Morgunblaðið - 08.12.2016, Síða 50
50 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016
Þeir sem brjóta lögin
eru í daglegu tali kall-
aðir lögbrjótar. En
hvað eru slíkir aðilar
kallaðir ef þeir halda
áfram á sömu braut og
þrjóskast við að fara að
lögum? Ég ætla að
eftirláta lesendum að
finna tilhlýðilegt orð yf-
ir slíka aðila en það orð-
færi sem mér dettur
fyrst í hug í þessu sambandi er ekki
talið birtingarhæft af Morg-
unblaðinu. Fyrir nokkru tóku stjórn-
endur Hafnarfjarðarbæjar þá
ákvörðun að íþyngja rekstraraðilum í
bænum sem hafa gáma á lóðum sín-
um með því að leggja sérstakt gjald á
þá. Gjald þetta var ákveðið krónur
31.779,- per gám sem sundurliðast
þannig að leyfisveitingargjald er
11.377,- að viðbættum tveimur
klukkustundum í vinnu við að telja
hvern gám á 10.201,- per klukku-
stund eða krónur 20.402,- í talning-
argjald á hvern gám. Það tekur hafn-
firskan embættismann sem sagt
tvær klukkustundir að telja upp að
einum. Einhverjir gætu sennilega
sætt sig við svo arfaslök afköst en ég
fullyrði að ef viðkomandi teljari væri
í vinnu hjá öðrum en opinberum aðila
þá væri þó a.m.k. gerð krafa um að
talið væri rétt á þessum hraða.
Í því tilviki sem snýr að mér þá var
það þó ekki raunin. Gerð var krafa
um greiðslu upp á krónur 476.685,-
vegna útgáfu leyfis og talningar á 13
gámum. Ætla má að
séu menn sérlega tak-
markaðir þá taki þetta
u.þ.b. eina klukkustund
með ferðum til og frá
bæjarskrifstofum. En
það er kannski ekki
undarlegt að hæfni
þessara aðila sé ekki
meiri en raun ber vitni í
ljósi nýlegrar ráðningar
hafnarstjóra hjá bæn-
um. Í stað þess að ráða
aðila í starf hafnar-
stjóra sem hefði mennt-
un og reynslu af skiparekstri var ráð-
inn bakari í starfið.
Tekjustofnar sveitarfélaga eru
ákveðnir í lögum nr. 4/1995 og þar er
tekið fram að þeir séu fast-
eignaskattur, útsvar og framlög úr
jöfnunarsjóði. Auk þess geta sveitar-
félög haft tekjur af eignum sínum og
eigin atvinnurekstri eins og t.d. hol-
ræsagjaldi, lóðaleigu, leyfisgjöldum
o.s.frv. Sveitarfélögum er óheimilt að
lögum að afla tekna úr hendi bæj-
arbúa eða rekstraraðila í bænum
með öðrum hætti. Hafnarfjarðarbær
ber fyrir sig mannvirkjalög frá árinu
2010 þegar umrætt gámagjald er
lagt á rekstraraðila í bænum. Sam-
kvæmt þessum sömu lögum er tekið
skýrt fram að gjöld samkvæmt þess-
um lögum skuli byggjast á rekstr-
aráætlun og séu þau rökstudd. Í
sömu lögum segir að gjaldið megi
ekki vera hærra en kostnaður við að
veita umrædda þjónustu. Þessu
skauta umræddir embættismenn létt
fram hjá, staðráðnir í að halda sínu
striki og brjóta lögin, já og það jafn-
vel þótt þeim hafi verið bent á ágall-
ana við gjaldtökuna.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að
fá umrædda embættismenn til að
láta af brotastarfsemi sinni og feta
veg réttvísinnar þá hafa þeir ekki
sýnt nokkurn vilja til að láta af ein-
beittum brotavilja sínum. Það verður
því ekki hjá því komist að fá úr því
skorið hvort bæjarfélaginu sé stjórn-
að af lögbrjótum. Sé svo er rekstr-
araðilum ráðlegt að forðast að setja
starfsemi sína niður innan bæj-
arfélagsins. Varðandi bakarann sem
ráðinn var í stöðu hafnarstjóra skipt-
ir kannski máli að hann er hápólitísk-
ur og var áður bæjarstjóri í Hafn-
arfirði. Þá skiptir líka kannski minna
máli hvað menn kunna eða geta?
Ef embættismannaelítan í bænum
er öll valin með það að leiðarljósi að
hafa „réttar“ skoðanir burtséð frá
því hvaða hæfileika þessir aðilar hafa
til að bera þá er tæplega hægt að bú-
ast við því að lestrarkunnátta þeirra
sé á það háu plani að hún gagnist
þeim til að lesa sér til um þau laga-
ákvæði sem þeir vísa þrátt fyrir allt í.
Er Hafnarfjarðarbæ
stjórnað af lögbrjótum?
Eftir Örn
Gunnlaugsson » Varðandi bakarann
sem ráðinn var í
stöðu hafnarstjóra
skiptir kannski máli að
hann er hápólitískur og
var áður bæjarstjóri í
Hafnarfirði.
Örn Gunnlaugsson
Höfundur rekur fyrirtæki
í Hafnarfirði.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is
Mikil spenna í Gullsmáranum
Spilað var á 10 borðum í Gull-
smára mánudaginn 5. desember.
Úrslit í N/S:
Viðar Valdimarss. - Óskar Ólason 214
Guðlaugur Nielsen - Óskar Karlsson 189
Guðrún Hinriksd. - Haukur Hanness. 185
Þórður Jörundss. -
Jörundur Þórðarson 175
A/V
Gunnar Alexanderss. - Elís Helgason 1 95
Guðbjörg Gíslad. -
Sigurður Sigurðsson 179
Hólmfríður Jónsd.-
Magnús Marteinsson 177
Sigurður Gíslason - Reynir Bjarnason 174
Ragnh. Gunnarsd. - Sveinn Sigurjónss.
174
Þetta var þriðji spiladagurinn á
minningarmóti Guðmundar Páls-
sonar. Staða efstu para að loknum
þremur spiladögum:
Sigurður Njálsson - Pétur Jónsson 588
Gunnar Alexanderss.- Elís Helgason 586
Jónína Pálsd. - Þorleifur Þórarinsson 545
Sigurður Gíslason - Reynir Bjarnason 543
Þrettán borð 1. des.
hjá FEBR
Fimmtudaginn 1. desember var
spilað á 13 borðum hjá bridsdeild
Félags eldri borgara í Reykjavík.
Efstu pör í N/S
Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 399
Jón Þ. Karlsson – Sturla Snæbjörnss. 361
Erla Sigurjónsd. – Jóhann Benediktss.
358
Tómas Sigurjss. –
Jóhannes Guðmannss. 343
A/V
Friðrik Jónsson – Björn Svavarsson 376
Margr. Gunnarsd. –
Vigdís Hallgrímsd. 361
Guðl. Bessason – Trausti Friðfinnss. 346
Björn Arnarson – Nick Barshay 339
Fimmtíu spilarar hjá FEBR
sl. mánudag
Mánudaginn 5. desember mættu 25 pör
til leiks hjá bridsdeild Félags eldri borg-
ara í Reykjavík.
Efstu pör í N/S
Björn Árnason – Auðunn R. Guðmss. 346
Guðl. Bessason – Guðm. Sigursteinss. 321
Hrafnh. Skúlad. – Guðm. Jóhannsson 319
Sigurður Tómasson –
Guðjón Eyjólfss. 309
A/V
Jón Þ. Karlsson – Sturla Snæbjörnss. 365
Bjarni Guðnason – Guðm. Steinbach 358
Nick Barshay – Gestur Gestsson 324
Skafti Ottesen –
Sigurður Emil Ólafsson 323
Oddur og Sigurjón langefstir
á Suðurnesjum
Oddur Hannesson og Sigurjón Ingi-
björnsson eru langefstir í þriggja kvölda
Butler-jólatvímenningi sem hófst sl. mið-
vikudagskvöld.
Þeir skoruðu 38 impa en Gunnlaugur
Sævarsson og Hafsteinn Ögmundsson
skoruðu 9 og Grethe Iversen og Ísleifur
Gíslason 4. Aðrir náðu ekki miðjungi.
Önnur umferðin verður spiluð nk. mið-
vikudagskvöld í félagsheimilinu kl. 19.
Spilarar sem ekki gátu mætt síðast vel-
komnir.
Hlíðarsmára 6, 201 Kópavogi – S. 564 6464 – fasthof.is
að farsælum
viðskiptum
Elsa Alexandersdóttir
Aðstoðarmaður
fasteignasala
Evert Guðmundsson
Nemi til löggildingar
fasteignasala
Guðmundur Hoffmann
Steinþórsson
lögg. fasteignasali
Laugavegi 77, 101 Reykjavík - Sími: 551-3033
Erum flutt að
Laugavegi 77
RÝMINGARSALAN
í fullum gangi að Laugavegi 7
Flottir í fötum
LÁGMÚLA 8
SÍMI 530 2800
Jóla
dagar
25
ÁR
HJÁ
20%
afsláttur
32“ kr. 64.900.- / 40“ kr. 89.900.-
/ 49“ kr. 119.900,- / 55“ kr. 149.900.-
K5505
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar
alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli
starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem
einnig eru sendar á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í
kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að við-
komandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda
og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn.