Morgunblaðið - 08.12.2016, Side 58

Morgunblaðið - 08.12.2016, Side 58
58 . MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016 Fengitíminn Þessi ferskeytla um lambhrútinn kom þannig til að eldri herramaður ljóðaði á mig bónorðsvísu á hagyrð- ingamóti og fékk þetta á móti: Ég var ekki í dag út úr vöggunni að skríða. Hef verið í búskap um sinn. Sá léttasti á fóðrum og liprasti að ríða er lambhrúturinn. Hrútar eru afskaplega leiðinlegar skepnur. Ég hef þurft að minnka hrútakróna oftar en einu sinni þegar nær dregur fengitíma svo þeir nái ekki eins löngum tilhlaupum í slags- málunum, þessir fávitar. Hrútar verða yfirleitt ekki eldri en þrevetra. Þeir eiga svo mörg af- kvæmi og eru þá fullreyndir. Það er betra að vera með yngri hrúta, sem eiga þá að vera föðurbetrungar. Ærnar verða miklu eldri en hrút- arnir, níu ára gamlar eða svo. Spakir hrútar eru alveg sérstakt leiðindadæmi. Þeir verða svakalega frekir. Vilja láta strjúka sér. Og rjúka svo í mann til að fá blíðu. Ógurlegir vitleysingar. Svo er það djöfullegt þegar maður rétt hangir í sjötíu kílóum, í vinnu- gallanum og skónum, að rýja níð- sterka hundrað kílóa hrúta … slepp- ur ef þeir eru þægir, en ég hef skutlast út í vegg bara ef þeir ákveða að rétta úr hálsinum og steinlegið í gólfinu, ef þeim dettur í hug að standa upp óforvarandis. Ég svitna sjaldan neitt að ráði við rún- ing … en það hefur oft verið hægt að vinda fötin mín eftir að hafa rúið nokkra fullorðna hrúta. Ég á eina gamla hrútarúningsvísu sem er svona: Þessir hrútar þoldu tap, þeir misstu allir hárin. Berst við að lægja brjálað skap bóndinn, og sleikir sárin. Ég ræð ekki við hrútana. Þeir eru sterkari en ég. Það sem ég segi um þá er best að skoða í ljósi þess. Nú er ég loksins búin að læra að gamlar konur eiga ekki að tjónka við hrúta ef þar til gert yngra fólk er innan seilingar. Í síðustu réttum sagði ég við hann Ármann systurson minn: Sjáðu Ármann minn, þarna er hrútur! Og ljúfmennið sem hann er fór af stað. Búskapur hefst Þegar ég byrjaði að byggja upp á Ljótarstöðum var margt komið í niðurníðslu, búskaparhættir að mörgu leyti gamaldags. Að minnsta kosti var bæjarbragurinn ekki eins og ég vildi hafa. Ég var viðkvæm fyrir því og vildi endilega bæta úr og það hefur nú verið mitt stóra verk- efni í fimmtán ár. Það sat líka í mér að Ljótarstaðir höfðu orðið fyrir leiðinlegu umtali. Ég var í öllum framkvæmdum sjálf, með margvíslegri aðstoð. Sig- geir vinur minn er smiður, hann hjálpaði mér mjög mikið og kenndi mér líka. Ég hafði til dæmis aldrei notað hjólsög. Ég sneri fjárhúsinu við sumarið 2002 og breytti fjárhúshlöðunni líka í fjárhús. Þessi stóraðgerð bætti mjög aðstöðuna til gegninga, létti okkur starfið, og var mikið hagræð- ingarmál. Pabbi var á móti breyting- unum fyrst í stað … en hann laum- aðist nú til að hrósa þeim … svona við aðra, frétti ég. Við pabbi vorum yfirleitt ósam- mála um flest það sem sneri að bú- skapnum. Þannig að við rifumst mik- ið, eftir að ég varð uppkomin og fór að þora að standa fyrir máli mínu. Ég er friðsöm í eðli mínu … hef ekki gaman af rifrildi, svo þetta tók á. Þar fyrir utan var pabbi frægur fyrir að þagga alveg niður í fólki með sínu mergjaða tungutaki. Það var nú ekki alltaf fallegt orðbragðið á okkur, þegar ég yfirleitt kom upp orði … ég á það til að frjósa ef ég verð reið. Ég reyndi þá að hafa hærra en hann – sem var erfitt – maðurinn var mjög rómsterkur. Á einhverju stigi málsins, áður en ég tók við búinu, sprakk allt í loft upp og ég tók föggur mínar … alfar- in. Þau voru að rifja það upp um daginn Jónas og Droplaug í Norður- Hvammi að ég hefði verið í ham þeg- ar ég lýsti málinu fyrir þeim. Ég átti að hafa klykkt út með þessu: „Svo las ég helvítinu lokapistilinn.“ Ég var í burtu í hálft ár. Svo fannst mér pabbi hafa sloppið of vel! Ég hafði ætlað mér að búa á Ljótar- stöðum. Svo ég fór aftur heim. Mér var ekki vel tekið … en það lagaðist. Ég líkist pabba mjög mikið í útliti. Að hugsa sér þetta – tvö alveg eins sem standa hvort framan í öðru og hnakkrífast. Bæði löng og mjó. Sama nefið. Sömu bláu augun. Takt- ar og hreyfingar svipað, og ekki síst talandinn og tilsvörin. Andlega óráðsían Hjá flestum mun að mestu líkt þó misjafnlega þvælið. Það er eitthvað kynnst og kíkt og kysst og svo í bælið. Ég geng græn að því hvað karl- mönnum finnst um mig, hvort þeir eru skotnir í mér. Ég pæli ekki í því, tek ekki eftir því nema það sé sagt beint við mig. En ég er ekki ein af því ég hafi setið og grátið í vasaklút og svuntuhorn yfir skorti á von- biðlum. Ég hef fengið allrahanda skilaboð gegnum tíðina. Menn bjóða fram sjálfa sig, syni sína … feður, hringja stundum fullir: „Vantar þig ekki vinnumann?“ „Ég get lyft bögg- unum.“ „Ég get gert við traktor- ana.“ Stundum koma bréf í pósti, skartgripir og alls konar dótarí. Best var þó þegar frændi minn sendi mér einn á biðilsbuxunum … þekkj- andi frænku sína sendi hann mann- inn ekki með blóm og konfekt heldur með hamar og startkapla að gjöf. Ég fattaði samt ekki fyrr en löngu seinna að hann átti erindi við mig … þakkaði bara fyrir gjafirnar, sótti pabba gamla og bað hann að spjalla við þennan gest … dreif mig svo út. Jú, ég verð vör við það að menn hafi minnimáttarkennd gagnvart mér, segi til dæmis: „Þú ert svo sjálfstæð.“ Ég hef líka heyrt eitt- hvað á þessa leið frá fólki sem endi- lega vill gefa góð ráð … að ég þurfi að gefa eftir, setja upp undirleit bambaaugu … og megi alls ekki vera svona sjálfstæð … allt að því ógnandi, því þá fái karlmennirnir minnimáttarkennd og ég nái mér aldrei í mann svoleiðis. Einmitt af því að það er jú eini tilgangurinn með lífinu … Fyrir utan sjálfstæðisvandamálið er ég hávaxin og hefðin svo sterk fyrir því að karlmaðurinn eigi að vera hærri í loftinu. Það er barasta enginn endir á mótlætinu í þessum heimi!! Ef mönnum stendur ógn af mér er það leiðinlegt fyrir þá … mér gæti ekki verið meira sama. Kannski er ég orðin svo teflonhúðuð að það næst ekki viðloðun. Ég heyrði einu sinni skilgreiningu á rómantík sem féll í kramið hjá mér. Hún kemur víst austan af fjörð- um. Málið afgreitt í tveimur orðum: Andleg óráðsía. Lambhrútar og vonbiðlar Heiða Ásgeirsdóttir er einyrki á Ljótarstöðum sem eru efsti bær í Skaftártungu. Jafnframt því að sinna fimm hundruð fjár hefur hún barist fyrir tilveru sinni og sveitarinnar fyrir austan – varið landið – svo öllu verði ekki fórnað fyrir fáein megavött; gljúfri, besta beitarlandinu – þar sem fyrst grær á vorin. Steinunn Sigurðardóttir ritaði sögu Heiðu í bókinni Heiða - fjalldalabóndinn. Ljósmynd/Bjartur Sauðburður Heiða Ásgeirsdóttir á Ljótarstöðum sinn- ir vorverkum. BÆKUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.