golf á Íslandi er í háum gæðaflokki,
golfvellirnir hafa tekið gífurlegum framförum og eru margir hverjir vel
sambærilegir við það sem gerist í Evrópu. Það eina sem við getum aldrei
verið örugg með að bjóða upp á eru stuttbuxurnar,“ segir Ólafur.
Fleiri dyr opnast Íslendingum
FORMAÐUR SAMTAKA GOLFVALLARSTARFSMANNA Í EVRÓPU
Ólafur Þór
Ágústsson