Morgunblaðið - 08.12.2016, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016
PRJÓNABÓKIN LOPI 36 ER KOMIN
TILBOÐ Á LOPA GILDA TIL 9. DESEMBER
- Tilvalið gjafakort
Opið mánudaga - miðvikudaga frá 09:00 - 18:00, fimmtudaga 09:00 - 18:30, föstudaga 09:00 - 19:00 og laugardaga 10:00 - 16:00, lokað sunnudaga www.FJARDARKAUP.is
20%
afsláttur
af Léttlopa
20%
afsláttur
af Álafosslopa
10%
afsláttur
af Lopabók nr.36
50%
afsláttur
af öllum eldri lopabókum
Prjónabókin Lopi 36 er
komin í verslunina. Í bókinni
eru 19 nýjar og ferskar
uppskriftir á alla fjölskylduna.
10 heppnir viðskiptavinir fá
bókina að gjöf. Peysurnar eru
hannaðar af Védísi Jónsdóttur,
Bergrósu Kjartansdóttur og
G. Dagbjörtu Guðmundsdóttur.
Sjón er sögu ríkari!
Heitt á könnunni.
Snertilausar greiðslur
ÁLAFOSSLOPI
verð áður 498 kr./dk.
LÉTTLOPI
verð áður 295 kr./dk.
398
kr./dokkan
236
kr./dokkan
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Það hafa ekki allir kjark til að elta
drauma sína, segja upp stöðugri
vinnu og skella sér í nám á sextugs-
aldri og þar að auki nám þar sem
meðalaldurinn er um 25 ár. En
kjarkinn hafði Kristján Þór Ingvars-
son, 51 árs, sem stundar nú nám í
kvikmyndatækni sem Tækniskólinn
býður upp á í samstarfi við Stúdíó
Sýrland.
„Ég finn engan aldursmun á mér
og hinum í bekknum en ég sé stund-
um öfundarglampa í augum jafn-
aldra minna, að ég skuli hafa látið
vaða og fylgt draumnum,“ segir
Kristján kankvís.
„Auðvitað tekur þetta á, ég er
tekjulaus á meðan ég er í námi en þá
er bara að láta það ganga. Ég vil
frekar taka á því svoleiðis en að vera
í einhverju starfi sem ég hef ekki
gaman af. Ég er menntaður raf-
eindavirki en hef alltaf unnið við
tölvur síðan ég útskrifaðist á níunda
áratugnum. Ég var búinn að fá nóg
af tölvuvinnunni og fannst hún orðin
leiðinleg. Ég fór að velta fyrir mér
hvað ég ætti að gera og sá þá kvik-
myndatækninámið auglýst og hugs-
aði með mér að nú væri tími til kom-
inn að fara aftur í skóla. Ég sé ekki
eftir því, þetta nám er búið að gefa
mér annað líf, það er allt orðið svo
gaman aftur.“
Kristján hefur alltaf haft áhuga á
kvikmyndatöku og dundað sér við
ýmislegt henni tengt í gegnum tíð-
ina. „Minn staður er settið þegar
verið er að taka upp, ég er búinn að
finna minn flöt þar. Ég sé fullt af
starfstækifærum eftir námið og veit
að það opnar fullt af möguleikum.
Kvikmyndageirinn á Íslandi er orð-
inn töluvert stór og með þetta nám í
farteskinu er hægt að hoppa inn í
flest verkefni og þá er ég líka að tala
um á sjónvarpsstöðvum.“
Nemendur verða að taka þátt
Kvikmyndatækninámið skiptist í
verklegt og bóklegt og hafa nem-
endur fengist við ýmislegt, m.a tóku
þeir upp útskriftaverkefni listnema í
samvinnu við Listaháskóla Íslands.
Það var gert með nemendum í hljóð-
tækninámi sem einnig er boðið upp á
hjá Sýrlandi og Tækniskólanum.
Kristján segir að helsti kosturinn
við námið sé að það byggist á því að
nemendur taki þátt og sæki sér
verkefni, láti ekki bara mata sig, og
þá hafi þeir aðgang að mjög góðum
búnaði í skólanum.
Kvikmyndatækninámið er fjórar
annir í einni lotu og telur bekkur
Kristjáns tíu manns. Núna vinnur
bekkurinn við að taka upp tónleika
sem nemendur í hljóðtæknináminu
standa fyrir. Einnig vinna þeir að út-
skriftarverkefnunum sínum, en síð-
asta önnin, sem er eftir áramót, fer í
fínvinnu á því. Kristján vinnur að
stuttmynd sem fjallar um konur sem
búa í sama stigagangi, önnur er alin
upp í strangri kristinni trú og hin er
stoltur múslimi og starfar sem
þyrluflugmaður. Á milli þeirra
myndast neisti og þær drýgja
stærstu synd beggja trúarbragð-
anna á einni kvöldstund.
Reddaði þyrlu auðveldlega
Kennarar í náminu eru allir úr
bransanum og vinna nemendur loka-
verkefnið með aðstoð þeirra. „Kenn-
arinn í framleiðsluhlutanum greip
um höfuð sér þegar hann sá að ég er
með þyrlu í stuttmyndinni og spurði
hvernig ég ætlaði að fara að því að fá
eina slíka, en ég er búinn að fá lán-
aða þyrlu,“ segir Kristján og hlær.
Hann byrjar tökur í janúar en
bekkurinn hjálpast allur að við verk-
efnin og er Kristján nú þegar búinn
að vera á tökuvélinni hjá tveimur
öðrum.
Spurður hvað taki við að loknu
námi segist hann stefna að því að
vinna í kvikmyndabransanum. „Það
er ekki spurning að ég ætla inn í
þennan geira og að fara með stutt-
myndina mína eitthvað lengra. Ég á
ekki eins mikinn tíma eftir í þessu
jarðlífi og hinir í bekknum svo það er
eins gott að gera þetta almennilega
strax,“ segir Kristján kátur.
„Það er allt orðið svo gaman aftur“
Kristján Þór Ingvarsson stundar nám í kvikmyndatækni hjá Stúdíó Sýrlandi og Tækniskólanum
Lét gamlan draum rætast þegar honum fannst orðið leiðinlegt í vinnunni „Minn staður er settið“
Morgunblaðið/Golli
Í skólanum Kristján Þór Ingvarsson lét gamlan draum rætast og nemur nú kvikmyndatækni hjá Stúdíó Sýrlandi og
Tækniskólanum. Hann stefnir á að vinna við fagið eftir útskrift í vor, en námið er fjórar annir sem ná yfir rúmt ár.