Morgunblaðið - 08.12.2016, Side 38

Morgunblaðið - 08.12.2016, Side 38
38 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016 landsins að fimm undanskildum á árunum 1917 til 1929, að því er fram kemur í viðtali Valtýs Stefánssonar ritstjóra í Morgunblaðinu í lok jan- úar 1939. Fjórar þeirra gat hann ekki vísiterað vegna ófærðar eða sóttkvíar, þegar hann var þar á ferð, og á fimmta staðnum, í Möðrudal á Fjöllum, var engin kirkja þegar til átti að taka. Hann prédikaði í 220 kirkjum. Jón Helgason segir í viðtalinu að heimsóknirnar hafi verið fyrirtaks skemmtilegar. „Ekki get ég hugsað mér elskulegri viðtökur en þær, sem ég fékk um land allt, jafnt á prest- Jón Helgason skoðaði nær allar kirkjur landsins í vísitasíuferðum sínum fyrstu 13 árin í embætti bisk- ups. Allar ferðirnar fór hann á hest- um, nema hluta Árnessýslu. Hann prédikaði sjálfur við messur sem var nýlunda og teiknaði að auki myndir af kirkjunum í skissubækur sínar. Jón hélt í sína fyrstu vísitasíuferð sumarið 1917, fljótlega eftir að hann var vígður í embætti. Fyrir valinu varð Barðastrandarprófastsdæmi en það hafði þá ekki fengið heimsókn neins biskups í 127 ár. Í skrifum hans um ferðina kemur þó einnig fram að hann var forvitinn um Barðaströndina vegna lýsinga föður hans sem þar var alinn upp, á nátt- úrufegurð strandarinnar. Fyrsta kirkjan sem hann vísiteraði var Bíldudalskirkja. Biskup vísiteraði allar kirkjur setrum sem annars staðar. Áður en ég lagði upp í ferðir þessar hélt ég, að ég vissi, hvað íslenzk gestrisni væri. En ég vissi það ekki til fulls fyrr en ég reyndi það sjálfur, hve fal- legur þáttur hún er í íslenzku þjóð- lífi.“ Heppinn með veður Biskup notaði tímann í vísitas- íuferðunum vel. Það má sjá á skissu- bókum hans sem Þjóðminjasafnið varðveitir. Þar eru teikningar af kirkjunum en einnig fleiri myndir, alls á fjórða hundrað myndir frá ár- unum 1890 til 1934. „Það tókst svo vel vegna þess m.a. hve framúrskarandi heppinn með veður ég var alltaf á vísitasíuferðum mínum,“ sagði Jón í viðtalinu í Morgunblaðinu þegar hann sagði frá kirkjuteikningunum. Þessi ummæli urðu ritstjóranum umhugsunarefni þegar hann gekk af fundi Jóns, skömmu eftir að hann lét af embætti: „Sá maður, sem lítur svo björtum augum á tilveruna, hann á áreiðanlega ótæmandi sólskin í sjálf- um sér,“ skrifaði Valtýr og velti því fyrir sér hvort þetta væri skýringin á þreki Jóns og óvenjulega umfangs- miklu ævistarfi. Þjóðminjasafn/Jón Helgason Melstaður Jón Helgason vísiteraði allar sóknir landsins sem fært var til á fyrstu þrettán árum í embætti. Hann braut hefðina og prédikaði sjálfur. Hér er mynd sem hann teiknaði af kirkju og prestbústað á Melstað í Miðfirði. Vísiteraði allar sóknir landsins á 13 árum  Biskupinn fór snemma á fætur og teiknaði myndir af öllum kirkjunum Þótt Jón Helgason biskup hafi feng- ist töluvert við myndlist og ritstörf í tómstundum, leit hann á þá iðju sem hvíld frá annasömum störfum við kirkjustjórnina. Á annað hundr- að Reykjavíkurmyndir hans sem Árbæjarsafn varðveitir eru merk heimild um Reykjavík hans tíma og raunar fyrir hans minni því margar þeirra eru gerðar samkvæmt eldri heimildum og voru órjúfanalegur hluti upplýsingaöflunar hans og miðlunar um sögu Reykjavíkur. Jón kom frá kristnu heimili og virðist aldrei hafa komið neitt ann- að til greina en að læra til prests. Segir hann frá því í óbirtum ævi- minningum sínum að þegar hann var kominn til náms í Kaupmanna- höfn hafi það tekið hann nokkurn tíma að kynnast öðrum bók- menntum en guðfræðilegum og ekki hafi verið vanþörf á því vegna þess hversu lélegan grundvöll hann hafi fengið í skólanum heima. Hann var hneigður fyrir dráttlist frá æsku og fyrstu myndirnar sem til eru eftir hann eru frá námsárum í Lærða skólanum. Fljótlega eftir að hann kom til Kaupmannahafnar fór hann að sækja sýningar og var iðinn við það. Þá keypti hann sér tilsögn hjá norskum málara í Höfn. Hann tekur fram í æviminning- unum að hann hafi aldrei dreymt neina listamannsdrauma og sagði að þó líta ætti á myndir hans sem viðvaningsverk, hefði þetta sýsl gefið honum fjölda ánægjustunda á ævinni. Sagnfræðileg heimild Inga Jónsdóttir, safnstjóri Lista- safns Árnesinga og barna- barnabarn Jóns biskups, bendir á að Jón hafi fyrst og fremst verið að mála til að svala sagnfræðilegum áhuga og miðla þekkingunni til komandi kynslóða. Áherslan hafi alltaf verið á guðfræðina. Hann hafi haft hæfileika í myndlistinni og ef hann hefði einbeitt sér að henni kynni hann að hafa orðið brautryðj- andi á því sviði hér á landi. Spurð um gildi verka biskupsins segir Inga að Reykjavíkurmyndir hans og kirkjuteikningar séu fyrst og fremst sagnfræðileg heimild. „Margar myndir hans eru fallegar en þær eru ekki tímamótaverk í myndlist. Hann er samt aðallega að uppfræða samtímamennina, eins og í guðfræðinni, þó tjáningarmátinn sé blýantur og pensill,“ segir Inga. Eftir að Jón lét af biskupsemb- ætti skrifaði hann margar bækur, aðallega um sagnfræðileg efni. Fyrirferðarmestar eru bækur hans um sögu Reykjavíkur og Reykvík- inga. Ekki má gleyma ævisögu Tómasar Sæmundssonar Fjöln- ismanns, afa hans. Mun það enn vera eina heillega ævisaga Tóm- asar. Leit á myndlistina sem hvíld Árbæjarsafn/Jón Helgason Lækjargata Reykjavíkurmyndir Jóns Helgasonar eru ómetanlegar heimildir um Reykjavík fyrri tíma. Hann málaði myndir úr bænum eins og hann var á uppvaxtarárum hans og einnig frá eldri tíma samkvæmt öðrum heimildum. Þessi mynd á að sýna Lækjargötu árið 1874, þegar höfundurinn var 8 ára. LISTHÚSINU Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050 Opið 11-18, lau 11-16. Fallegar og vandaðar jólagjafir Púðar kr. 11.500 Vínyl diskamottur kr. 2.800
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.