Morgunblaðið - 08.12.2016, Blaðsíða 40
40 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Arkitektar geta haft mikil áhrif á
samfélag sitt og það gerði Rögnvald-
ur Ólafsson svo sannarlega þótt
hans nyti ekki lengi við. Hann nam
húsagerðarlist fyrstur Íslendinga og
var að því leyti brautryðjandi. Hann-
aði fjölda húsa, svo sem opinberra
bygginga á þeim tíma, þegar nýtt Ís-
land var að mótast og framkvæmda-
hugur með þjóðinni,“ segir Björn G.
Björnsson leikmyndahönnuður.
Á dögunum kom út hjá Hinu ís-
lenska bókmenntafélagi bók Björns
um Rögnvald Ólafsson. Fyrsti arki-
tektinn – Rögnvaldur Ólafsson og
verk hans heitir bókin sem er 240
blaðsíður með um 500 ljósmyndum,
sem Björn hefur flestar tekið sjálf-
ur. Verk þetta er í anda margs þess
sem Björn hefur starfað að í áranna
rás, sem hönnuður sýninga, höf-
undur bóka um söguleg efni og um-
sjónarmaður sjónvarpsþátta. Rit
Björns er ekki aðeins eiguleg
myndabók heldur nýtt og mikilvægt
framlag til þekkingar á sögu ís-
lenskrar byggingarlistar á 20. öld.
Nafnið var víða
en söguna vantaði
Rögnvaldur Ólafsson var fæddur
vestur við Dýrafjörð árið 1874. Ung-
ur fékk hann áhuga á hönnun og
húsum og hélt því til Danmerkur til
náms í arkitektúr. Þaðan sneri hann
heimastjórnarárið 1904 og varð
fyrsti húsameistari ríkisins, eins og
það heitir nú. Á árunum sem fóru í
hönd kom Rögnvaldur að hönnun
alls um 150 húsa, það er 30 kirkna,
70 barnaskóla og um 50 annarra
húsa. Þessar byggingar eru í öllum
landsfjórðungum og þekktastar
þeirra eru sennilega Húsavík-
urkirkja, Vífilsstaðaspítali, gamla
pósthúsið í Kvosinni og Staðastaður,
Sóleyjargata 1, þar sem í dag eru
skrifstofur forseta Íslands. Einnig
má nefna hús bændaskólanna á
Hvanneyri og Hólum í Hjaltadal.
„Nafn Rögnvaldar birtist víða, en
söguna vantaði,“ segir Björn sem á
árunum 1987-91 vann 60 stutta sjón-
varpsþætti fyrir Stöð 2 sem hétu
Áfangar og fjölluðu um sögustaði,
kirkjur og menningarminjar. „Í
grúski viðvíkjandi þáttunum sá ég
að Rögnvaldur Ólafsson hefði teikn-
að þetta og hitt húsið, en sáralítið
fannst þó skrifað um þennan mann
sem þó svo sannarlega markaði
spor. Fyrir vikið varð Rögnvaldur í
leyndardómi sínum svolítið spenn-
andi. Árið 1995 fór ég víða um landið
og aflaði efnis í heimildamynd um
arkitektinn og verk hans sem sýnd
var í sjónvarpinu 1996. Þá lá orðið
fyrir talsvert af heimildum og alltaf
er eitthvað að bætast við. Þegar ég
skoðaði þetta allt í samhengi síðar sá
ég að þarna væri komið efni í bókina
sem nú er komin út, en það vantaði
myndir af húsunum.“
Kirkjur sem eiga sér systur
Í bókinni eru alls um 600 myndir
og teikningar. Sjálfur fór Björn um
landið og tók nýjar myndir af Rögn-
valdarhúsum sem eru í flestum
landsfjórðungum. Flest þeirra
standa enn. „Dagsverkið var ótrú-
lega drjúgt, en Rögnvaldur var líka
á alveg réttum tíma. Heimastjórn-
inni fylgdi framfarahugur svo
byggja þurfi skóla, sjúkrahús,
kirkjur, prestssetur og svo fram-
Reykjavík Rögnvaldarhús eru meðal annars við Tjarnargötu í Reykjavík, það er hús númer 22 sem er fjórða frá hægri og númer 18 fjórða frá vinstri. Húsin í Fjörunni í Innbænum á Akureyri eru fyrirmyn
Dagsverkið
var drjúgt
Björn G. Björnsson með bók um fyrsta
íslenska arkitektinn Rögnvaldur Ólafsson
hannaði 150 hús á heimastjórnarárunum
Framfaraskeiði lýst í veglegri bók
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skásetjari Björn G. Björnsson er höfundur bókarinnar um arkitektinn, sem m.a. teiknaði Hafnarfjarðarkirkju
Bók Veglegt rit og afar fróðlegt.
Söguhetjan Rögnvaldur Ólafsson
var fæddur 1874 og lést 1916.
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís
Bez
t á k
alkúninn