Morgunblaðið - 08.12.2016, Qupperneq 53
dreif um Dakóta-ríkin. Þar á meðal
Standing Rock sem var stofnað árið
1873 og er það fimmta stærsta í
landinu. Þar búa nú 17.000 manns,
þar af 6.500 indjánar. Einn frægasti
indjáni Norður-Ameríku, Sitting
Bull, var frá þessum slóðum. Hann
barðist ötullega fyrir indjána og var
orðinn goðsögn langt fyrir ótíma-
bæran dauða sinn. Hann var myrtur
í Standing Rock 15. desember árið
1890. Upprunalega gröf hans er að
finna í bænum Fort Yates sem er ör-
skot frá olíulögninni. Nú hvílir hann
við Mobridge í Suður-Dakóta, fæð-
ingarbæ sínum og einni af náttúru-
perlum Norður-Ameríku.
Þúsundir mótmælenda hafa safn-
ast til Standing Rock. Mest áberandi
eru innfæddir sem koma af ótal ætt-
bálkum víðs vegar frá amerísku
heimsálfunum. Leynt og ljóst vilja
þeir einnig vekja athygli á ástandi
innfæddra.
Í búðum mótmælenda er and-
rúmsloftið sérstakt. Það ríkir
spenna í loftinu en jafnframt von.
Við upphaf mótmælanna í apríl
tendruðu innfæddir bál í hjarta búð-
anna, heilagan eld sem mun loga á
meðan baráttan lifir. Umhverfis eld-
inn safnast fólk hvern dag og hverja
nótt, syngur, biður, dansar og kyrjar
forna söngva.
Mótmælendur mega ekki fara í
eiginleg mótmæli fyrr en eftir þjálf-
un. Fólki er kennt hvernig það skuli
bera sig að, enda ekki vanþörf á, því
óeirðalögregla tekur á móti hinum
friðsömu mótmælendum með bryn-
vörðum bílum, táragasi, vatnsfall-
byssum og skýtur á þá með bauna-
pokum. Eitt skæðasta vopnið er
vítisvél nokkur sem gefur frá sér
þvílík óhljóð að mönnum fallast
hendur. Fyrirtækin sjálf hafa svo
ráðið til sín einkaöryggisgæslu sem
er enn harðsvíraðri og vílar ekki fyr-
ir sér að beita hundum gegn mót-
mælendum.
Vilja höfða mál gegn ríkinu
Kona ein af ætt Lakótaætt kallar
eftir sameiningu ættbálka Ameríku
og vill höfða mál til höfuðs banda-
ríska ríkinu. Landið sé eign indjána
og skila ætti stórum hluta þess til
baka. Helför indjána sem staðið hafi
í 500 ár sé nógu langt gengin og mál
að linni. Áætlun hennar gengur laus-
lega út á að herja á Washington með
þeirra eigin vopnum; lögum, reglu-
gerðum og skriffinnsku. Fyrir utan
náttúruvá og helgispjöll þá er merg-
ur málsins sá að innfæddir eru orðn-
ir langþreyttir á yfirgangi, græðgi
og hroka bandarísku alríkisstjórn-
arinnar.
Sárast svíður indjánum að hönn-
uður leiðarinnar sjálfrar er Banda-
ríkjastjórn, eða svokallaðir verk-
fræðingar ríkisins sem falla undir
hatt hersins.
Eftir atburði seinustu daga hafa
verkfræðingarnir þó loksins dregið í
land og segjast ætla að finna nýja
leið til að mæta kröfum mótmælenda
og hafa lagt blátt bann við að farið
verði undir Missouri-ána. Þessu
fagna indjánar og líta á sem vissan
sigur. Orðunum er þó tekið með fyr-
irvara í búðum mótmælenda enda
ekki í fyrsta sinn sem lögnin er sett á
ís og alls ekki í fyrsta sinn sem
Washington lofar Indjánum griðum.
Fyrirtækin sem standa að baki olíu-
leiðslunni hafa sagst ætla að hundsa
tilmælin og verðandi forseti hefur
lýst því yfir að hann vilji sjá leiðsl-
una kláraða. Talið er að verktakar
kjósi frekar að borga sektir en fara
að fyrirmælum. Orðrómur gengur
um búðirnar að í raun sé lagningu
leiðslunnar lokið og að orðagljáfrið
sé fyrirsláttur einn.
Tíminn mun leiða í ljós hvernig
fer. Í millitíðinni fagna Indjánar
áfangasigri og standa fast á sínu í
hörkufrostum Norður-Dakóta með
frið og von að leiðarljósi.
Höfundur er fornleifafræðingur.
Ljósmynd/Rose Ganley
Ungviði Börn mótmælenda í búðunum leika sér með legókubba.
UMRÆÐAN 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016
GEFÐU GÓÐA GJÖF UM JÓLIN
Oakley skíðagleraugu,
margar gerðir,
frá kr. 7.800
Oakley hjálmar,
margir litir,
frá kr. 25.900
Við erum bara tvö í heimili, ég og
maðurinn minn. Á þessum árstíma
finnst okkur bæði gaman og gott að
fá okkur síld, egg og rúgbrauð og
drekkum þá gjarnan jólaöl með.
Íslensk fyrirtæki sem framleiða
síld og selja í neytendaumbúðum
missa því miður af viðskiptum við
okkur hjónin. Ástæða þess er einföld
– íslensk síld er seld í allt of stórum
krukkum. Við höfum svo oft lent í
því að kaupa hátíðarsíld, jólasíld eða
aðrar síldartegundir en í ljósi þess
að skammtar okkar eru frekar litlir
tekst okkur ekki að klára úr krukk-
unum á meðan síldin er „fersk“.
Vegna þessa kaupum við nú
danska síld frá Gestus. Ágæt síld í
hæfilega stórum krukkum, sem við
klárum í þremur máltíðum.
Er ekki möguleiki á því að íslensk
fyrirtæki hugsi aðeins um þennan
þátt í söluferlinu?
Ein sem vill gjarnan kaupa íslenskt.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Stórar síldarpakkningar
Herramannsmatur Síld er
vinsæl á jólaborðinu og hér
er hún í fallegum umbúðum.
Atvinnublað
alla laugardaga
mbl.is